Lífeyrissjóðirnir áttu innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini fyrir 1.110,4 milljarða króna í lok ágúst síðastliðins. Frá áramótum hefur virði slíkra eigna sjóðanna aukist um 28,2 prósent og vaxið úr 866,1 milljörðum króna. Frá ágúst 2020 hefur virði hlutabréfa og hlutdeildarskírteina í eigu sjóðanna vaxið um 393,8 milljarða króna, eða um 54,9 prósent.
Þetta kemur fram í nýjum hagtölum Seðlabanka Íslands um eignir lífeyrissjóða.
Vert er að taka fram að inngreiðslur á iðgjöldum í lífeyrissjóðina geta ratað í ný hlutabréfakaup auk þess sem stór hlutafjárútboð hafa farið fram þar sem nýtt hlutafé í íslenskum félögum hefur verið seld. Ber þar helst að nefna hlutafjárútboð í Icelandair Group í fyrra og nýskráningu Síldarvinnslunnar og Íslandsbanka á markað fyrr á þessu ári. Þá var flugfélagið Play skráð á First North markaðinn í ár.
Eiga meira en tvöfalt meira í innlendum hlutabréfum en fyrir hrun
Þetta er langmesta hækkun sem orðið hefur á hlutabréfum í eigu íslensku lífeyrissjóðanna milli ára í krónum talið og hlutfallslega sú mesta.
Til samanburðar má nefna að þegar fyrirhrunseign sjóðanna í skráðum íslenskum félögum reis sem hæst, um mitt ár 2007, stóð hún í 470 milljörðum króna, en fór niður í 108 milljarða króna um ári eftir bankahrunið.
Heildareignir lífeyrissjóðanna standa nú í 6.410,5 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri. Frá lokum ágústmánaðar í fyrra hafa þær aukist um 910 milljarða króna. Þar af hafa eignir þeirra innanlands aukist um 504 milljarða króna og þar vigtar áðurnefnd hlutafjáreign langmest.
Íslenskir lífeyrissjóðir eru saman langstærstu eigendur þeirra félaga sem skráð eru á íslenskan hlutabréfamarkað. Saman eiga þeir, beint og óbeint í gegnum hlutdeildarskírteini í sjóðum, um helming allra skráðra bréfa.
Erlend ávöxtun einnig mikil
Erlendar eignir íslensku lífeyrissjóðanna hafa líka bólgnað út á tímum kórónuveirunnar. Virði þeirra er nú 2.257,6 milljarðar króna og hefur aukist um 406,3 milljarða króna milli ára. Nánast öll erlend eign lífeyrissjóða, alls 2.196 milljarðar króna, er bundin í hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum, og því kemur ekki á óvart að sá eignarflokkur sé ábyrgur fyrir nær allri virðisaukningunni sem orðið hefur á erlendum eignum íslensku lífeyrissjóðanna frá því í ágúst í fyrra, eða 94 prósent hennar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir