Ríkistjórnin segir afstöðuna til Norðurskautaráðs vera skýra vegna Úkraínustríðsins

Forsætis- og utan­ríkis­ráðuneytið segir að afstaða ríkis­stjórnar Íslands til þátttöku Íslands í starfi Norður­skauta­ráðs liggja fyrir. Ráðuneytin segja að röksemdir gegn því að sex af sjö þjóðum í ráðinu leggi niður vinnu í því vegna stríðsins í Úkraínu breyti engu þar um. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­verandi forseti Íslands, lýsti slíkum sjónar­miðum nýlega í viðtali þó hann segi að ekki sé um að ræða sínar persónu­legu skoðanir.

Skýr afstaða og samstarfið breytist ekki
Skýr afstaða og sam­starfið breyt­ist ekki Í svari for­sæt­is­ráðu­neytis Katrínar Jak­obs­dóttur. kemur fram að afstaða íslenskra stjórn­valda til stríðs­ins í Úkraínu sé skýr, sem og sú ákvörðun að leggja niður störf í Norð­ur­skauta­ráði vegna stríðs­ins. Í svar­inu segir einnig að stofn­unin Hring­borð Norð­ur­slóða vinni mik­il­vægt starf og að ekki standi til að breyta styrkjum til hennar. Mynd: Davíð Þór

Forsætis- og utan­ríkis­ráðuneyti Íslands segja stefnu ríkis­stjórnarinnar í málefnum Norður­skauta­ráðsins vegna innrásar Rússlands í Úkraínu vera skýra og jafnframt að greining Ólafs Ragnars Gríms­sonar, fyrr­verandi forseta Íslands, á stríðinu og afleiðingum þess hafi ekki áhrif á samstarf íslenska ríkisins við Hringborð Norðurslóða. Ólafur Ragnar er stofnandi Hringborðs Norðurslóða sem hlýtur árlega styrki frá íslenska ríkinu upp á 15 milljónir til að leigja ráðstefnu­húsið Hörpu undir ráðstefnu sem stofnunin heldur hér á landi á hverju ári.

Þau lönd sem eru í Norður­skauta­ráðinu eru Ísland, Danmörk, Rússland, Kanada, Banda­ríkin, Noregur, Svíþjóð og Finnland. Öll aðildar­ríkin nema Rússland, þar á meðal Ísland, ákváðu nýlega að hætta öllu starfi í ráðinu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. 

Í svari forsætis­ráðuneytisins um þessa ákvörðun og greiningu Ólafs Ragnars á ákvörðun þjóðanna í Norður­skauts­ráðinu að leggja niður starf ráðsins segir: „Stefna íslenskra stjórn­valda í málinu er skýr enda studdi Ísland yfir­lýsingu aðildar­ríkja Norður­skauts­ráðsins, utan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hún getur ekki talist svipfríð hún Katrín á þessari mynd.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár