Minnst 50 látnir eftir sprengingu í Tyrklandi

Mikil ólga er í Tyrklandi þar sem hryðju­verk hafa verið tíð á þessu ári.

Sprengingin varð í brúðkaups­veislu sem haldin var utandyra og eru nú í það minnsta 50 látnir og yfir 100 slasaðir, sumir alvarlega, að því er fram kemur á vef breska ríkis­útvarpsins BBC. Borgin, þar sem sprengingin varð, er í suður­hluta Tyrklands, rúmum 60 kíló­metrum frá landa­mærunum að Sýrlandi. Af um 1,5 milljóna heildar­íbúafjölda er meirihluti kúrdar. Mehmet Simsek, aðstoðar­forsætis­ráðherra, segir árásina villimanns­lega. Enn hefur enginn lýst ábyrgð árásarinnar á hendur sér, en samkvæmt nýjustu fréttum bendir margt til þess að sjálfsmorðs­árásin hafi verið framkvæmd af 12 til 14 ára barni.

Stjórn­völd telja að hryðjuverka­samtökin sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIS) beri ábyrgð á henni. Sýrlenskar uppreisnar­sveitir hafa sótt að þeim ásamt hersveitum kúrda og sérsveitum bandaríska hersins að undan­förnu, og er jafnvel talið að um hefndar­árás hafi verið að ræða.

Erdogan Tyrklands­forseti sendi frá sér yfir­lýsingu í nótt þar sem hann sagði íslamska ríkið líklega ábyrga. Hann sagði jafnframt að það væri enginn munur á hryðjuverka­samtökunum og hreyfingu klerksins Fethullah Gulen, sem hann segir ábyrgan fyrir valda­ráns­tilrauninni í júlí. Gulen harðneitar því og hefur sagt að valda­ráns­tilraunin hafi verið sviðsett, til að Erdogan gæti hafið „hreinsunar­starf“ sitt í Tyrklandi, og þaggað niður í andstæðingum sínum.

Á þessu ári hafa hryðju­verk verið tíð í Tyrklandi, en í júní létust yfir 40 manns í árás á flug­völlinn í Istanbúl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár