Ófreskja fædd!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Bæng! eftir Marius von Mayenburg í Borgar­leikhúsinu.

Bæng!
Bæng! Mynd: Grímur Bjarnason

Borgarleikhúsið: Bæng!

Höfundur: Marius von Mayenburg

Þýðing: Hafliði Arngrímsson

Leik­stjórn: Gréta Kristín Ómars­dóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Eva Signý Berger

Lýsing: Kjartan Þórisson

Myndband: Ingi Bekk

Tónlist og hljóð: Garðar Borgþórsson

Leikgervi: Elín S. Gísla­dóttir

Leikarar: Björn Thors, Brynhildur Guðjóns­dóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Davíð Þór Katrínarson, Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir, Halldór Gylfason.

Það má segja ýmislegt gott um sýningu Borgar­leikhússins á Bæng! í leik­stjórn Grétu Kristínar Ómars­dóttur. Gréta Kristín vakti athygli fyrir rúmum tveimur árum fyrir sýninguna Sterta­bendu, einnig eftir Marius von Mayenburg, en sú sýning var útskriftar­verkefni hennar af sviðs­höfunda­deild LHÍ. Sterta­benda var býsna skýr lýsing á ákveðnu samfélags­ástandi sem auðvelt var að taka til sín og hafa nokkurt gaman af – það var áleitið og á erindi við okkar tíma. Bæng! tekur á svipuðum nótum á vanda nútíma­samfélags, en það er þó í því ívið annar tónn, sem markast kannski af því að höfundur skrifar verkið í kjölfar síðustu forseta­kosninga í Banda­ríkjunum.

Það er Hafliði Arngrímsson sem þýðir Bæng! og ferst það ákaflega vel úr hendi. Textinn er lipur og fer vel í munni leikara og það má dást sérstak­lega að þýðingu hans á orða­leikjum föður Hrólfs, en sá talar gjarnan í raddæfingar­kenndum þulum sem einatt eru hreinar merkingar­leysur, en hér er vissara að áhorf­endur leggi við hlustir, því hér leynist merking í hverjum frasa.

Ekki er ljóst hvort þýðandi sjái einnig um staðfæringu verkins, en hvort sem það er verk hans eins eða í samvinnu við leik­stjóra verður að segjast, að staðfæringin er vel heppnuð og hvergi skotið yfir eða undir mark í þeim efnum, amk. ekki hvað sjálfan textann varðar.

Hvað skal þá sagt um sjálfa sýninguna?

Bæng! segir frá Hrólfi Bæng sem fæðist alskapaður úr móður­kviði eftir að hafa þar kyrkt tvíbura­systur sína (!) og tekur þegar til við að stjórna umhverfi sínu með ómengaðri frekju og tilætlunarsemi. Foreldrar hans eru undanláts­samir og meðvirkir og barnið verður háþróaður sjálfs­dýrkandi sem fær að ráða ríkjum á heimilinu og á endanum í samfélaginu öllu.

Hér má finna skírskotanir í ýmsar áttir: Bubbi kóngur er ekki langt undan, né heldur barnið í Meðgöngu­tíma Mrozeks, sem leikið var fyrir nær hálfri öld hjá Leik­félagi Reykja­víkur. Þá er hér líka skírskotun í nýlega kvikmynd, The Truman Show, með þeim viðsnúningi þó að hér er aðal­persónan ekki bara meðvituð um show-ið sem slíkt og nauðsyn þess að það haldi sínu striki hverju sem tautar og raular heldur verður sýningin beinlínis til eftir fyrir­skipunum og duttlungum Hrólfs Bæng. Það má einnig sýna fram á viss tengsl við dadaismann og afneitun þeirrar stefnu á rökhyggju og borgaralegri fagur­fræði hins kapítalíska samfélags og sem hafði leitt til fyrri heims­styrjaldarinnar. Dada er nafnið á stefnunni og var valið að sögn af algeru handahófi – en stundum á það bent að “dada” sé með fyrstu hljóðum ómálga barns. Hrólfur Bæng er barn og höfundurinn vísar til þess í viðtali í leikskrá að margir af einræðis­herrum nútímans haga sér eins og börn, eins og óvitar. Og ótalin eru þá hughrifin frá Grand Guignol, Brúðu­leikhúsinu mikla, sem sýndi blóðugar hryllings­sýningar og sem rekið var í París lungann af nítjándu öldinni og sem vikið er lítillega að í viðtali við höfundinn í leikskrá.

Það vantar ekki heldur skírskotanir til atburða í samtímanum: Hrólfur Bæng er einræðis­herrann holdi klæddur og birtist í mynd þessa vitstola en málgefins barns, sem er algerlega meðvitað um hvaða aðferðum það beitir til að stjórna umhverfi sínu og fá vilja sínum framgengt. Hann getur í því ljósinu verið Trump eða Erdogan eða hvaða pópúlíski þjóð­höfðingi sem þekktur er að ofbeldi og einræðis­tilburðum. Hrólfur Bæng er þó ekki eftir­herma heldur algerlega sinn eigin karakter í kostulegum meðförum Björns Thors, sem skapar eftir­minnilega persónu úr efni­viðnum sem höfundur færir honum í hendur. Hrólfur Bæng á sína eigin sögu sem er engri sögu lík. Hann kynnir sig í upphafi sýningar – eða öllu heldur áður en sýningin hefst, því þetta er sýningin hans, hann er stjórn­andinn sem leiðir okkur inn í leikinn. Þarna koma vel fram kostir Björns sem leikara, að geta verið í nánu sambandi við áhorf­endur og tekið við og fært sér í nyt alls kyns viðbrögð þeirra og um leið haft fullt vald á aðstæðum og beitt því í þágu frásagnarinnar. Enda kveikir þetta í áhorf­endum, Hrólfur verður karakter sem vekur forvitni og áhuga. Þetta er megin­styrkur sýningarinnar og Björn vinnur leiksigur í hlutverki þessa ofvaxna barns sem Hrólfur Bæng er.

Það má reyndar segja um leik­hópinn allan, að hér gerir hver og einn sitt besta og þegar litið er til leiks og umgjarðar þá er sýningin ágæt afþreying og á köflum kostuleg í gróteskum og afkára­legum skilningi – en þó í fallega hannaðri og smekklegri umgjörð. Leikmynd Barkar Jónssonar og búningar Evu Signýjar Berger bera vitni um frjótt ímyndunarafl og fagmannlega vandvirkni og sömuleiðis vinnur lýsing Kjartans Þóris­sonar vel með öllum hinum sjónræna efniviði, sem allur er líkt og innblásin af teiknimynda­sögum – leik­myndin í pastel­litum og skærum tónum líkt og finna má í sjötta áratugar auglýsingum af hinni fullkomnu amerísku fjöl­skyldu í hinu fullkomna ameríska heimili og sem íslenskt samfélag fór ekki varhluta af. Þá eru leikgerfi Elínar S. Gísla­dóttur algerlega í stíl, gríðar­lega vel unnin og auðvelda ekki síst Halldóri Gylfasyni og Katrínu Halldóru Sigurðar­dóttur að bregða sér í ótal hlutverk, hvert með sínu sniði og sérstaka karakter.

Foreldrar Hrólfs eru leikin af Brynhildi Guðjóns­dóttur og Hirti Jóhanni Jónssyni og þau eru hinir fullkomnu foreldrar sem eiga hið fullkomna barn – sem verður undir meðvirkni foreldranna og ofurtrú á litla snillingnum að ófreskju sem engu eirir sem á vegi þess verður. Þau eru færð til nútíma með vistvænum lífsstíl og heil­brigðu mataræði, fullkomnu afskipta­leysi af þeim öflum stjórn­mála og peninga sem ráðskast með líf þeirra – en réttlætingin fundin í góðverkum þar sem kjallari húss þeirra verður skjól flótta­mönnum, sem talað er um en aldrei sjást.

Þetta er náttúru­lega fyndið og skemmtilegt og það er margt aðhláturs­efnið í Bæng! Húmorinn er auk þess gróteskur og það má víða finna atriði þar sem orðræða eða atvik afhjúpar á óvæntan hátt aðstæður sem við þekkjum úr okkar eigin raun­veruleik.

Þó verður ekki hjá því komist að segja að Bæng! er ófull­komin saga ekki síst í ljósi þess sem höfundur vill augljós­lega koma á framfæri. Bæng! birtir í afskræmdri mynd velþekkt fyrirbæri úr samtímanum, raungerir þau í smækkaðri fjölskyldu­mynd og setur þau þar með í kast­ljósið: Sjáið hér! Og um leið staðhæfir sýningin að við – almenningur, kjósendur, fólkið í landinu – höfum í raun verið þau fífl að við höfum ekki fattað djókinn. Við höfum hleypt inn á gafl hjá okkur enn einum loddaranum (með tilvísun í aðra leik­sýningu í öðru leikhúsi) hvort sem hann kallast Trump, Erdogan, (hér væri freistandi að nefna íslensk dæmi, en verður látið ógert. Það má vera ragur!) eða ætti maður jafnvel að voga sér að nefna sjálfan Krist, samanber loka­myndina í Bæng! eða er það að seilast of langt?

Í áður nefndu viðtali í leikskrá segir höfundurinn, Marius von Mayenburg að hann hafi verið mjög reiður þegar hann skrifaði Bæng! Það er skiljanlegt og auðvelt að setja sig í hans spor. Ef litið er á samfélags­ástandið, ekki aðeins í okkar heims­hluta, heldur í heiminum öllum er auðvelt að fyllast heilagri og réttlátri reiði yfir því sem fyrir augu ber: flóttamanna­vanda, loftslagsvá, fjölgun mannkyns, ranglæti, mansali, ofbeldi, stríði … það er hægt að lengja þennan lista í það óendanlega og um allt má kenna græðgi örfárra sem hvergi sjást og sem engum lýðræðis­legum böndum verður á brugðið. Auðvitað verður hver sá sem sér og á horfir á útfrá sjónar­horni lítilmagnans reiður. Slík reiði getur stundum fætt af sér aðgerðir, samanber sænsku stúlkuna Greta Thunberg sem virðist vera að vekja upp fjölda­hreyfingu sem krefst þess að stjórn­málamenn allra landa axli ábyrgð og breyti ástandinu.

Hins vegar er reiði lélegt eldsneyti þegar skrifað er leik­húsverk. Í það minnsta þegar maður er ekki að segja neitt, sem telst nýtt. Dadaistarnir brutu gegn viðteknum gildum, þeir gerðu uppreisn. Nú er sú uppreisn gamlar fréttir og þjónar litlum tilgangi að feta í þau fótsporin. Leikverk sem segir frá Hrólfi Bæng þarf að greina með skarp­skyggni vísinda­mannsins hvaða leiðir liggja frá Hrólfi, ekki hvaða slóðar leiddu til hans. Við vitum að hann er til, við þurfum að fá að vita hvernig við losnum við hann – það er engin lausn að skjóta hann. Það hefur verið reynt.

Bæng! er fyrst og fremst sýning sem samanstendur af safni stuttra sketsa, raðað saman í lauslegt samhengi rétt eins og í áramóta­skaupi eða menntaskóla­revíu. Sýningin heitir Bæng! – nafn með hvelli – en þeim skotum sem hleypt er af ramba út í myrkur og hitta engan fyrir. Það er einna helst að flóttamanna­pólítíkin sé höfð í fókus, en samhengi þess hluta sögunnar, þar sem móðirin fyllir kjallarann af flótta­fólki, við allt annað sem gerist og tæpt er á – barna­uppeldi, viðhorf til kvenna, tengsl ímyndunar og veruleika (með vissulega fyndnum en ómark­vissum vísunum í aðrar sýningar Borgar­leikhússins) – er ómarkviss og sýningin verður fyrir vikið sundur­laus og áhrifs­lítil þegar upp er staðið og leikhúsið skilar áhorf­endum aftur út í veru­leikann. Vissulega í góðu skapi og kátum, en hugsanlega veruleika­firrtari en þeir voru. Varla hefur það verið ætlunin?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár