Rannsókn á fjárkúgunarmálinu lokið

Rannsókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á til­raun til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og öðrum manni, er lokið. Málið er komið til hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem ákvörðun verður tekin um hvort ákært verður í mál­inu eða ekki.

Syst­urnar Malín Brand og Hlín Ein­ars­dóttir voru hand­teknar í maí í fyrra vegna til­raunar sinnar til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð. Þær sendu fjár­kúg­un­ar­bréf, þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim átta millj­ónir króna. Pen­ing­ana átti hann að skilja eftir á til­teknum stað syðst í Hafn­ar­firði, en það var þar sem syst­urnar voru hand­teknar.

Skömmu síðar kom upp annað mál, þar sem fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Hlínar kærði syst­urnar einnig fyrir fjár­kúgun. Hann sagði syst­urnar hafa hótað að kæra hann fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki 750 þús­und krónur, sem hann gerði. Hann kærði þær og þessi tvö fjár­kúg­un­ar­mál bíða nú ákvörð­unar um ákæru. Hlín lagði svo fram kæru á hendur mann­inum fyrir nauðgun skömmu síðar.

Sögð­ust hafa upp­lýs­ingar sem kæmu for­sæt­is­ráð­herra illa

Upp­lýs­ing­arnar í fjár­kúg­un­ar­bréf­inu áttu að koma Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra illa, og hótað var að gera þær opin­berar í bréf­in­u ­sem stílað var á eig­in­konu hans. Þessar upp­lýs­ingar snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka. Björn Ingi, aðal­eig­andi Pressunn­ar, er með sterk tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hann starf­aði á árum áður sem aðstoð­ar­maður þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra flokks­ins, Hall­dórs Ásgríms­son­ar, og sat fyrir hönd hans í borg­ar­stjórn Reykja­víkur um skeið. Björn Ingi til­kynnti hins vegar að hann væri hættur afskiptum af stjórn­málum í byrjun árs 2008 og hefur síðan þá starfað við fjöl­miðla.

Vísir greindi fyrst frá því að upp­lýs­ing­arnar hefðu átt að tengj­ast MP banka. Þar var rætt við ­Arnar Ægis­son, fram­kvæmda­stjóra Pressunn­ar, um rúm­lega 60 milljón króna hækkun á skuldum félags­ins á árinu 2013. Þar segir hann að lík­lega sé um að ræða yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eign­ar­halds­fé­lag­inu Vef­press­unni ehf. Hann stað­festir að yfir­drátt­ur­inn sé hjá MP banka. ­Arnar hafn­aði strax öllum tengslum Pressunnar við for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafn­aði einnig að lána­fyr­ir­greiðsla MP banka hafi verið fengin að til­stillan Sig­mundar Dav­íðs eða aðilum tengdum hon­um.

Fyrst um sinn voru sagðar fréttir af því að kúg­unin hafi snú­ist um upp­lýs­ingar um að Sig­mundur Davíð hefði tengst fjár­mögnun á kaupum Björns Inga á DV. ­Björn Ingi setti inn færslu á Face­book þriðju­dag­inn 2. júní. Þar sagði hann: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sál­ar.“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu sama dag þar sem sagði m.a.: „ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt.“ ­Síðar setti for­sæt­is­ráð­herra svo inn stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem hann ítrek­aði að hann hefði „ekki nokkra ein­ustu aðkomu að eig­enda­skiptum á DV og veit ekk­ert um aðdrag­anda og gang þeirra mála.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár