Frá kvöldvöku til karnivals

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Kvöldvöku með Jóni Gnarr.

Borgarleikhúsið í samvinnu við Jón Gnarr: Kvöldvaka með Jóni Gnarr

Á sviðinu: Jón Gnarr

Kvöldvaka er séríslensk samkoma sem á rætur í bænda­samfélaginu og leið undir lok þegar samfélags­skipan hér á landi breyttist, hið hefð­bundna bænda­samfélag leið undir lok, fólk fluttist á mölina og önnur tegund afþreyingar sem heyrði til hinu vaxandi borgar­samfélagi ruddi kvöld­vökunni til hliðar – hljóðvarp, kvik­mynda­sýningar, leik­sýningar og aðrir mann­fagnaðir, og loks sjón­varpið – en bæði í upphafi og þróun hljóð­varps og eins í upphafi og þróunar sjón­varpsins má greina leifar af kvöldvöku­menningunni. Þessi hinstu merki kvöld­vökunnar eru þó óðum að hverfa.

Samkvæmt skilgreiningu Íslenskrar nútímamáls­orðabókar, sem finna má á netinu, hefur hugtakið kvöldvaka tvær merkingar: annars vegar er það notað um samveru fólks um kvöld í baðstofu þar sem lesið var upphátt og unnin handa­vinna, hins vegar er það haft um skemmtun að kvöldlagi, oft í skóla eða félagi.

Þessar skilgreiningar hljóta að teljast ívið takmarkaðar; á netinu má þó einnig finna skilgreiningu Öldu Sigmunds­dóttur á ensku, þar sem hún greinir erlendum ferða­löngum frá fyrirbærinu kvöldvaka; þar leggur hún áherslu á sagna­arfinn eins og hann birtist í frásögum sögumanns, ekki upplesara, heldur flytjanda, sem gerir söguna lifandi með flutningi sínum og frásagnar­stíl. Slíkir sögumenn voru einatt aufúsu­gestir á bæjum og gátu jafnvel orðið matvinnungar með því að skemmta fólki með því að fara með þjóðsögur af huldu­fólki, tröllum, draugum og útilegu­mönnum eða lífga við einhverja af Íslendinga­sögunum eða einfald­lega segja sögur af skemmtilegu fólki úr samtímanum, stundum því til háðungar og smánar, en áheyrendum ávallt til skemmtunar.

Þar með erum við farin að nálgast lýsingu á þeirri kvöldvöku sem Jón Gnarr býður upp á í Borgar­leikhúsinu, nánar tiltekið á Litla Sviðinu, sem hefur verið smekklega aðlagað að viðburðinum: ljósbrúnt baktjald afmarkar sviðið en þar má finna dökkappelsínugulan hæginda­stól, sjálfsagt frá sjötta áratugnum og frá svipuðu tíma­skeiði er mikill radíó­grammófónn sem trónir fyrir baksviði miðju; lengst til hægri er svo hátt borð á einum fæti, ekkert ósvipað því sem stjórn­endur málþinga styðjast við í ráðstefnu­sölum; það borð er með hvítum hekluðum dúki. Öll er þessi leikmynd í anda Jóns Gnarrs ef svo má að orði komast, og svo er hún heldur ekki notuð í sýningunni, nema á einfætta borðinu er vatnsglas sem Jón sýpur á af og til og svo glerkrús með nokkrum bréfmiðum sem koma að notum í seinni hluta sýningarinnar. Á gólfinu er motta sem gæti verið persnesk en hún hefur skilgreint hlutverk: að sjá til þess að Jón Gnarr haldi sig á mottunni! Í bókstaflegri merkingu!

Hlutverk leik­myndarinnar virðist að öðru leyti frekar vera að minna á þann tíma þegar kvöld­vakan var endanlega að líða undir lok sem samfélags­fyrirbæri, rétt upp úr seinna stríði.

Jón Gnarr byrjar á að útskýra konsept sýningarinnar og veður þar úr einu í annað í viðstöðu­lausum orða­flaumi – það er ekki ofmælt að hann láti dæluna ganga, vaði á súðum, láti móðan mása, tali linnulaust og láti flest flakka. En þessi fyrri hluti sýningarinnar er í rauninni upphitun; uppi­standarinn er að búa í haginn fyrir sögu­manninn. Uppi­standarinn færir sér fimlega í nyt að hann er faðir og fjölskyldu­maður, fyrr­verandi borgar­stjóri og frægur skemmtikraftur sem hefur í kringum sig vænan vinahóp. Og uppi­standarinn gerir að því er virðist allt sem í hans valdi stendur til að ófrægja sjálfan sig: hann játar blygðunar­laust að hann hafi hina mestu skemmtun af því að koma öðrum í vandræði, hann viðurkennir án þess að skammast sín að hann ljúgi markvisst og meðvitað að börnum sínum og kinnroða­laust kveðst hann ýta undir söguburð um vini sína.

Játningar af þessu tagi eru óborganlega fyndnar. Ætli það hafi ekki hent flest okkar að koma okkur sjálfum eða jafnvel vinum okkar í vandræði. Ætli við þekkjum það ekki að slúðra svona pínulítið um vini okkar og vinnu­félaga og hefur það ekki komið fyrir að við berum eins og eina litla, hvíta lygi í börnin okkar? Mjög sennilega. En Jón Gnarr toppar okkur öll. Þetta eru ekki einstaka tilviljana­kennd atvik í hans lífi, þetta er hans lífsstíll! Jón Gnarr er yfir­drifinn og gróteskur í atferli sínu og í ofanálag er hann greindur með þroska­skerðingu sem barn, athyglis­brest með ofvirkni og lesblindu auk þess að vera nærsýnn í meira lagi. Allar frásagnir hans af hrekkjum gegn vinum, lygum að börnum sínum og rugli þegar kemur að samskiptum við eiginkonu sína og bara venjulegu skipulagi daglegrar venju eru svo ýktar, ofsa­fengnar og yfir­drifnar – en frásögnin svo einlæg og hreinskilnis­lega fram borin að maður freistast til að trúa hverju orði eins og nýju neti.

Samtímis því sem Jón Gnarr heldur okkur hugföngnum með kostulegum og bráð­fyndnum frásögnum af hrekkjum sínum dregur hann upp markvissa mynd af lítilmagnanum, þeim sem ekki lauk prófi (nema meira­prófi!) og mætir atburðum í umhverfi sínu af hrekk­leysi og sakleysi sem oftar en ekki kemur honum sjálfum í alls konar óviðjafnanleg vandræði. Þessi sagna­aðferð er hvort tveggja í senn, sérstök og sympatísk – hann dregur upp mynd af sjálfum sér sem underdog, sjónar­horn hans er ávallt sjónar­horn lítilmagnans, ekki í líkamlegum skilningi, heldur félags­legum, hann er lítilmagninn sem kann ekki til fulls á umhverfi sitt og um leið og hann kemur fram af full­komnum kvikindis­skap við sína nánustu, leikur umhverfið hann viðlíka grátt.

Jón Gnarr spilar á sitt eigið óöryggi, sem óhjá­kvæmilega vekur hlátur og um leið og hann finnur fyrir þessum jákvæðu viðbrögðum áhorfenda færist hann í aukana og þá koma þau kostulegu augnablik þegar hann sjálfur flissar með – er það vegna þess að hann verður gripinn af sinni eigin frásögn eða er það vegna þess að hann verður raun­verulega upptendraður af því að hafa tekist að koma okkur til að hlæja? Svarið við því er leyndarmál sagna­meistarans Jóns Gnarrs – hann leyfir því að lifa fram yfir hlé og yfir í seinni hluta sýningarinnar.

Eftir hlé hefst hin eiginlega sögustund. Nú mega nokkrir áhorf­endur draga miða úr glerkrús og vísar hver miði til sinnar sögu. Ég er ekki grunlaus um að Jón Gnarr stjórni því betur en sýnist hvaða sögur verða fyrir valinu, því tæplega trúi ég því að alger tilviljun hafi ráðið vali sagna, til þess var sýningin öll og einkum seinni hlutinn of markvisst byggður – þótt það verði að segjast svo alls réttlætis sé gætt, að sýningin öll ber á sér yfirbragð þess að vera leikin af fingrum fram, án annars drif­krafts en málgleði og frásagnar­gleði Jóns. En þótt hann geti vissulega tekið ýmsa útúrdúra og sýningin þar með orðið lengri eða styttri eftir atvikum, er ramminn býsna skýr og þannig skorinn að úr verður þokkalega heil­steypt sýning.

En ég leyfi mér að spyrja – og hér er komið að minni einu aðfinnslu á sýningunni – hvort ekki hefði verið hægt að magna áhrif sýningarinnar með því að fara um efnið dramatúrgískum höndum og efla samhengið milli hinna einstöku sagna. Þær eiga það sameiginlegt að vera gróteskar og ýkju­kenndar, en gætu þó vel verið sannar – eins og Jón sjálfur fullyrðir einlæglega oft í upphafi sýningarinnar. Svo er eins og finna megi rauðan þráð á milli þeirra sem mætti draga betur fram og skerpa þannig upplifun áhorfenda af sýningunni allri. Sögurnar – af sambandi Jóns við neyslu­samfélagið eins og það birtist í Costco og Bland, nöktu konunni í leigu­bílnum og eigin­manni hennar, „samskiptum“ Bens Stillers og Jóns, þá borgar­stjóra, og síðast en ekki síst sagan af því þegar Jón og Jóka, kona hans, fóru með drengina sína tvo á dragsjó í stærsta drag­klúbbi New Yorkborgar og þar með heimsins til að sjá vin þeirra Kenny koma fram sem drag­drottningu – setja Jón sjálfan í ákveðið hlutverk, hann gerir sjálfan sig að hinum klassíska „underdog“, og hann stig­magnast í þessu hlutverki „underdogsins” allt þar til kemur að loka­sögunni, af heim­sókninni á dragsjóið í New York – sú saga endar á karní­valískri frásögn þar sem Jón er argur ger (svo vísað sé til Íslendinga­sagna –hér er nefnilega ekki brugðið frá sígildri sagnahefð!!!), niður­lægður, beraður og pyntaður, dreginn niður á hinn klassíska samfélags­lega botn, rændur kynvitund, heiðri og sæmd. Allt undir einlægum fögnuði og skelli­hlátrum áhorfenda!

Þetta er óborganlegur stígandi og marg­vísleg þemu gægjast fram á ferða­laginu úr heimi hinnar félags­lega öruggu kvöldvöku, þar sem hin félags­legu hlutverk voru niður­njörvuð og eilíf, yfir í æðis­genginn heim kynusla­klúbbsins þar sem enginn er öruggur og enginn fær að vera sá sem hann vill vera. Þetta er ferðalag í frásögnum sem fellur vel að kvöldvöku­heitinu og sem mætti jafnvel kalla hina nýju Íslendinga sögu. Það varð ekki annað fundið en áhorf­endur gerðu sig vel heima­komna á þessu ferðalagi og höfðu af því óspart og ósvikið gaman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár