Fréttablaðið hætt að koma inn um lúguna hjá fólki – Lestur hríðfallið og kostnaður aukist

Í fyrsta sinn síðan 2001 verður Frétta­blaðið ekki borið inn á heimili fólks, heldur þarf það að nálgast blaðið á „fjöl­förnum stöðum“ eða lesa það rafrænt. Mikið tap hefur verið á rekstri blaðsins og lestur dregist gríðar­lega saman.

Þessi sýn, Fréttablaðið í hrúgu við lúguna á heimilum fólks, er nú liðin tíð.
Þessi sýn, Frétta­blaðið í hrúgu við lúg­una á heim­ilum fólks, er nú liðin tíð. Mynd: Bára Huld Beck

Frétta­blaðið, sem dreift hefur verið inn á heimili fólks frá því að það var sett á fót árið 2001, fyrir rúmlega tveimur áratugum, mun ekki gera það lengur. Frá og með morgun­deginum verður blaðið aðgengilegt á 120 fjöl­förnum stöðum á höfuð­borgar­svæðinu, á Suður­nesjum, Ár­borgar­svæðinu, Akra­nesi, Borgar­nesi og á Akur­eyri og á raf­rænu formi.

Í frétt á vef blaðsins er haft eftir Jóni Þórissyni, forstjóri Torgs útgáfu­félags Frétta­blaðsins, að á­stæða þessarar breytingar sé marg­þætt. „Í fyrsta lagi höfum við hjá Torgi haft vaxandi á­hyggjur af því að dreifing blaðsins væri ekki í sam­ræmi við þau mark­mið sem við höfum gengið út frá og að dreifingar­ferlinu fylgdi ó­þarfa sóun. Það er í takti við vaxandi um­hverfis­vitund að lág­marka kol­efnis­spor í okkar starf­semi. Við bætist svo að dreifing blaðs til tug­þúsunda heimila er ó­hemju kostnaðar­söm og reikna má með að kostnaður á ný­byrjuðu ári hefði orðið yfir einn milljarður króna.“

Jón segir við blaðið að full­reynt hafi verið að breyta dreifingar­samningi við Póst­dreifingu, sem dreift hefur blaðinu um ára­bil.„Þessi samningur var þegar í gildi þegar nú­verandi eig­endur komu að fé­laginu og þrátt fyrir marg­í­trekaðar til­raunir reyndist ekki flötur á að semja um að losna undan þeirri skuld­bindingu. Þannig var allt svig­rúm í út­gáfunni fjar­lægt, ein­taka­fjöldi fast­settur sem og fjöldi út­gáfu­daga og ekki mögu­legt að koma til móts við um­hverfis­sjónar­mið og sporna við sóun. Því er ekki að leyna að um eins milljarðs króna ár­legur dreifingar­kostnaður var þung­bær fyrir reksturinn.“ Frétta­blaðinu var dreift í 75 þúsund eintökum á dag.

Breytingarnar kom ekki að öllu leyti á óvart en í byrjun september sagði Jón í viðtali við Frétta­blaðið að útgefandi þess þyrfti „að horfast í augu við það að á ein­hverjum tíma­punkti í fram­tíð­inni mun Frétta­blað­ið, sem ber ægis­hjálm yfir aðra miðla hér á landi hvað varðar útbreiðslu og lest­ur, hætta að koma út á prent­i.“

Lesturinn dalað hratt

Lestur Frétta­­blaðs­ins mælist nú 28,2 pró­­sent í heild, sam­kvæmt nýj­ustu lestr­ar­tölum Gallup. Hann fór í fyrsta sinn undir 30 pró­­sent í jan­úar í fyrra og hefur haldið áfram að dala í hverjum mán­uði síðan þá. Alls hefur lest­­ur­inn meira en helm­ing­­ast á einum ára­tug.

Frétta­blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­­­­festu á dag­­­­blaða­­­­mark­aði með til­­­­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­­­­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust til að mynda 65,2 pró­­­­sent lands­­­­manna lesa Frétta­­­­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­­­­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­­­­sent.

Mestur er sam­­drátt­­ur­inn hjá yngri les­end­­um. Hjá ald­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist hann nú 17,9 pró­­sent eftir að hafa farið undir 20 pró­­sent í fyrsta sinn í apríl síð­­ast­liðn­­­um. Fyrir tólf árum lásu 64 pró­­sent lands­­manna í þessum ald­­ur­s­hópi Frétta­­blað­ið. Lest­­ur­inn í dag er ein­ungis 28 pró­­sent af því sem hann var hjá full­orðnum undir fimm­tugu vorið 2010.

Mikill taprekstur

Frétta­blaðið er í eigu útgáfu­­­fé­lags­ins Torgs og er flagg­­­skip þess félags. Félagið rekur einnig vefmiðlana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hringbraut.is, frettabladid.is og sjón­­­­varps­­­­stöð­ina Hring­braut.

Útgáfu­­­­­dögum Frétta­­blaðs­ins var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­­­­dags­út­­­­­­­­­gáfu blaðs­ins.

Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­­­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­­­­nefnda félags­­­­­ins er fjár­­­­­­­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­­­­son og hann á 82 pró­­­­­sent í því síð­­­­­­­­­ar­­­­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­for­­­­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­­­­urður Arn­gríms­­­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­­­skipta­­­­­fé­lagi Helga til margra ára, áður­nefndur Jón Þór­is­­­­­son, fyrr­ver­andi rit­­­­­stjóri Frétta­­­­­blaðs­ins og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Torgs, og Guð­­­­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­­­­varps­­­­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­­­­kvæmda­­­­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­­­­mála og dag­­­­­­­­­­skrár­­­­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­­­­arra en Helga er hverf­andi.

Hóp­­­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­­­­að­­­­­ar­­­­­mál en í árs­­­­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­­­­ins.

Tap af reglu­legri starf­semi fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs var 325,7 millj­ónir króna á árinu 2021,, sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins. Heild­ar­tapið var 252,5 millj­ónir króna en þar munar mestu um að tekju­skattsinn­eign vegna taps árs­ins var bók­færð sem tekjur upp á 73 millj­ónir króna. Upp­safnað skatta­legt tap nýt­ist ekki nema að fyr­ir­tæki skila hagn­að­i.

Á árunum 2019 og 2020 var millj­­arðs króna tap af reglu­­legri starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Sam­an­lagt hefur því verið rúm­lega 1,3 millj­arða króna tap af henni á þremur árum. Heild­ar­tap, þegar búið er að taka til­lit til þeirrar tekju­skattsinn­eignar sem skap­að­ist vegna taps­ins á þessum árum, var tæp­lega 1,1 millj­arður króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár