Landvernd segir „draumóra orkugeirans“ birtast í skýrslu starfshóps um orkumál

Landvernd segir að ef skýrsla um stöðu og horfur í orkumálum, sem kynnt var í gær, verði grund­völlur ákvarðana­töku ríkis­stjórnarinnar í orkumálum næstu ára sé „ljóst að náttúra Íslands á sér engan talsmann í ríkis­stjórninni“.

Auður Önnu Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri Landverndar.
Auður Önnu Magn­ús­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Land­verndar. Mynd: Bára Huld Beck

Landvernd segir að ef skýrsla um stöðu og horfur í orkumálum, sem kynnt var í gær, verði grund­völlur ákvarðana­töku ríkis­stjórnarinnar í orkumálum næstu ára sé „ljóst að náttúra Íslands á sér engan talsmann í ríkis­stjórninni“. Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúru­verndar­samtökunum í dag, þar sem skýrslan er gagnrýnd.

Landvernd telur að skýrsla starfs­hópsins gefi ekki skýra mynd af því sem henni var ætlað að sýna – og að ekki hafi verið til staðar greiningar eða gögn sem unnin voru af hlut­lausum aðilum um vænta orku­notkun til framtíðar. „Starfs­hópurinn vann ekki sjálf­stæðar greiningar heldur tók við greiningum orku­geirans og gerði þær að sínum,“ segir í tilkynningu Land­verndar.

Samtökin segja að í skýrslunni sé í raun ekki tekið á stærsta álita­málinu sem tengist orku­vinnslu á Íslandi, sem sé sú eyði­legging íslenskrar náttúru sem orku­vinnslunni fylgir.

„Náttúra landsins og víðerni eru undir­staða stærstu útflutnings­greinar okkar, en er einnig gríðar­lega verðmæt til útivistar, bættrar lýðheilsu og aukinna lífsgæða. Náttúra Íslands hefur gildi í sjálfu sér og náttúru­vernd er einnig loftslags­aðgerð,“ segir Landvernd.

Í tilkynningu Land­verndar er vísað til þess sem fram kemur í skýrslunni, að sátt verði að ríkja um orkuver. „Það getur aldrei orðið ef ekki er hægt að treysta vinnu­brögðunum og orku­geirinn fær að stjórna umræðunni, ákvarðana­töku og laga­setningu. Þessi skýrsla er skýrt dæmi um ítök orku­geirans í þessu mikilvæga hagsmuna­máli þjóðarinnar, hið sama gildir um nýleg lög um mat á umhverfis­áhrifum og tafir á afgreiðslu ramma­áætlunar. Ef þessi skýrsla verður grund­völlur ákvarðana­töku ríkis­stjórnarinnar í orkumálum næstu ára er ljóst að náttúra Íslands á sér engan talsmann í ríkis­stjórninni,“ segir í tilkynningu samtak­anna.

Vilja greiningu á orkuþörf án aðkomu orkugeirans

Landvernd hvetur í tilkynningu sinni Guðlaug Þór Þórðarsson ráðherra umhverfis-, orku- og loftslags­mála til þess að að „láta gera greiningu á þörf fyrir frekari orku næstu ára með fagleg sjónarmið að leiðar­ljósi og án beinnar aðkomu orku­geirans“ og segja samtökin að við frekari orkuöflun verði að hafa í huga að náttúru­vernd og aðgerðir gegn loftslags­breytingum verði að haldast í hendur.

Samtökin benda á að stóriðja notar tæp 80 prósent af þeirri raforku sem orkuver á Íslandi framleiða í dag og að Ísland er lang­stærsti raforku­fram­leiðandi heims á íbúa og framleiði tvöfalt meiri orku á mann en landið sem næst kemur. „Orku­notkun Íslendinga er því yfir­þyrmandi og grænbókinni sem unnin var í miklum flýti virðist ætlað að ýta enn frekar undir það,“ segir í tilkynningu Land­verndar.

Ýmislegt sem skorti

Landvernd segir að það skorti ýmislegt í skýrslu starfs­hópsins og að hún taki ekki til „margra raun­verulega orku­sparandi aðgerða sem eru grund­völlur orku­skipta eins og til dæmis fjöl­breytts ferðamáta, fækkunar flugferða og minnkaðrar eldsneytis­notkunar sjávar­útvegsins“ né heldur forgangs­röðunar á orku­notendur.

„Í skýrslunni er ekki með fullnægjandi hætti fjallað um verðmæti óspilltrar náttúru sem er bæði efnahagslegt og samfélagslegt – eða um gildi hennar á heimsvísu,“ segir Landvernd í tilkynningu sinni og nefna einnig að ekkert sé vikið að því mikilvæga samspili náttúru­verndar og loftslags­verndar sem alþjóðlegar stofnanir og samtök hafi lagt æ meiri áherslu á.

Segja samtökin að það sem sé í húfi „ef draumórar orku­geirans, sem birtast í skýrslunni, verða að veruleika“ sé hægt að skoða á Náttúru­korti Land­verndar, vefsjá sem sýnir þá staði sem fyrir­hugað er að nýta til orku­framleiðslu eða raska á annan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár