Vilja „skýra framtíðarsýn“ um framtíð orkufreks iðnaðar

Starfs­hópur á vegum umhverfis­ráðuneytisins kallar eftir „skýrri pólitískri sýn“ á framtíð orkufreks iðnaðar á Íslandi. Samkvæmt honum gæti verið að framboð á raforku muni ekki geta mætt vaxandi eftir­spurn á næstu árum.

Vilhjálmur Egilsson, Sigríður Mogensen og Ari Trausti Guðmundsson.
Vil­hjálmur Egilsson, Sigríður Mogensen og Ari Trausti Guð­munds­son. Mynd: Samsett

Stjórn­völd þurfa að móta skýra pólitíska sýn á hvernig orku­frekum iðnaði verði háttað hérlendis á næsta árum, samkvæmt nýrri skýrslu frá starfs­hópi á vegum umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytisins.

Kjarninn hefur áður fjallað um skýrsluna, en hún snýr að stöðu og áskoranir í orkumálum. Höfundar hennar voru Vilhjálmur Egilsson, fyrrum framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins, Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri hugverka­sviðs Samtaka iðnaðarins, og Ari Trausti Guðmundsson, fyrrum þingmaður VG.

Í skýrslunni er farið yfir gjaldeyris­tekjurnar sem orku­frekur iðnaður, þar á meðal álver, kísilver og gagnaver, hefur skapað á síðustu árum, en samkvæmt höfundunum hefur fjórðungur af gjaldeyris­tekjum þjóðarinnar komið þaðan.

Höfundarnir hafa einnig eftir Lands­virkjun og Landsneti að flestir viðskipta­vinir fyrir­tækjanna hyggjast starfa áfram á Íslandi og að áform séu til vaxtar hjá mörgum þeirra. Einnig greinir Landsnet frá því að fjöl­breyttur iðnaður, meðal annars í matvæla­framleiðslu, líftækni og fiskeldi, hafi leitað til fyrir­tækisins varðandi tengingu við flutnings­kerfið á síðustu misserum.

Þá nefna þeir einnig fram­leiðendur vetnis og rafeldsneytis sem mögulega stór­notendur framtíðar, en þau bæta einnig við að Landsnet hafi þurft að hafna mörgum verkefnum á síðustu misserum vegna stöðu flutnings­kerfisins og/eða skorts á framboði á raforku. Þessi verkefni kalla höfundarnir „töpuð tækifæri,“ sem þeir meta að séu jafnmikil að umfangi og heildar­umsvif gagnavera hérlendis og hefðu getað keypt orku fyrir 4-6 milljarða króna.

Samkvæmt starfs­hópnum er nauðsynlegt að fyrirtæki og sveitar­félög fái skýr skilaboð frá stjórn­völdum, orku­fram­leiðendum, Landsneti og dreifi­veitum um á hvaða framtíðar­væntingum um orku­framboð og flutning megi byggja.

Líkt og Kjarninn hefur áður minnst á mun orku­þörfin hérlendis aukast töluvert ef ríkis­stjórnin á að ná settum markmiðum um orku­skipti á vegum, sjó og í lofti fyrir árið 2040. Aukningin verður svo enn meiri ef gert er ráð fyrir að orku­frekur iðnaður muni halda áfram að vaxa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár