Atvinnuleysi ekki verið minna í Bandaríkjunum í tæp 50 ár

Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum mælist nú 3,7 prósent.

Atvinnu­leysi mælist nú 3,7 prósent í Banda­ríkjunum og hefur ekki mælst minna í tæplega 50 ár, eða frá því árið 1969.

Í september mánuði urðu til 134 þúsund ný störf í Banda­ríkjunum og hefur atvinnu­leysi nú lækkað úr 4 prósent í 3,7 prósent á þremur mánuðum.

Samkvæmt umfjöllun New York Times þá gerir atvinnumála­ráðuneyti Banda­ríkjanna ráð fyrir áfram­haldandi kröftugum hagvexti í Banda­ríkjunum.

Donald Trump Bandaríkja­forseti var fljótur að stökkv til að tísta um málið á Twitter aðgangi sínum, eins og hann hefur gert ítrekað undan­förnu mánuði, en lítið atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum og góðar hagvaxtar­horfur hafa verið honum ofarlega í huga undan­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár