Varaforsetum ASÍ fjölgað í þrjá – Ragnar Þór kemur aftur inn

Vara­forsetum Alþýðu­sambands Íslands verður fjölgað úr tveimur í þrjá.

Vara­forsetum Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ) verður fjölgað úr tveimur í þrjá, að því er fram kemur í tilkynningu frá sambandinu í dag. Þetta var samþykkt á 44. þingi ASÍ sem haldið var í 300 manna fjarfundi í dag.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var einn í framboði fyrir nýja embættið og var hann því sjálf­kjörinn. Hann var áður í miðstjórn ASÍ en sagði sig úr henni fyrr á þessu ári.

Ekki bárust nein mótframboð um embætti forseta ASÍ, 1. vara­forseta né 2. vara­forseta og eru Drífa Snædal, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sólveig Anna Jóns­dóttir því sjálf­kjörin í þau embætti. Þá voru 11 einstaklingar sem kjörnefnd gerði tillögu um, sjálf­kjörnir sem aðalmenn í miðstjórn þar sem engin mótframboð bárust, samkvæmt tilkynningu ASÍ.



Miðstjórn ASÍ 2020-2022 verður því þannig skipuð:

  • Drífa Snædal, forseti ASÍ
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson, Félag Rafeinda­virkja, 1. vara­forseti
  • Sólveig Anna Jóns­dóttir, Efling stéttar­félag, 2. vara­forseti
  • Ragnar Þór Ingólfsson, VR, 3. vara­forseti
  • Hjördís Þóra Sigþórs­dóttir, AFL – starfs­greina­félag
  • Hörður Guðbrandsson, Verkalýðs­félag Grinda­víkur
  • Valmundur Valmundarson, Sjómanna­félagið Jötun
  • Guðmundur Helgi Þórarinsson, Félag vélstjóra og málm­tæknimanna
  • Björn Snæbjörnsson, Eining – Iðja
  • Eiður Stef­ánsson, Félag verslunar og skrifstofu­fólks Akureyri
  • Finnbogi Sveinbjörnsson, Verkalýðs­félag Vestfirðinga
  • Halldóra Sveins­dóttir, Báran - stéttar­félag
  • Hilmar Harðarson, Félag iðn- og tækni­greina
  • Harpa Sævars­dóttir, VR
  • Helga Ingólfs­dóttir, VR

Lofar að berjast fyrir hagsmunum verka- og láglaunafólks

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, óskar Drífu Snædal til hamingju með endur­kjörið á Facebook í dag.

„Einnig óska ég Kristjáni Þórði og Ragnari Þór til hamingju með að hafa verið kjörnir í embætti 1. og 3. vara­forseta ASÍ, sem og öllum meðlimum í nýrri miðstjórn. Og ég þakka innilega traustið sem mér er sýnt til að halda áfram að starfa sem 2. vara­forseti ASÍ. Ég lofa að gera allt sem í mínu valdi stendur til að berjast fyrir hagsmunum verka og láglaunafólks á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár