„Jafnrétti er raunhæft“

Framkvæmda­stjóri UN Women segir Norður­löndin vera mikilvæga fyrirmynd hvað varðar árangur í jafnréttis­málum og að þau séu í lykil­stöðu til að sýna heims­byggðinni að raunhæft sé að ná jafnrétti kvenna og karla að fullu fyrir árið 2030.

Phumzil Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóri UN Women, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, við afhendingu viljayfirlýsingarinnar.
Phumzil Mlambo-Ngcuka, fram­kvæmda­stjóri UN Women, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, við afhend­ingu vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar. Mynd: Forsætisráðuneytið

Ráðherrar jafnréttis­mála á Norður­löndunum undir­rituðu í gær vilja­yfirlýsingu um að leggja áherslu á árangur í jafnréttis­málum við innleiðingu Heims­markmiða Sameinuðu þjóðanna. Ráðherrarnir afhentu Phumzile Mlambo-Ngcuka framkvæmda­stjóra UN Women, yfir­lýsinguna í aðdrag­anda 63. fundar kvenna­nefndarinnar sem hefst í höfðustöðvum Sameinuðu þjóðanna í dag.

Frá þessu er greint á vef Stjórnar­ráðsins í dag.

Í fréttinni segir að Norður­löndin hafi náð góðum árangri á sviði jafnréttis­mála í alþjóð­legum saman­burði og vilji beita áhrifum sínum til að árangur náist á alþjóða­vettvangi. Þau leggi áherslu á náið samstarf við UN Women vegna endurmats á framkvæmda­áætlun Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna frá árinu 1995, sem fram fer á næsta ári. Hvað endurmat hennar varðar telji Norður­löndin meðal annars mikilvægt að beina sjónum að aukinni þátttöku karla í öllu jafnréttis­starfi og að róðurinn gegn kynbundnu ofbeldi verði hertur sem krefst bæði kerfis­lægra breytinga og gagn­rýninnar umræðu um kynja­hlutverk karla og kvenna.

Með undir­ritun vilja­yfir­lýsingarinnar vilja ráðherrar Norður­landanna hvetja önnur aðildar­ríki Sameinuðu þjóðanna til aukins samstarfs á alþjóða­vettvangi í jafnréttis­málum og innleiðingu Heims­markmiða Sameinuðu þjóðanna. Meðal þeirra verkefna sem nýtt verða sem leiðar­vísir er sérstakt átaks­verkefni forsætis­ráðherra Norður­landanna, The Nordic Gender Effect at Work, og öndvegis­setur Norrænu ráðherra­nefndarinnar um norrænar lausnir, sem m.a. hefur beinst að aðgengi að dagvistun, foreldra­orlofi, jafn­launamálum og efnahagslegri vald­eflingu kvenna.

Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmda­stjóri UN Women, sagði Norður­löndin vera mikilvæga fyrirmynd hvað varðar árangur í jafnréttis­málum og að þau væru í lykil­stöðu til að sýna heims­byggðinni að raunhæft sé að ná jafnrétti kvenna og karla að fullu fyrir árið 2030.

„Mig langar að Norður­löndin sýni heiminum að jafnrétti og vald­efling kvenna er markmið sem mögulegt er að ná,“ sagði Phumzile Mlambo-Ngcuka á fundi sínum með ráðherrunum í dag.

Á lista Alþjóða­efnahags­ráðsins yfir ríki þar sem kynja­jafnrétti mælist mest hefur Ísland verið í efsta sæti síðastliðin tíu ár og fylgja hin Norður­löndin þar fast á eftir. Úttekt Alþjóða­efnahags­ráðsins nær til allflestra landa og leggur mat á jafnrétti kynjanna í stjórn­málum, menntun, atvinnu og heil­brigði. Framfarir í jafnréttis­málum eru hins vegar mjög hægar á heimsvísu og benda niður­stöður rannsókna til að það getið tekið marga áratugi að ná fullu jafnrétti karla og kvenna um heim allan og að afar fá ríki muni fyrir árið 2030 ná markmiði um að jafnrétti kynjanna verði tryggt og völd allra kvenna og stúlkna efld, segir í frétt ráðuneytisins.

Í fréttinni kemur enn fremur fram að ráðherrar Norður­landanna leggi mikla áherslu á að #MeToo-hreyfingin verði til þess að sýna fram á að enn sé mikið svigrúm til að gera betur í jafnréttis­málum, bæði á Norður­löndunum og um heim allan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár