Vitneskja um fjögur kynferðisbrotamál var til staðar innan KSÍ

Guðni Bergson, fyrr­verandi formaður KSÍ, veitti villandi upplýsingar um vitneskju sambandsins um kynferðis­brot að mati úttektar­nefndar. Geir Þorsteinsson, fyrr­verandi formaður, er einnig gagn­rýndur.

Sagði ósatt
Sagði ósatt Guðni vissi af frá­sögnum um kyn­ferð­is­brot í ágúst þegar hann neit­aði fyrir að til­kynn­ingar hefðu borist til KSÍ. Mynd: mbl/ Eggert Jóhannesson

Guðni Bergsson, fyrr­verandi formaður KSÍ, veitti villandi upplýsingar í ágúst síðastliðnum þegar hann sagði að KSÍ hefðu ekki borist ábendingar um kynferðis­brot leikmanna íslenska karla­lands­liðsins í knatt­spyrnu. Guðni hafði þá þegar verið upplýstur um ásökun á hendur landsliðs­fyrir­liðanum Aroni Einari Gunnars­syni og Eggerti Gunnþóri Jónssyn, fyrr­verandi lands­liðsmanni. Vitneskja var til staðar innan KSÍ um fjórar frásagnir þar sem leikmenn eða starfs­menn sambandsins hefðu beitt kynferðis­legu ofbeldi.

Þetta kom fram á fundi úttektar­nefndar ÍSÍ sem rann­sakaði viðbrögð og máls­meðferð KSÍ vegna kynferðis­brotamála sem tengjast landsliði Íslands og KSÍ. Í málinu sem tengist Aroni og Eggerti fékk Guðni vitneskju um alvarlegt kynferðis­ofbeldi frá tengda­móður þolanda, sem jafnframt er starfs­maður KSÍ.

Gerðar voru athugsemdir við yfirlýsingar Guðna

Nefndin kemst að þeirri niður­stöðu að auk þessa máls hafi verið vitneskja um þrjú önnur mál þar sem leikmenn eða starfs­menn KSÍ hafi beitt kynbundnu eða kynferðis­legu ofbeldi. Því hafi málflutningur Guðna, þegar hann neitaði fyrir að á borði KSÍ væru frásagnir um kynferðislegt ofbeldi í viðtölum í ágúst, stangast á við stað­reyndir málsins. Stjórnar­fólk, framkvæmda­stjóri KSÍ og starfs­fólk hafi gert verulegar athuga­semdir við þær yfir­lýsingar sem Guðni lét frá sér fara.

Nefndin telur að KSÍ hafi brugðist við í þremur af þessum fjórum málum, með því að senda leikmenn heim út landsliðs­verkefni eða með því að koma því svo fyrir að starfs­menn störfuðu ekki framar fyrir KSÍ. Alls var um að ræða þrjá lands­liðsmenn og tvo starfs­menn en þolendurnir eru fjórir. Þannig hafi ekki fundist vísbendingar um að KSÍ hafi boðið kæranda í máli sem kom til kasta KSÍ í mars 2018 þagnar­skyldu­samning, eða með einhverjum hætti komið að slíku tilboði.

Nýtti almannatengla vegna ásökunar um heimilisofbeldi

Engu að síður telur nefndin ekki vísbendingar um að í formannstíð Guðna hafi verið beitt þöggun eða að atvik beri einkenni nauðgunar­menningar innan KSÍ. Nefndin gerir hins vegar athugasemd við að Geir Þorsteinsson, fyrr­verandi formaður KSÍ, hafi leitað til almanna­tengils árið 2016 í kjölfar þess að honum bárust upplýsingar um að lögregla hefði verið kölluð á heimili lands­liðsmanns vegna grunsemda um heimilis­ofbeldi.

Það er mat nefndarinnar að þrátt fyrir að konur séu í miklum minni­hluta á skrif­stofu KSÍ og í stjórn sambandsins sé ekki hægt að draga þær ályktanir að uppi séu aðstæður sem hamli þátttöku kvenna í starfi sambandsins. Hins vegar starfi KSÍ í alþjóð­legu umhverfi sem sé mjög karllægt. KSÍ hafi með virkum hætti beitt sér undan­farin ár til að jafna aðbúnað karla- og kvenna­landsliða. Þá hafi verið gripið til fjölmargra aðgerða til að auka hlut kvenna innan knattspyrnu­hreyfingarinnar, þá það hafi gengið misjafnlega vel.

Í nefndinni sátu Dr. Hafrún Kristjáns­dóttir sálfræðingur, Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðs­dómari, sem jafnframt var formaður nefndarinnar og Rán Ingvars­dóttir lögfræðingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Já hann laug ,hópnauðgun ekki kynferðisbrot hvar er samkendin siðferðið?
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Villandi ? Hann LAUG blákallt !!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár