Helgi Sig hættur að teikna fyrir Morgunblaðið

Skopmynda­teiknarinn Helgi Sig er hættur að teikna skop­myndir fyrir Morgun­blaðið eftir að teikning hans þótti ekki birtingarhæf. Hann hefur teiknað fyrir blaðið í yfir 11 ár.

Margar teikningar Helga hafa verið umdeildar í gegnum tíðina.
Margar teikn­ingar Helga hafa verið umdeildar í gegnum tíð­ina. Mynd: Skjáskot/Morgunblaðið

Helgi Sig skopmynda­teiknari Morgun­blaðsins er hættur að teikna myndir fyrir blaðið að eigin frumkvæði, samkvæmt heimildum Kjarnans. Ástæðan ku vera sú að hann hafi verið beðinn um að tóna sig niður eða skila annarri mynd í tvígang.

Hann segist í samtali við Kjarnann ekki vilja tjá sig um málið. „Ég vil ekki svara neinu um mín atvinnumál,“ segir hann. Kjarninn beindi fyrir­spurn til ritstjóra Morgun­blaðsins, Haralds Johannessen, þar sem hann var spurður út í málið en henni hefur ekki enn verið svarað.

Á vefsíðu Helga kemur fram að hann sé búinn að teikna „pólitískar satíru­teikningar“ fyrir Morgun­blaðið síðan í maí árið 2010.

Síðasta teikningin sem hann gerði fyrir Morgun­blaðið birtist þann 14. desember síðastliðinn. Daginn eftir birtist mynd eftir hinn skopmynda­teiknara blaðsins, Ívar, en þann 16. desember var mynd eftir ljós­myndara Morgun­blaðsins, Kristinn Magnússon, á blaðsíðu 8 við hliðina á Staksteinum þar sem skop­myndir birtast venjulega.

Samkvæmt heimildum Kjarnans var Helgi beðinn í byrjun nóvember síðastliðnum að breyta teikningu eða skila inn annarri vegna þess að sú sem hann teiknaði þótti ekki birtingarhæf. Hann gerði það ekki og var ljósmynd af ketti sett í staðinn við hliðina á Staksteinum. Þetta gerðist síðan aftur þegar hann skilaði inn teikningu fyrir blaðið sem kom út 16. desember.

Ýmsir hneykslast

Helgi hefur verið mjög umdeildur teiknari í gegnum tíðina. Vísir fjallaði meðal annars um umdeilda teikningu Helga í október 2018 en þar teiknaði hann Margréti Kristínu Blöndal, eða Möggu Stínu eins og hún er oft kölluð, en hún var á þessum tíma nýlega tekin við formennsku í Leigjenda­samtökunum. Á myndinni sagði: „Risaeðla nýr formaður leiðinda­samtakanna.“ Þá lét hann Möggu Stínu segja: „Leigu­markaðurinn er fíaskó. Maður verður að reyna að poppa þetta eitthvað upp.“

Töluverða gagnrýni mátti heyra í kjölfar birtingar en á Facebook kallaði Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­verandi formaður Samfylkingarinnar, teikninguna „ömurð“. Helga Vala Helga­dóttir þingmaður Samfylkingarinnar sagði að þetta væri „vandræðaleg lágkúra“ og Ragnhildur Sverris­dóttir, þáverandi aðstoðar­kona Björgólfs Thors athafna­manns, sagði: „Þetta er hinn teiknandi fingur bláu handarinnar, skilst mér.“

Helgi teiknaði einnig umdeilda mynd síðasta sumar þegar ásakanir um kynferðis­ofbeldi á hendur Ingólfi Þórarins­syni, eða Ingó Veðurguði, spruttu fram á samfélags­miðlum. Þá teiknaði hann Ingó fyrir framan veðurkort og undir myndinni stóð: „Öfgar ákvarða sekt uns sakleysi er sannað.“ Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata var meðal þeirra sem gagnrýndi myndina en hann sagði á Twitter: „Og Mogga­skrípó sem langbest væri að henda.“

Hægt er að lesa umfjöllun DV um nokkrar myndir Helga hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár