Með kótilettu í kokinu - Druslugangan 2015

Á að troða matnum ofan í fólk ef það hættir við að borða hann? Hvers vegna ætti ekki að vera hægt að hætta við kynlíf án þess að verða fyrir ofbeldi?

Stundin birtir einn kafla á dag úr bók Þórdísar Elvu Þorvalds­dóttur, Á mannamáli, sem miðar að því að eyða rang­hugmyndum um kynferðis­ofbeldi. Viðfangs­efni bókarinnar er kynbundið ofbeldi, það er ofbeldi þar sem meirihluti brotaþola eru konur og miðast dæmin við það. Höfundur tekur þó fram að kynferðis­ofbeldi getur verið beitt af öllum kynjum og beinst gegn fólki af öllum kynjum.​

Háttalag

Í apríl 2007 birti Morgun­blaðið niður­stöður úr skýrslu Amnesty International og upplýsinga­miðstöðvar fyrir karla í Noregi. Þar kom fram að „annar hver norskur karlmaður telur að daður­gjarnar konur geti sjálfum sér um kennt ef þeim er nauðgað.“ Síðar í sömu frétt stóð: „Töldu 48% þátt­takenda í könnun að konur beri að öllu leyti eða hluta ábyrgð á því að þeim sé nauðgað ef þær hafa daðrað opinskátt áður en þær verða fyrir árás.“ 

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Þórdís Elva Þorvalds­dóttir Bókin Á mannamáli var tilnefnd til Íslensku bókmennta­verð­launanna 2009 og Samfélags­verð­launanna. Hún vann Fjöru­verðlaunin og hlaut Jafnréttis­viðurkenningu Stígamóta

Enn og aftur verður afstætt hugtak á vegi okkar. Það sem sumir telja til daðurs finnst öðrum vera sjálfsögð kurteisi. Konur sem eru bros­mildar að upplagi gætu talist daðra í augum karlmanna sem eru óvanir slíku. Konur sem eru ófeimnar og eiga auðvelt með að hefja samræður við ókunnuga gætu komið sumum fyrir sjónir sem mjög daður­gjarnar konur. Stundum er fólk hreint ekki að daðra þótt einhverjum öðrum finnist það. Frænka mín á sögu af slíku. Hún fór eitt sinn á skemmtun, þá orðin gift kona með barn. Eigin­maður hennar var fjarri góðu gamni en hún vildi engu að síður dansa. Maður nokkur kom aðvífandi og dansaði við hana nokkur lög. Þegar ballinu lauk kvaddi frænka mín manninn og þakkaði honum fyrir. Hann hafði greini­lega misskilið hvað var á seyði og, eins og frænkan orðaði það, „gekk hann nánast berserks­gang“. Honum hafði augljós­lega fundist hún vera að daðra við sig með dansinum, þótt það hafi komið henni í gersam­lega opna skjöldu. Hún hafði alls ekkert slíkt í huga. 

Þegar kynlíf er annars vegar hefur fólk óskertan rétt á að draga samþykki sitt tilbaka hvenær sem er

Þegar kynlíf er annars vegar hefur fólk óskertan rétt á að draga samþykki sitt tilbaka hvenær sem er og án nokkurs fyrirvara. Þetta gildir algerlega burtséð frá hvort viðkomandi hafi daðrað opinskátt, hæfilega eða ekki neitt. Það gildir líka burtséð frá því hvort líkamleg atlot hafi átt sér stað eða ekki. Það er ekki ólöglegt að missa lystina. Hins vegar er ólöglegt að virða það ekki ef rekkju­nautur manns dregur samþykki sitt tilbaka. 

Aðrar frum­hvatir, að kynlífi undan­skildu, eru þörfin fyrir hvíld, næringu og úrgangs­losun. Sami skýlausi réttur til ákvarðana­töku gildir fyrir allar þessar hvatir. 

Maður nokkur kemur heim úr vinnunni eftir erfiðan dag og segir konu sinni að hann sé svangur. Konan bregst lipurlega við og hefst þegar handa við að elda staðgóðar lamba­kótilettur. Þegar rjúkandi maturinn er kominn á borð fyrir manninn, snýst honum skyndi­lega hugur og hann kveðst ekki lengur vera svangur. Ef til vill væri skiljanlegt að konunni myndi sárna þessi hegðun. En væru ásættanleg viðbrögð hjá henni að bretta upp ermarnar, halda manninum föstum og þvinga kótilettunni ofan í kokið á honum? 

Kona nokkur biður um að fá að gista hjá vinafólki sínu eftir matarboð þar sem vín var haft um hönd. Vina­fólkið játar því og býr um konuna á sófanum. Þegar hún gerir sig líklega til að halla sér, fyllist hún skyndi­lega löngun að komast í sitt eigið rúm og ákveður að panta sér leigubíl heim. Væru þá eðlileg viðbrögð hjá vina­fólkinu að taka konuna hálstaki svo hún missti meðvitund og svæfi úr sér á sófanum? Ef ég bið um að fá að nota salernið heima hjá vinkonu minni, en hætti svo við, mætti hún ráðast á mig, rífa mig úr að neðan og skella mér á setuna? Fróðlegt væri að athuga hvort 48% norskra karlmanna fyndist í lagi að svipta fólk réttinum yfir eigin frum­hvötum ef búið er að gefa í skyn hungur, þreytu eða þörf fyrir úrgangs­losun. Staðreyndin er sú að það gildir einu hversu eindreginn vilji var gefinn í skyn, það má alltaf hætta við iðkun kynlífs. Sé sá réttur ekki virtur er um nauðgun að ræða. Svo einfalt er það. 

Háttalag á borð við daður skiptir engu máli. 

Daður er ekki það sama og samþykki til kynmaka. 

Kynmök án samþykkis er nauðgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár