Nýr veruleiki: Höfuðborgarbúar með útsýni yfir eldgos

Jarð­eldurinn í Geldingadal er orðinn vel sýnilegur af höfuð­borgar­svæðinu. Jarð­fræðingar velta upp mögu­leikanum á lang­varandi eldgosi.

Gosið í nótt
Gosið í nótt Mynd tekin frá Sel­tjarn­ar­nesi. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Íbúar á höfuð­borgar­svæðinu og víða á Reykjanesi búa nú við útsýni á eldgos, sem varað getur til lengri eða skemmri tíma. Í kvöld og nótt hefur bjarminn af gosinu sést vel þaðan sem útsýni gætir í átt að gossvæðinu, til dæmis frá Ægissíðu í Vesturbæ Reykja­víkur, Öskjuhlíð, Seltjarnarnesi og svo Hafnar­firði sem liggur næst gosstöðvunum.

Í gær jókst virkni í aukagíg sem liggur við hlið aðal­gígsins í Geldingadal. Ekki er ljóst hvort heildar­gosflæði hafi aukist. Sýnileiki gossins ætti þó að hafa aukist við að gígbarmarnir hækka og skýjahulu hefur létt.

Jarð­fræðingar hafa í vaxandi mæli velt upp mögu­leikanum á því að gosið gæti varað lengi. Páll Einarsson sagði í samtali við Rúv í gær að kviku­flæði eins og það sem berst sem hraun­straumur upp í Geldingadal geti haldið gospípu opinni í áratugi. 

„Þetta gæti orðið langt gos,“ sagði Freysteinn Sigmundsson jarð­fræðingur í fréttum Rúv í kvöld. Þorvaldur Þórðarson jarð­fræðingur sagði í samtali við mbl.is að gosið í Geldingadal hefði líkindi með eldgosi á Havaí sem varði í 32 ár. Hann taldi gosið hafa færst í aukana í gær.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu af gossvæðinu í vefmyndavél Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár