Geldingagígur
Geld­inga­gígur Eftir allt saman hefur gosið í Geld­inga­dal verið gjöf­ulla og frjósam­ara en margir vís­inda­menn bjugg­ust við í upp­hafi, þegar það var kallað „ræf­ill“. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Geldingagígur ekki lengur ræfill og kominn með félaga

Gosið í Geldinga­dölum gæti verið komið til að vera til lengri tíma. Efna­samsetning bendir til þess að það komi úr möttli jarðar og líkist fremur dyngju­gosi heldur en öðrum eldgosum á sögulegum tíma.

Gígurinn í Geldinga­dölum við Fagradals­fjall hélt áfram að taka á sig mynd í dag. Þegar Stundin flaug yfir gossvæðið var enn fjöldi fólks á staðnum þótt rýma ætti vegna ótta við gasmengun.

Svo virðist sem gosið hafi verið vanmetið í upphafi.

Stundin flaug með Páli Stef­ánssyni ljós­myndara og Sölva Axelssyni flugmanni yfir gossvæðið skömmu áður en rýma átti svæðið vegna þess sem talið var að yrði lífshættulegr gasmengun. Þá voru enn hundruð manna við hraun­jaðarinn. Þegar mest lét teygði bílaröðin á Suður­strandar­vegi sig um tvo kílómetra.

Fjöl­menniÁ milli klukkan sex og sjö í kvöld var fjöldi fólks við­staddur stein­snar frá hraunjaðr­inum.

„Ræfill“ rís

Sýn í gígKvikan mallar innan vel mót­aðra gíg­bar­manna.

Þegar gosið hófst síðasta föstudags­kvöld sagði Magnús Tumi Guðmundsson jarð­fræðingur að það væri „óttalegur ræfill“ og Páll Einarsson jarð­fræðingur taldi það ræfilslegt. Þótt það hafi látið lítið yfir sér fara í upphafi og verið spáð lítilli reisn og úthaldi er gígurinn nú orðinn tugir metrar að hæð og er komin upp umræða meðal jarð­vísinda­manna um að hugsanlega sé um afar sérstakt gos sé að ræða.

Það hefur ekki gosið á Fagradals­svæðinu í sex þúsund ár og samkvæmt Magnúsi Tuma Guðmunds­syni jarð­fræðingi hefur ekki gosið með svo frum­stæðri kviku í sjö þúsund ár. Hún er talin eiga rót sína að rekja á 15 til 17 kílómetra dýpi, úr möttli jarðar, og er nú talið hugsanlegt að um lang­varandi flæðigos geti verið að ræða, svokallað dyngjugos.

Í Kast­ljósinu á Rúv í kvöld ræddu Sæmundur Ari Halldórsson jarð­fræðingur og Páll Einarsson um að efna­samsetning kvikunnar sem streymir upp í Geldinga­dölum líkist mun meira því sem gerist í stórum dyngju­gosum en gosum á sögulegum tíma. Sæmundur sagði að „sláandi skyld­leiki“ með stórum dyngju­gosum, til dæmis Þráins­skildi sem teygir sig skammt frá Keili að Vogum á Vatnsleysu­strönd, og Sandfellshæð vestast á Reykjanesi, sem runnu skömmu eftir ísöld, eða á nútíma. Einnig eru þó dæmi um smærri hraun með þennan skyld­leika.

Þorvaldur Þórðarson jarð­fræðingur segir í samtali við mbl.is í kvöld að líkindi séu með Geldinga­gosinu og eldgosi á Havaí, sem varði í 32 ár.

TvígígarTveir gígar sjást hér hlið við hlið.
Úr fjar­lægðHér sést virknin í auka­gígnum vel.

Geldingsbróðir myndast

Í dag urðu viðstaddir þess áskynja að kraftur færðist í annan gíg, skammt frá aðal­gígnum. Ásýnd gíganna er hverful og ljóst að ef gosið heldur áfram mun núverandi mynd breytast. Ef um dyngjugos er að ræða myndast að líkindum víðfeðmt hraun með minna en 8 gráðu halla. Talið er að eina til tvær vikur taki að fylla dalinn af hrauni.

Seinast gaus á Reykja­nesskaga fyrir um 780 árum og hafa gos komið í löngum hrinum. Eftir að hafa greint efna­samsetningu hraunsins eru jarð­vísindamenn að endurmeta upphaflegt mat sitt á því að um smágos sé að ræða. „Þetta gæti orðið langt gos,“ sagði Freysteinn Sigmundsson jarð­fræðingur í fréttum Rúv í kvöld.

Mikil flug­umferð hefur verið um svæðið og bíða flugvélar í röðum eftir leyfi til að svífa yfir gossvæðinu.

Göngu­fólk ferGöngu­stígur hefur mynd­ast og er um 7 kíló­metra leið fram og til baka frá Suð­ur­strand­ar­vegi.
Flug­um­ferðinHér sést TF-DÍS svífa yfir gossvæð­inu og sunnar sést þyrla.
Skammt frá höf­uð­borg­inniÁ mynd­inni sést gossvæðið með Keili í bak­sýn. Efst til vinstri sést álverið í Straums­vík. Göngu­leiðin að eld­stöð­inni er til hægri og neðan við gíg­inn er hryggur þar sem björg­un­ar­sveitir lok­uðu fyrir ferðum almenn­ings, enda hafði fólk hætt sér að sprungum sem eru sýni­legar í jörð­inni og rýkur upp úr.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið undanfarið ár