Stórfelld fjársvik fasteignamóguls komin inn á borð dómstóla

Fjármála­stjóri American Reality Capital Properties er sakaður um fjársvik með því að falsa rekstrar­tölu fyrir­tækisins, og þar með skaða fjárfesta.

Fyrr­verandi fjármála­stjóri (CFO) fasteigna­félagsins American Reality Capital Properties var hand­tekinn á heimili sínu í Pennsylvaníu síðastliðinn fimmtudag og ákærður síðar sama dag fyrir að fasla rekstrar­afkomu­tölu félagsins. Hann bætist þar með í hóp stjórn­enda félagsins sem leiddir hafa verið fyrir dómara vegna fjársvika félagsins.

Preet Bharara, saksóknari á Manhattan, sagði á blaðamanna­fundi að lygar fyrir­tækja um rekstrar­afkomu­tölur væru mannanna verk, og þær hefðu miklar afleiðingar fyrir fjárfesta sem tækju ákvarðanir á grund­velli þeirra gagna sem væru kynntar. „Það er mikilvægt að ákæra í þessum málum og leiða þau til lykta,“ sagði Bharara enn fremur.

Brian Block, forstjóri fyrir­tækisins og þekktur fasteigna­mógull á Manhattan, hefur einnig verið ákærður og endur­skoðandi félagsins, Lisa McAllister, játaði sök, þegar spjótunum var beint að henni í dómsmáli í júní. Hún var sökuð um að hylma yfir raun­verulega stöðu félagsins, sem féll eins og spilaborg haustið 2014 en fall á markaðs­virði þess nam um fjórum milljörðum Bandaríkja­dala, eða um 500 milljörðum króna, á örfáum dögum.

Strax í kjölfarið hófu yfirvöld að rannsaka félagið, eftir mikinn þrýsting frá fjár­festum, sem töldu kynningar stjórn­enda félagsins á fjárhags­legum styrk þess ekki hafa verið í samræmi við raun­verulega stöðu þess.

Í New York Times segir að ekki séu enn komin öll kurla til grafar, enda hafði fall fyrir­tækisins víðtækar afleiðingar fyrir fjárfesta, bæði á hluta­bréfa- og skuldabréfa­markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár