Framkvæmd upplýsingalaga óviðunandi og lakari en í nágrannalöndunum

Umboðs­maður Alþingis segir þörf á hug­ar­fars­breyt­ingu og auk­inni þekk­ingu innan stjórn­sýsl­unnar þegar kemur að beit­ingu reglna um aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum.

Upplýsingamál í ólagi
Upp­lýs­inga­mál í ólagi Í nýrri árs­skýrslu umboðs­manns fjallar hann meðal ann­ars um hvernig stjórn­völdum eru mis­lagðar hendur við beit­ingu upp­lýs­inga­laga og vekur athygli á því að máls­með­ferð­ar­tími úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sé mun lengri hér­lendis en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þá kemur fram að mennta­mála­ráðu­neytið hafi van­rækt að svara fyr­ir­spurnum umboðs­manns og fundað hafi verið um málið. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

Íslensk stjórn­völd eiga langt í land með að beita reglum um aðgang að gögnum með við­un­andi hætti og í anda þess sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þörf er á við­horfs­breyt­ingu og auk­inni þekk­ingu á upp­lýs­inga­lögum hjá starfsmönnum stjórn­sýsl­unnar. Þetta er mat umboðs­manns Alþingis, en hann fjallar um málið í árs­skýrslu sinni fyrir 2018.

Nýlegar breyt­ingar sem gerðar voru á reglum um máls­með­ferð­ar­tíma úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál eru fjarri sam­bæri­legum við­miðum sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. Á Íslandi er miðað við 150 daga máls­með­ferð hja úrskurð­arnend um upp­lýs­inga­mál meðan önnur nor­ræn ríki miða að jafn­aði við fáeina daga eða vikur.

„Sú áhersla tekur mið af mik­il­vægi og þörf þeirra sem óska eftir aðgangi að gögnum hjá stjórnvöldum, t.d. fjölmiðla og aðila sem þurfa á gögnunum að halda vegna sam­bæri­legra mála, á að fá sem fyrst aðgang að umræddum gögnum eða geta fylgt eftir synj­unum á slíkum aðgangi,“ skrifar umboðs­maður. 

„Innan stjórnsýslunnar er ekki til staðar nægi­leg þekk­ing á þeim reglum sem gilda um aðgang að gögnum hjá stjórnvöldum“

Hann seg­ist hafa velt því fyrir sér hvort sú leið löggjafans að fela sjálfstæðri úrskurð­ar­nefnd að fjalla um þessi mál í stað æðra stjórnvalds á hverju sviði eigi hugs­an­lega þátt í hversu erf­ið­lega hefur gengið að koma fram­kvæmd þess­ara mála í við­un­andi horf.

„Ég tel meg­inástæðu þess hversu hægt hefur gengið í að þoka málum í þá átt megi að minnsta kosti að hluta rekja til þess að innan stjórnsýslunnar er ekki til staðar nægi­leg þekk­ing á þeim reglum sem gilda um aðgang að gögnum hjá stjórnvöldum. Við athug­anir mínar á þessum málum tel ég mig merkja að þetta sé ekki bundið við lægra sett stjórnvöld heldur eigi þetta einnig við um til dæmis ráðuneyti og sveit­arfélög.“

Árs­skýrsla umboðs­manns er óvenju efn­is­mikil í ár og kennir þar ýmissa grasa. Í kafla um ráðn­ing­ar­mál hjá hinu opin­bera víkur umboðs­maður að því að hann hafi í auknum mæli orðið þess var að stjórnvöld sem fái einka­að­ila til ráðgjafar í ráðning­armálum feli einka­að­il­anum að svara beint beiðnum umsækj­enda um aðgang að gögnum málsins. Hafa verði í huga að starfs­menn ráðning­ar­fyr­ir­tækja skorti oft þá þekk­ingu sem þarf til að leysa með réttum hætti úr stjórnsýslumálum auk þess sem þeir eru almennt ekki bærir til að taka ákvarð­anir eða bera ábyrgð á slíkum málum. „Er mik­il­vægt að stjórnvöld sem fara með ráðning­ar­valdið tryggi að beiðnir um aðgang að gögnum séu settar í réttan laga­legan far­veg og afgreiddar í sam­ræmi við lög,“ segir hann. 

Umboðs­maður áréttar að í málum vegna ráðninga þurfi að hafa í huga að ráðgjöf utan­að­kom­andi aðila, svo sem einka­fyr­ir­tækja sem sérhæfa sig í ráðning­armálum, leysi ekki stjórnvaldið sjálft undan þeim skyldum sem á því hvíla við með­ferð málsins á grund­velli laga og óskráðra meg­in­reglna stjórnsýsluréttar. Þrátt fyrir að umsóknir um opin­ber störf séu sendar til einka­fyr­ir­tækis sem aðstoðar við að leggja mat á umsækj­endur beri stjórnvaldið áfram ábyrgð á að gætt sé að við­eig­andi réttarörygg­is­reglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár