Arna minnkar plastnotkun um 85 prósent

Arna, laktósa­fría mjólkur­vinnslan í Bolungarvík, hefur tekið í notkun umhverfis­vænni umbúðir. Með breytingunni minnkar Arna plast­notkun um 85 prósent miðað við hefð­bundnar jógúrt eða skyrdósir.

Hálfdán Óskarsson, framkvæmdarstjóri Örnu.
Hálfdán Ósk­ars­son, fram­kvæmd­ar­stjóri Örnu. Mynd: Aðsend mynd

Arna, laktósa­fría mjólkur­vinnslan í Bolungarvík, hefur tekið í notkun umhverfis­vænni umbúðir fyrir þykku ab-mjólkina sína. Pappi er aðal hráefnið í dósinni sjálfri og lokið verður úr áli, auk þess sem að plast­skeið og auka plastlok eru kvödd. Þannig minnkar Arna plast­notkun um 85 prósent miðað við hefð­bundnar jógúrt eða skyrdósir.

Á næstu mánuðum hyggst fyrir­tækið færa alla jógúrt og skyr fram­leiðsluna sína í slíkar pappa­umbúðir auk þess sem fyrir­tækið ætlar að skipta öllum plast­bökkum út fyrir pappa­bakka.

„Okkar stefna er að starfa í eins mikilli sátt við umhverfið og okkur er kostur. Nýju umbúðirnar okkar eru að fullu endur­vinnanlegar, þær fara með öðrum pappa í endur­vinnslu þótt að í þeim sé nettur plast kross til styrkingar,“ segir Hálfdán Óskarsson, framkvæmdar­stjóri Örnu.

Hrist upp í mjólkurvörumarkaðinum

Arna hóf fram­leiðslu á laktósa­fríum mjólkur­vörum í Bolungarvík fyrir sex árum og hefur vöxtur fyrir­tækisins verið mikill frá þeim tíma.

Alls sögðust 40 prósent nota vörur frá Örnu að staðaldri í nýlegri könnun MMR. Jafnframt skaust fyrir­tækið beint í fimmta sæti yfir þau fyr­ir­tæki sem Íslend­ingar mæla helst með í könnun MMR en fyr­ir­tækið var í fyrsta skipti mælt í ár.

Í greiningu MMR segir að það veki athygli að hærra hlutfall viðskipta­vina segist versla reglulega hjá Örnu en hjá nokkru öðru fyr­ir­tæki á lista þeirra fimm efstu. „Það er því nokkuð ljóst að lands­menn hafa heldur betur tekið vel við til­raunum þess­arar ungu og efni­legu mjólk­ur­vinnslu til að hrista upp í mjólk­ur­vöru­mark­aðn­um,“ segir í greiningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár