Arna fimmta vinsælasta fyrirtækið

40 pró­sent Íslend­inga segj­ast nú nota vörur frá Örnu að stað­aldri, sam­kvæmt könnun MMR.

Mjólk­ur­vinnslan Arna í Bol­ung­ar­vík skýst beint í fimmta sæti lista MMR yfir þau fyr­ir­tæki sem Íslend­ingar mæla helst með en fyr­ir­tækið var í fyrsta skipti mælt í ár. 40 pró­sent Íslend­inga segj­ast nú nota vörur frá Örnu að stað­aldri.

Þetta kemur fram í nýj­ustu mæl­ingum MMR á með­mæla­vísi­tölu 135 þjón­ustu- og fram­leiðslu­fyr­ir­tækja.

Með­mæla­vísi­talan byggir á Net Promoter Score aðferða­fræð­inni en með­mæla­vísi­talan byggir, líkt og nafnið bendir til, á mæl­ingum á því hversu lík­legir ein­stak­lingar eru til að mæla með, eða hall­mæla, fyr­ir­tækjum sem þau hafa átt við­skipti við.

Fjarð­ar­kaup var efst á list­anum annað árið í röð. Í til­kynn­ingu MMR segir að greini­legt sé að versl­unin hafn­firska kunni að höfða til við­skipta­vina sinna en fyr­ir­tækið hafi hvað eftir annað skákað stærri versl­un­ar­keðjum og hafi verið á meðal 10 efstu fyr­ir­tækja í með­mæla­vísi­töl­unni frá því að mæl­ingar hófust árið 2014.

„Þá vekur sér­staka athygli að Arna rýkur upp lista árs­ins og hafnar í fimmta sæti en 40 pró­sent svar­enda könn­un­ar­innar kváð­ust reglu­lega versla vörur fyr­ir­tæk­is­ins, hærra hlut­fall við­skipta­vina en hjá nokkru öðru fyr­ir­tæki á lista þeirra fimm efstu. Það er því nokkuð ljóst að lands­menn hafa heldur betur tekið vel við til­raunum þess­arar ungu og efni­legu mjólk­ur­vinnslu til að hrista upp í mjólk­ur­vöru­mark­aðnum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram hjá MMR að fleiri smærri fyr­ir­tæki skáki ris­unum í atvinnu­greinum sínum og megi þar nefna nýliða Hreyf­ingar og Reebok Fitness sem koma með látum inn á lista efstu fyr­ir­tækja með­mæla­vísi­töl­unnar. „Það er greini­legt að lík­ams­rækt á stóran sess í hjörtum lands­manna en Hreyfing fylgir fast á hæla Fjarð­ar­kaups í öðru sæt­inu og Reebok Fitness vermir það níunda.“

Breyting er á vin­sældum elds­neytis- og smá­sölu­þjón­ustu Costco en alþjóð­legi versl­un­ar­ris­inn var þetta árið bæði mældur í atvinnu­greinum mat­vöru­versl­ana og olíu­fé­laga eftir að hafa ein­ungis verið fyrir í flokki mat­vöru­versl­ana síð­ustu tvö ár. Nokkurn mun er að finna á vel­gengni fyr­ir­tæk­is­ins í þessum tveimur flokkum en elds­neyt­is­þjón­usta Costco kemur sér fyrir í þriðja sæti með­mæla­vísi­töl­unnar í ár, all­nokkru ofar en smá­vöru­verslun Costco sem fellur af lista tíu efstu fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár