Vanræksla að kæra ekki Brúnegg til lögreglu - vill stofna sérstaka dýralögreglu

Meðferð Brúneggja á hænum er alvarlegt brot á lögum um velferð dýra sem Matvæla­stofnun hefði átt að kæra til lögreglu fyrir mörgum árum. Þetta segir Alexandra Jóhann­es­dóttir lögfræðingur sem segir stofnunina máttlausa og vanhæfa til að sinna eftirlits­hlutverki sínu. Hún hefur talað fyrir því að sett verði á fót dýra­lögregla á Íslandi.

Frá hænsnabúi Brúneggja
Frá hænsna­búi Brú­neggja Áhorf­endum á Kastljós á RÚV var brugðið að sjá hversu slæmur aðbún­aður hænsna í búum Brú­neggja var. Mynd: Rúv

Strax þegar ljóst var hversu slæmur aðbúnaður hænsna Brúneggja er hefði Matvæla­stofnun átt að kæra stjórn­endur fyrir­tækisins til lögreglu. Í kjölfarið hefði verið hægt að svipta þá aðila umráða­rétti yfir dýrum með dómi, sem hefði verið eðlilegt í svona tilviki og hefði útilokað að umráða­aðilar þessara dýra settu á laggirnar þriðja eggjabúið þrátt fyrir ítrekuð, sönnuð og gríðar­lega alvarleg brot.  Þetta segir Alexandra Jóhannesdóttir lögfræðingur sem hefur rannsakað brot á lögum um velferð dýra og eftir­fylgni með þeim. „Þeir sem fara svona með dýr eiga ekki að fá leyfi til að sýsla með dýr til langs tíma. Það á að taka þann rétt af þeim. Það hefði raun­verulega áhrif á þeirra lífs­viðurværi. Með því móti hefðu dýra­velferðarlög og -reglu­gerðir fælingar­mátt.“

Dæmið um Brúnegg bendi til þess að það séu engar alvöru afleiðingar af því að brjóta lög og fara illa með dýr. „Jú, fram­leiðendurnir fengu dagsektir. En aðilar sem eru að hagnast um nokkur hundruð milljónir í arð á ári geta alveg lifað við þær.“

Það eru bræðurnir Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson sem eiga hvorn sinn helminginn í Brúneggjum ehf. í gegnum einka­hlutafélög sín. Félög þeirra högnuðust um tæpar hundrað milljónir króna hvort árið 2015, sama ár og aðbúnaður á eggjabúum þeirra var það slæmur að loka átti búunum, eins og kemur fram í frétt Stundarinnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár