Trump vantar einungis fjóra kjörmenn en hávær mótmæli skyggja á gleðina

Donald Trump hlaut 76 prósent atkvæða í forkosningum Repúblíkanaflokksins í Washington-ríki sem fram fóru í nótt. Honum vantar nú einungis fjóra kjörmenn til að tryggja sér þann fjölda sem þarf til að fá útnefningu flokksins fyrir forseta­kosningarnar í nóvember.

Sigurinn kom í kjölfar þess að Trump mældist í fyrsta sinn í gær með meira fylgi en Hillary Clinton, væntanlegur mótframbjóðandi hans í forseta­kosningunum, samkvæmt meðaltali skoðana­kannana sem Real Clear Politics tekur saman. Þar mældist Trump með 43,4 prósent fylgi en Clinton með 43,2 prósent.

Það skyggði nokkuð á árangur Trump í nótt að fjöldi mótmælenda kom saman fyrir utan framboðs­fund sem hann hélt í Albuqerque í Nýja-Mexíkó. Þeir köstuðu grjóti og öðru lauslegu að lögreglu auk þess sem mótmælendurnir báru skilti þar sem Trump var atyrtur eða gagn­rýndur. Ekki sló í brýnu milli mótmælendanna og stuðnings­manna Trump þótt litlu hefði mátt muna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár