3,8 milljarða stjórnvaldssekt lögð á þrotabú WOW air

Umhverfis­stofnun hefur lagt um 3,8 milljarða stjórnvalds­sekt á þrotabú WOW Air vegna vanrækslu flug­rekanda á að standa skil á losunar­heimildum fyrir árið 2018. Um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfis­stofnun hefur lagt á.

Umhverfis­stofnun hefur lagt stjórnvalds­sekt á þrotabú flug­félagsins WOW Air að upphæð 3.798.631.250 króna vegna vanrækslu flug­rekanda á að standa skil á losunar­heimildum fyrir árið 2018. Um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfis­stofnun hefur lagt á. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Umhverfis­stofnun.

Í tilkynningunni segir að síðasti dagur til þess að gera upp losunar­heimildir var 30. apríl 2019 en á þeim tíma­punkti hafði engum losunar­heimildum verið skilað vegna losunar WOW Air undan­gengið ár.

Ísland er aðili að viðskipta­kerfi Evrópu­sambandsins um losunar­heimildir (ETS) sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsa­lofttegunda frá iðnaði og flugi. Megin­reglan er að sá borgi sem mengar. Þeir aðilar sem losa meira en áætlað var þurfa að kaupa sér fleiri losunar­heimildir.

Samkvæmt Umhverfis­stofnun er fjárhæð stjórnvalds­sektarinnar lögbundin og samsvarar 100 evrum í íslenskum krónum vegna hverrar losunar­heimildar, en eitt tonn af CO2 jafn­gildir einni losunar­heimild. Samkvæmt vottaðri losunar­skýrslu flug­rekandans WOW Air var heildar­losun ársins 2018 278.125 tonn CO2. Til viðbótar við sektina þarf einnig að standa skil eða kaupa nýjar losunar­heimildir sem samsvara losun frá rekstri flug­rekanda á árinu 2018.

Stjórnvalds­sektin var lögð á í samræmi við 43. gr. laga nr. 70/2012 um lofts­lagsmál og tilskipun Evrópu­þingsins og ráðsins 2003/87/EB. Í tilkynningunni segir að þrotabú WOW Air hafi rétt á að skjóta ákvörðuninni til umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku hennar.

Flug­félagið WOW air hætti starfsem þann 28. mars síðastliðinn og var í kjölfarið tekið til gjaldþrota­skipta. Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson eru skipaðir skipta­stjórar í þrotabúi flug­félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár