Heildarkostnaður vegna viðgerða á húsnæði fjármála- og efnahagsráðuneytisins 1.420 milljónir

Fram­kvæmdir við end­ur­nýjun á Arn­ar­hvoli hófust árið 2013 og standa þær enn yfir. Kostn­aður vegna þeirra áfanga sem lokið hefur verið við nemur sam­tals um 860 millj­ónum króna. Áætlaður kostn­aður vegna síð­asta áfang­ans er um 560 millj­ónir króna.

Arnarhvoll við Lindargötu
Arn­ar­hvoll við Lind­ar­götu Mynd: stjórnarráðið

Heild­ar­kostn­aður vegna við­gerða á hús­næði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins mun verða í kringum 1.420 millj­ónir króna en kostn­aður þeirra áfanga sem lokið hefur verið við nemur sam­tals um 860 millj­ónum króna á verð­lagi í októ­ber síð­ast­liðnum. Unnið er að þriðja og síð­asta áfanga heild­ar­fram­kvæmd­ar­innar, sem eru inn­an­húss­fram­kvæmdir við aust­ur­hluta 2. og 3. hæðar húss­ins. Áætlaður kostn­aður vegna þessa síð­asta áfanga er um 560 millj­ónir króna. Gert er ráð fyrir að þessum loka­á­fanga ljúki á seinni hluta árs­ins 2019.

Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni um við­gerð­ar­kostnað ráðu­neyt­is­ins sem birt­ist í dag á vef Alþingis.

Fram­kvæmdir við end­ur­nýjun á Arn­ar­hvoli hófust árið 2013 og standa þær enn yfir. Þær fela í sér alls­herjar­end­ur­bætur á hús­inu en í svari ráð­herra segir að þær hafi verið orðnar löngu tíma­bærar.

Húsið algerlega endurnýjað að innan

„Vest­ur­hluti Arn­ar­hvols var byggður um 1929 sam­kvæmt teikn­ingum Guðjóns Sam­ú­els­sonar, húsa­meist­ara rík­is­ins, og aust­ur­hlut­inn nokkrum ára­tugum síðar. Þótt húsið hafi verið vandað og traust­byggt á sínum tíma hafði það fengið afar lítið við­hald und­an­farna ára­tugi og var orðið í slæmu ásig­komu­lagi utan sem innan, enda leiddi úttekt Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins í ljós að ytra byrði þess lá undir skemmdum. Ljóst var að vinna þurfti að end­ur­gerð Arn­ar­hvols af mik­illi vand­virkni og gæta þess að halda að öllu leyti í upp­haf­legan bygg­ing­ar­stíl húss­ins og ytra byrði,“ segir í svar­inu.

Að utan þurfti að end­ur­nýja alla 244 glugga húss­ins, þak og þak­virki, auk þess sem útveggir húss­ins voru stein­aðir að nýju. Að innan þurfti að fjar­lægja alla veggi, loft­plötur, gól­f­efni, eldri inn­rétt­ingar og lagnir. Hefur húsið verið alger­lega end­ur­nýjað að innan, þar með talið allar lagnir, loft­ræst­ing og raf­magns­kerfi húss­ins, auk þess sem hús­næðið hefur verið end­ur­inn­réttað í sam­ræmi við nútíma­hug­myndir um opin og virkni­m­iðuð vinnu­rými. Í svar­inu er tekið fram að sú breyt­ing hafi tek­ist mjög vel.

Jafn­framt hafi hindr­unum verið rutt úr vegi til að tryggja aðgengi fólks með fötlun. Meðal ann­ars hafi verið sett upp lyfta sem ekki var áður í hús­inu. Skipu­leggja þurfti allar end­ur­bætur við húsið og áfanga­skipta þeim þannig að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið gæti haldið uppi fullri starf­semi í hús­inu á fram­kvæmda­tím­anum.

Hundrað manns verða í húsinu að framkvæmdum loknum

Þegar fram­kvæmdum verður lokið mun öll starf­semi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins verða komin á einn stað en hún er nú á þremur stöðum. Við upp­haf fram­kvæmda unnu rúm­lega sjö­tíu starfs­menn í Arn­ar­hvoli en þegar fram­kvæmdum lýkur verða í hús­inu rúm­lega hund­rað manns.

Í svar­inu kemur enn fremur fram að með­al­kostn­aður á brútt­ó­fer­metra vegna fram­kvæmd­anna á verð­lagi í októ­ber 2018 sé 108 þús­und krónur vegna utan­húss­fram­kvæmda. Varðandi inn­an­húss­fram­kvæmdir sé gert ráð fyrir að heild­ar­kostn­aður á brútt­ó­fer­metra að loknum þriðja áfanga verks­ins nemi um 309 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár