Fimm af 54 fengu hæli í júlí

27 málum lauk með synjun og 21 mál var afgreitt með endur­sendingu á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar samkvæmt gögnum Útlendinga­stofnunar.

Útlendinga­stofnun afgreiddi 54 mál í júlí­mánuði og aðeins fimm einstaklingar fengu hælis­umsókn sína samþykkta. 27 málum lauk með synjun og 21 mál var afgreitt með endur­sendingu á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar. 

Þetta kemur fram í tölfræði sem birt er á vef Útlendinga­stofnunar í dag. 

Í júlí­mánuði sóttu 42 einstaklingar frá 11 löndum um vernd á Íslandi. Flestir komu frá Albaníu og Írak. Heildar­fjöldi umsækjenda á fyrstu sjö mánuðum ársins er þar með orðinn 316 en á sama tíma á síðasta ári höfðu 108 umsóknir borist. 

Af þeim 54 málum sem afgreidd voru í júlí­mánuði voru 32 mál tekin til efnislegrar meðferðar, en einn umsækjandi hafði þegar fengið vernd annars staðar. Þá voru 15 efnismál afgreidd á grund­velli forgangs­meðferðar í maí.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár