Tilræðismaður Hedegaard látinn laus í óþökk Dana

Dönsk stjórn­völd eru ævareið Tyrkjum fyrir að hafa sleppt úr haldi dönskum ríkis­borgara sem reyndi að ráða danskan rithöfund af dögum. Tilræðis­maðurinn var hand­tekinn í Tyrklandi, dönsk stjórn­völd höfðu óskað eftir framsali hans en manninum var sleppt áður en til þess kom.

Forsagan


Þann 5. febr­úar 2013 hringdi dyra­bjallan hjá Lars Hedegaard rit­höf­undi á heim­ili hans á Frið­riks­bergi við Kaup­manna­höfn. Sá sem hringdi bjöll­unni var í rauðum jakka, eins og póst­menn klæð­ast, og sagð­ist vera með pakka til rit­höf­und­ar­ins. Eftir að “póst­mað­ur­inn” hafði rétt Hedegaard pakk­ann dró hann upp byssu, mið­aði á höfuð hans og hleypti af. Ekki var miðið nákvæmara en svo að skotið geig­aði og þegar til­ræð­is­mað­ur­inn ætl­aði að bæta um betur stóð byssan á sér. Til handa­lög­mála kom sem end­uðu með því að til­ræð­is­mað­ur­inn komst undan og tókst lög­regl­unni ekki að hafa uppi á honum þrátt fyrir mikla leit.

Bíl sem tilræðis­maðurinn hafði komið á, og skyldi eftir skammt frá húsi Hedegaards, hafði hann keypt og notað til þess fölsuð skilríki. Þótt ekki hafi verið staðfest hver ástæða þessa misheppnaða tilræðis var hafa danska lögreglan og rithöfundurinn sjálfur aldrei verið vafa um að skýring­anna væri að leita í skrifum og ummælum Lars Hedegaard um múslima, sem voru oft á tíðum mjög umdeild.

Hedegaard hafði meðal annars verið dreginn fyrir rétt vegna ummæla í umræðu­þætti sem birtur var á netinu, en mála­ferlin vöktu mikla athygli hér í Danmörku. Hedegaard var sýknaður á lægsta dómstigi (Byretten), fyrir milli­dómstigi (Landsretten) var hann dæmdur til að greiða 5000 króna sekt en loks sýknaður í Hæstarétti. Margir litu á þessi málaferli sem prófstein á málfrelsi en í áður­nefndum umræðu­þætti hafði Hedegaard kveðið mjög fast að orði, svo fast að mörgum þótti nóg um.

"Póstmaðurinn" handtekin


Strax vakn­aði grunur um að til­ræð­is­mað­ur­inn í rauða jakk­anum hefði reynt að kom­ast úr landi en um það var þó ekk­ert vitað. Að sögn rit­höf­und­ar­ins tal­aði mað­ur­inn lýta­lausa dönsku, sem talið var ótví­rætt merki um að hann væri danskur eða hefði að minnsta kosti dvalist hér um langt skeið. En hann var horf­inn og öruggt talið að hann hefði strax farið úr landi.

"Að sögn rit­höf­und­ar­ins tal­aði mað­ur­inn lýta­lausa dönsku, sem talið var ótví­rætt merki um að hann væri danskur eða hefði að minnsta kosti dvalist hér um langt skeið. En hann var horf­inn og öruggt talið að hann hefði strax farið úr landi."

Leið nú og beið.

Þann 5. apríl síðastliðinn handtók tyrkneska lögreglan 27 ára karlmann, danskan ríkis­borgara, sem danska lögreglan telur öruggt að sé “póst­maðurinn”. Lögreglan hefur annars verið mjög spör á upplýsingar vegna hand­tökunnar en strax var hafinn undir­búningur þess að fá manninn fram­seldan hingað til Danmerkur. Slíkt getur tekið tíma og þykir ekki óeðlilegt. Rithöfundurinn Hedegaard lýsti yfir í viðtölum að hann vonaðist til að í réttar­höldum í Danmörku kæmi fram hvort þetta tilræði hefði verið einka­framtak viðkomandi manns eða hvort hann hefði verið fulltrúi einhverra samtaka og þá hvaða samtök ættu hlut að máli.

Lögreglu­yfirvöld í Danmörku upplýsa blaðamenn um handtöku tilræðis­manns Hedegaard í Tyrklandi, á blaðamanna­fundi 27. apríl síðastliðinn.

Óvæntar fréttir


Þann 2. októ­ber síð­ast­lið­inn hitti starfs­maður danska sendi­ráðs­ins í Tyrk­landi tyrk­neska emb­ætt­is­menn. Þar fékk hann þær óvæntu fréttir að “kannski” væri danski rík­is­borg­ar­inn laus úr fang­elsi, þessar fréttir voru þó óljósar. Rúmri viku seinna, 10. októ­ber, hafði danska rann­sókn­ar­lög­reglan (PET) sam­band við Lars Hedegaard og tjáði honum að “póst­mað­ur­inn” sæti ekki lengur í fang­elsi í Tyrk­landi. Um líkt leyti óskar danska sendi­ráðið í Ankara eftir svörum við því hvort mað­ur­inn hefði verið lát­inn laus. Svör Tyrkja voru loðin og ekki afdrátt­ar­laus og það var ekki fyrr en sendi­nefnd danskra emb­ætt­is­manna fór til Ankara og kraf­ist skýrra svara að tyrk­nesk stjórn­völd stað­festu að danski rík­is­borg­ar­inn “póst­mað­ur­inn” sæti ekki lengur í fang­elsi.

Lögregluyfirvöld í Danmörku upplýsa blaðamenn um handtöku tilræðismanns Hedegaard í Tyrklandi, á blaðamannafundi 27. apríl síðastliðinn.
Lög­reglu­yf­ir­völd í Danmörku upp­lýsa blaða­menn um hand­töku til­ræð­is­manns Hedegaard í Tyrk­landi, á blaða­manna­fundi 27. apríl síð­ast­lið­inn.

Þegar óskað var skýringa á hverju það sætti var í fyrstu fátt um svör. Ekki fékkst staðfest að maðurinn væri einn þeirra sem Tyrkir slepptu í svonefndum fanga­skiptum við Íslamska ríkið svonefnda (ISIS) en það hafði verið nefnt í fjöl­miðlum. Danskir þingmenn reiddust mjög og ekki urðu upplýsingar sem síðar bárust til að bæta úr skák. Tyrknesk stjórn­völd tilkynntu þá Dönum að þau hefðu ekki viljað að manninum yrði sleppt en dómstóll hefði ákveðið að það skyldi gert, ástæðan sögð sú að lögmaður mannsins hefði óskað eftir því. Hvar “póst­maðurinn” væri niður­kominn sögðu tyrknesk stjórn­völd ekkert um, sögðust þó ekki vita til að hann væri farinn úr landi.

Danskir þingmenn æfir


Nú fór allt í háa­loft í danska þing­inu. Sumir kröfð­ust þess að stjórn­mála­sam­bandi við Tyrki yrði þegar í stað slitið, aðrir kröfð­ust refsi­að­gerða gegn Tyrkjum. Tyrk­neski sendi­herr­ann í Kaup­manna­höfn var kall­aður í Utan­rík­is­ráðu­neytið og hund­skammaður (“fik en skideballe”eins og eitt blað­anna orð­aði það) og honum gerð grein fyrir því að þetta mál drægi dilk á eftir sér og Danir myndu ekki orða­laust sætta sig við fram­komu Tyrkja.

Hvað geta Danir gert?


Bæði Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra og Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra sögðu marg­sinnis í við­tölum í fjöl­miðlum, fyrst eftir að upp­víst varð um málið, að sú ákvörðun að sleppa “póst­mann­inum” úr haldi væri bæði óskilj­an­leg og óásætt­an­leg. For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að þetta mál yrði tekið upp innan Evr­ópu­sam­bands­ins í tengslum við umfjöllun um ESB umsókn Tyrkja. Hvaða áhrif það hefur er óvíst. Þrátt fyrir að Tyrkir hafi fengið mikla gagn­rýni, ekki síst vegna mann­rétt­inda­mála, vilja stóru og áhrifa­miklu þjóð­irnar innan ESB ekki ganga of hart fram gagn­vart þeim.

Helle Thorning-Schmidt, forsætis­ráðherra Dana, botnar hvorki upp né niður í ákvörðun tyrkneskra stjórn­valda um að sleppa tilræðis­manninum úr haldi.

Helle Thorning-Schmidt
Helle Thorning-Schmidt

Það er athyglis­vert að undan­farna daga hefur tónn dönsku ráðherranna mildast nokkuð. Í útvarps­viðtali föstu­daginn 24. október síðastliðinn sagði Martin Lidegaard utan­ríkis­ráðherra að hann hefði rætt við tyrkneska sendi­herrann fyrr um daginn, í alvarlegum tón. Forsætis­ráðherrann notar sömuleiðis mildara orðalag. Eitt dönsku blaðanna getur sér þess til að það hafi runnið upp fyrir dönsku ráðherrunum að innan ESB væri það, að manninum hafi verið sleppt ekki talið stórmál. Þess vegna væri réttast að spara stóru orðin þótt menn láti hvína í tálknunum “í túninu heima”.

Rithöfundurinn andar rólega


Þrátt fyrir að Lars Hedegaard sé mjög ósáttur við að Tyrkir hafi sleppt mann­inum seg­ist hann anda rólega. Þótt mað­ur­inn hafi reynst svo léleg skytta að hann hitti ekki manns­höfuð á eins metra færi sé hann varla svo skyni skropp­inn að hann komi aftur til Dan­merkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár