„Úr persónulegu helvíti yfir í stórkostleg ævintýri“

Lista­maðurinn Jakob Veigar Sigurðsson var kominn í gjaldþrot, andlega og fjárhags­lega, og allt sem áður skipti máli var farið. Hann varð fyrir áhrifa­mikilli reynslu þegar hann rankaði við sér eftir þriggja daga óminnis­ástand, sem varð upphafið að því að líf hans breyttist úr persónu­legu helvíti yfir í stórkostlegt ævintýri. Nú ferðast hann um heiminn með pensla á lofti og kærleik að vopni.

Sem ungur drengur í Hvera­gerði átti Jakob Veigar sér háleitan draum um að verða rokkstjarna. Sá draumur rættist ekki, en með tímanum færðist markmiðið yfir í að geta uppfyllt þær væntingar sem samfélagið gerði til hans og kapp­kostaði hann því við að verða eins venju­legur og hann mögulega gæti. Listin blundaði þó alltaf innra með honum en lélegt sjálfsmat og brotin sjálfs­mynd varð rótin að því að hann afneitaði henni til fulls. „Þessi lélega sjálfs­mynd var blanda af mörgum þáttum, en í enda dags sé ég að mistnotkun mín á áfengi var stærsti þátturinn, sem jafnframt gróf undan öllu hjá mér, þrátt fyrir að í upphafi hafi áfengi virkað sem algjör frelsun fyrir mig.“

Við Rabindra sarovar Lake á IndlandiStutt frá stað þar sem Jakob Veigar bjó. Hann hitti þar hóp af stelpum sem vildu heilsa og fá mynd með honum. Á Indlandi þurfti hann …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár