Ásgeir H. Reykfjörð ráðinn aðstoðarbankastjóri Arion banka

Nýr aðstoðar­bankastjóri kemur frá Kviku.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason hefur verið ráðinn aðstoðar­bankastjóri Arion banka og mun hann hefja störf með haustinu. Um nýtt hlutverk er að ræða innan bankans.

Ásgeir hefur undan­farin ár starfað sem framkvæmda­stjóri fyrirtækja­sviðs Kviku banka hf. Hann var meðlimur í framkvæmda­hópi um losun fjármagns­hafta árið 2015 og áður starfaði hann hjá MP banka sem yfir­lögfræðingur, hjá LOGOS lögmanns­þjónustu í Reykjavík og London og hjá Straumi fjár­festingar­banka.

Ásgeir er með lögmanns­réttindi og hefur lokið lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík.

,,Það er mikill fengur fyrir okkur í Arion banka að fá Ásgeir til liðs við okkur. Hann býr yfir mjög góðri þekkingu á fjármála­starfsemi og því hvernig auka megi arðsemi í þeirri starfsemi í kjölfar breytts starfs­umhverfis banka. Ég er því sann­færður um að hans kraftar eiga eftir að nýtast vel í bankanum og hlakka til samstarfsins,“ segir Benedikt Gíslason, nýr banka­stjóri Arion banka, en hann hóf störf 1. júlí síðastliðinn.

Heildar­eignir Arion banka nema rúmlega 1.200 milljörðum króna en eigið fé bankans var 193 milljarðar í lok fyrsta ársfjórðungs. Markaðs­virði bankans nemur um þessar mundir um 140 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár