Þórlindur ráðinn til að aðstoða Þórdísi Kolbrúnu

Báðir aðstoðar­menn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfa­dóttur frá síðasta kjör­tímabili ákváðu að leita á önnur mið. Nú hefur hún ráðið einn nýjan í þeirra stað.

Þórlindur Kjartansson hefur verið ráðinn aðstoðar­maður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfa­dóttur, utanríkis- og þróunar­samvinnu­ráðherra. Báðir aðstoðar­menn Þórdísar Kolbrúnar frá síðasta kjör­tímabili hafa látið af störfum. Ólafur Teitur Guðnason ákvað að leita á önnur mið og Hildur Sverris­dóttir var kjörin á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn. Með ráðningu Þórlinds hefur Þórdís Kolbrún því fyllt upp í helming þess aðstoðar­manna­kvóta sem hún má ráða sér samkvæmt lögum.

Þórlindur er með BA-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og ML-gráðu í lögfræði með sérstaka áherslu á alþjóðalög frá Háskólanum í Reykjavík. Hann var formaður Vöku-félags lýðræðis­sinnaðra stúdenta, stjórnar­formaður Félags­stofnunar stúdenta og formaður Sambands ungra sjálfstæðis­manna

Í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins segir að hann hafi starfað sjálfstætt undan­farin ár og veitt fjölda fyrir­tækja og stofnana marg­víslega þjónustu, einkum á sviði stefnu­mótunar og alþjóðlegra samninga­mála. „Hann var framkvæmda­stjóri rekstrar hjá Meniga á árunum 2012-2015 og stjórnar­formaður Innovit-nýsköpunar­seturs á árunum 2009-2012. Þar áður starfaði hann meðal annars við markaðsmál hjá Lands­bankanum, sem blaða­maður hjá Frétta­blaðinu, ráðgjafi fjármála­ráðherra, texta­smiður hjá Íslensku auglýsinga­stofunni og við eigin atvinnu­rekstur á sviði upplýsinga­tækni og miðlunar.“

Þórlindur hefur auk þess fjölmiðla­reynslu, en hann var um árabil fastur pistla­höfundur á Frétta­blaðinu. Auk þess hefur hann skrifað hundruð pistla um marg­vísleg málefni á vefritið Deigluna og þrjár bækur um íþróttir, í félagi við Eggert Þór Aðal­steinsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár