Plastlaus september – íslenskt átak

Átta íslenskar konur hafa tekið sig saman um að halda plast­leysi á lofti og ýtt úr vör plast­lausum september. Eins og nafnið gefur til kynna snýst verkefnið um að draga úr plast­notkun í september.

Dyggir lesendur muna líklega eftir, og tóku vonandi þátt í, plast­lausum júlí nú í sumar. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem slíkt átak er sett á laggirnar en átakið verður alltaf stærra og stærra með hverju árinu og þátt­takendum fjölgar ár hvert.

Nú hafa átta íslenskar konur, sem tóku þátt í átakinu, tekið sig saman um að halda plast­leysinu á lofti og ýtt úr vör, plast­lausum september. Eins og nafnið gefur til kynna snýst verkefnið um að draga úr plast­notkun í september.

Þetta frábæra framtak er innblásið af hinu alþjóð­lega framtaki Plastic free July. Í báðum tilfellum er tilgangurinn að vekja okkur neytendur til umhugsunar um allt plastið sem við notum í daglegu lífi og gætum svo vel verið án. Stór partur af plastinu sem við notum er einungis notað í nokkrar mínútur, má þar nefna plastglös eða rör, sem við svo vel sleppt.

Átök eins og plastlaus september er tilvalin tími til að líta aðeins í eigin barm, og út fyrir rútínu-rammann, til að skoða hvar við getum dregið úr notkun á þessum skaðvaldi nátt­úrunnar. Það er svo auðvelt að breyta bara pínulítið útúr hefð­bundinni rútinu og með litlum skrefum getum við búið til stóran þrýstihóp sem ýtir fram­leiðendum í átt að minni óþarfa plast­notkun.

Á heima­síður átaksins plast­laus­september.is er hægt að kynna sér verkefnið, aðstand­endur þess og síðast en ekki síst hvernig er hægt að taka þátt. En við hvetjum að sjálfsögðu alla til þess.

Fréttin birtist fyrst á vef Hvatans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár