Inga Hrefna nýr aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar

Utan­rík­is­ráð­herra er nú komin með tvo aðstoð­ar­menn. Alls má rík­is­stjórnin ráða 27 aðstoð­ar­menn. Laun og starfs­­kjör aðstoð­­ar­­manna ráð­herra mið­­ast við kjör skrif­­stofu­­stjóra í ráðu­­neytum sam­­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hefur ráðið Ingu Hrefnu Svein­bjarn­ar­dóttur sem annan aðstoð­ar­mann sinn. Þór­lindur Kjart­ans­son er hinn aðstoð­ar­maður hennar en hann hefur gegnt því starfi síðan í byrjun des­em­ber í fyrra.

Inga Hrefna var aðstoð­ar­maður Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar á meðan að hann gegndi emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra á árunum 2013 til 2021, en Kristján Þór var ekki í fram­boði til þings í síð­ustu kosn­ingum. Hún er auk þess for­maður stjórnar Mennta­sjóðs náms­manna.

Þórdís Kolbrún var einnig ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili. Báðir aðstoð­ar­menn hennar frá þeim tíma hurfu til ann­arra verk­efna þegar því lauk. Ólafur Teitur Guðna­son ákvað að leita á önnur mið og Hildur Sverr­is­dóttir var kjörin á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Aðstoð­ar­mönnum fjölgað 2011

Lögum um Stjórn­­­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­­ar­­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­­is­­stjórn­­ina að ráða þrjá aðstoð­­ar­­menn til við­­bótar ef þörf kref­­ur. Í lög­­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­­ar­­manns ráð­herra er að vinna að stefn­u­­mótun á mál­efna­sviði ráðu­­neytis undir yfir­­­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­­neyt­is­­stjóra.“

Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­­ar­­­manna­­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­­ast um að ræða nán­­­ustu sam­­­starfs­­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­­is­­stjórn Sam­­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­­is­­stjórn­­inni og í dag eru þeir orðnir tólf. Það þýðir að fjöldi leyf­i­­legra aðstoð­­ar­­manna hefur líka auk­ist.

Alls má rík­­is­­stjórnin því ráða 27 aðstoð­­ar­­menn sem stend­ur. Laun og starfs­­kjör aðstoð­­ar­­manna ráð­herra mið­­ast við kjör skrif­­stofu­­stjóra í ráðu­­neytum sam­­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Kostnaður við rekstur ríkisstjórnar aukist

Rekstur rík­­is­­stjórnar Íslands, sem í fel­­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna þeirra, er áætl­­aður 714,9 millj­ónir króna á þessu ári sam­kvæmt fjár­lögum. Það er um fimm pró­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá átti rekst­ur­inn að kosta 681,3 millj­ónir króna.

Á fyrsta heila ári fyrri rík­­is­­stjórn­­­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, árið 2018, var kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna áætl­aður 461 millj­­ónir króna. Kostn­að­ur­inn á þessu ári er því 55 pró­sent hærri í krónum talið.

Kostn­að­ur­inn á þessu fyrsta starfs­ári rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks reynd­ist á end­anum hærri, eða 597 millj­ónir króna. Því hefur kostn­að­ur­inn vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra alls vaxið um 117,9 millj­ónir króna frá 2018, eða 20 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár