Guðmundur Andri mun aðstoða formann Samfylkingarinnar

Fyrr­verandi þingmaður Samfylk­ing­ar­innar hefur tekið við starfi aðstoðar­manns Loga Einars­sonar formanns flokksins.

Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thors­son, rithöfundur og fyrr­verandi þingmaður, er nýr að­stoðar­maður Loga Einars­sonar, formanns Sam­fylkingarinnar. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

Freyja Steingríms­dóttir hefur sinnt starfi aðstoðar­manns Loga síðustu fjögur ár en hún hefur nú verið ráðin í stöðu samskipta­stjóra BSRB.

Guðmundur Andri var þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvestur­kjördæmi á árunum 2017 til 2021. Hann var í allsherjar- og menntamála­nefnd frá 2017 til 2021 og í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd 2019 til 2021.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dóttir leiddi lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins, í síðustu þing­kosn­ing­um. Guðmundur Andri tók annað sætið en komst ekki inn á þing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár