Hafa uppgötvað fjórða lekann í Eystrasalti

Gasleiðsl­urnar Nord Stream 1 og 2 í Eystrasalti leka á fjórum stöðum. Fjórði lekinn uppgötvaðist á þriðjudag en sænska strand­gæslan staðfesti tilvist hans í morgun.

Gríðarlegt uppstreymi í Eystrasalti yfir einu gati á gasleiðslunni.
Gríð­ar­legt upp­streymi í Eystra­salti yfir einu gati á gasleiðsl­unni. Mynd: EPA

Fjögur göt eru á Nord Stream 1 og 2 gasleiðslunum en ekki þrjú líkt og greint hafði verið frá. Sænska strand­gæslan hefur staðfest við fjölmiðla að fjórða gatið sé á Nord Stream 2, nýrri leiðslunni í Eystrasalti og sé staðsett um það bil mitt á milli gatanna tveggja á Nord Stream 1. Aftonbladet hefur eftir jarð­skjálfta­fræðingi að ekki sé útilokað að önnur sprenging hafi orðið á svæðinu.

Á mánudag uppgötvuðust þrjú göt á leiðslunum tveimur sem liggja milli Rússlands og Þýska­lands. Eitt á Nord Stream 2, suðaustan við Borgundar­hólm í danskri efnahags­lögsögu, og tvö á Nord Stream 1 nokkuð norðaustar á svæðinu, annað þeirra innan sænskrar lögsögu, segir í frétt Aftonbladet í morgun. Metangas, sem var í leiðslunum, lekur í miklu magni út um götin.

Tveir skjálftar mældust á svæðinu í byrjun vikunnar og er talið að þeir séu til marks um að sprenging hafi orðið. Annar skjálftinn varð kl. 2.03 aðfara­nótt mánudags, á sömu slóðum og göt urðu á Nord Stream 2. Skjálftinn mældist 1,8 stig. Seinni sprengingin sem fram kom á skjálfta­mælum varð á sömu slóðum og götin tvö mynduðust á Nord Stream 1. Hún varð kl. 7.04 á mánudags­morguninn og mældist skjálftinn 2,3 stig. Það þýðir að sprengingin var fimm sinnum kraft­meiri en sú fyrri.

Sjórinn ólgar undan metan­gasinu sem streymir upp og talið er að götin á leiðslunum sem liggja á um 80 metra dýpi á hafsbotni séu tugir metrar í þvermál. Sænska strand­gæslan stað­festir við Aftonbladet að fjórði svelgurinn sem sjáist sé um 200 metrar í þvermál.

Kjarninn fjallaði ítarlega um Nord Stream 1 og 2 í frétta­skýringu í gær. Hana er hægt að lesa hér. Í henni er rakinn aðdragandi þess að gasleiðslurnar miklu voru lagðar í Eystrasaltið og farið yfir kenningar um að skemmdar­verk hafi verið unnin á þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár