Eigendur upplýsinganúmersins 118 tóku sér 250 milljóna króna arð í fyrra

Starfsemin byggir á ríkis­einokun frá Símanum hf. sem nú hefur verið afnumin. Fyrir­tækið hefur greitt út 1.400 milljóna króna arð á fimm árum. Á nærri 900 milljóna eignir og skuldar tæplega 200.

Tæplega 19 milljóna arður
Tæplega 19 millj­óna arður Sigríður Margrét Odds­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Já hf. og einn af hlut­höfum fyr­ir­tæk­is­ins. Hún fékk tæp­lega 19 millj­óna arð út úr rekstr­inum í fyrra. Mynd: Eggert Jóhannesson

Eigendur upplýsinga­fyrir­tækisins Já hf. sem rekur meðal annars þjónustu í kringum síma­númerið 118, tóku sér 250 milljóna króna arð í fyrra. Arðurinn byggir á starfsemi fyrir­tækisins árið 2013 en þá nam hagnaðurinn 311 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Já hf. sem skilað var til ársreikninga­skrár Ríkis­skattstjóra þann 1. október síðastliðinn. Fyrir­tækið hagnaðist um 232 milljónir króna í fyrra. Með arðgreiðslunni hafa hluthafar Já hf. nú tekið sér 500 milljónir króna í arð á tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár