Mótmæla „harðlega“ að Skrokkalda fari í nýtingarflokk

„Þessi virkj­ana­kostur ætti að vera í vernd­ar­flokki,“ segja Samtök ferða­þjón­ust­unnar um Skrokköldu­virkjun sem áformuð er á hálend­inu. Samtökin minna á mik­il­vægi nátt­úr­unnar fyrir ferða­þjón­ust­una.

Landsvirkjun hyggst reisa nýja 45 MW virkjun við Skrokköldu á Sprengisandi.
Lands­virkjun hyggst reisa nýja 45 MW virkjun við Skrokköldu á Sprengisandi. Mynd: Landvernd

Samtök ferða­þjón­ust­unnar, SAF, „mót­mæla því harð­lega“ að Skrokköldu­virkjun sé sett í nýt­ing­ar­flokk þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar líkt og þings­á­lykt­un­ar­til­laga, sem mælt hefur verið fyrir á Alþingi, gerir ráð fyrir. „Þessi virkj­ana­kostur ætti að vera í vernd­ar­flokki enda við jaðar stærsta þjóð­garðs Evrópu og ferða­menn geta í dag notið víð­ernis á stórum hluta þessa svæðis. Þó svo að áhrif þess­arar virkj­unar séu mun minni en af Hágöngu­virkj­unum þá er hún fyr­ir­huguð á svæði sem alls ekki ætti að raska,“ skrifa sam­tökin í umsögn sinni um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una.

Einnig lýsa þau yfir áhyggjum yfir að Aust­urengjar við Krýsuvík og Þver­ár­dalur á Hell­is­heiði séu flokkuð í nýt­ing­ar­flokk og fara fram á að beðið sé með fram­kvæmdir á þessum svæðum.

Samtökin lýsa hins vegar mik­illi ánægju með þau svæði sem flokkuð eru í vernd sam­kvæmt til­lög­unni „Vatna­svæði Hér­aðs­vatna og þar með jök­ul­árnar í Skaga­firði eru mjög mik­il­væg fyrir ferða­þjón­ustu í Skaga­firði og eru mögu­leikar flúða­sigl­inga ein helsta und­ir­staða ferða­þjón­ustu svæð­is­ins,“ skrifa sam­tökin í umsögn sinni.

Þá benda þau á að við Skjálf­anda­fljót eru margir mik­il­væg­ustu ferða­manna­staðir og ferða­leiðir á norð­ur­há­lend­inu, þar eru for­sendur til frek­ari dreif­ingar ferða­manna og auk­innar starf­semi. Einnig sé Skaftá og vatna­svæði hennar mik­il­vægt fyrir ört vax­andi ferða­mennsku og þjón­ustu henni tengdri á stóru svæði á Suð­ur­landi.

Samtökin segja mik­il­vægt fyrir ímynd lands­ins að Þjórs­ár­ver séu óraskað svæði og segja nátt­úru vest­ur­svæða Þjórsár mik­il­væga. Svæðið þoli ekki mikla ferða­mennsku og sú ferða­mennska sem þar á sér stað verði að vera tak­mörkuð. „Virða verður á allan hátt hina við­kvæmu nátt­úru svæð­is­ins.“ Einn virkj­ana­kostur ofar­lega í Þjórsá, Kjalöldu­veita, er í vernd­ar­flokki til­lög­unnar.

Að mati Samtaka ferða­þjón­ust­unnar er það „engan veg­inn ásætt­an­legt“ að Búð­ar­tungu­virkjun, rétt ofan við Gullfoss, verði að veru­leika. Kost­ur­inn er sem stendur í bið­flokki til­lögu að ramma­á­ætlun. Öll röskun í og við þennan mik­il­væga ferða­manna­stað sé „með öllu óásætt­an­leg“.

Þá vilja sam­tökin ítreka að Torfa­jök­uls­svæðið verði fært í vernd­ar­flokk. Grashagi og Sandfell liggi í nágrenni við vin­sæl­ustu og mest sóttu göngu­leið lands­ins, Lauga­veg­inn, sem heilli bæði inn­lenda og erlenda göngugarpa. „Öll óæski­leg sjón­mengun hefur áhrif á upp­lifun ferða­manna af svæð­inu og því aug­ljóst að öll upp­bygg­ing á orku­mann­virkjum myndi hafa nei­kvæð áhrif á nátt­úru­upp­lifun þeirra gesta sem sækja svæðið heim.“

Samtök ferða­þjón­ust­unnar minna í umsögn sinni á að ákvarð­anir um að taka ný svæði til orku­nýt­ingar þurfi að vera mjög vel ígrund­aðar. „Vinna þarf mark­visst að verndun og skyn­sam­legri nýt­ingu þeirrar auð­lindar sem nátt­úra Íslands er, bæði í nútíð og langri fram­tíð,“ segir í umsögn­inni og ítreka sam­tökin að horfa verði á nátt­úru­auð­lind­ina á mun víð­ari grunni en gert hefur verið hingað til og stefna þannig að því að ná saman skipu­lagi sem horfi til lang­tíma­mark­miða við nýt­ingu og verndun íslenskrar nátt­úru.“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra mælti fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar í byrjun febr­úar. Hann er fjórði umhverf­is­ráð­herr­ann sem leggur nákvæm­lega sömu til­lögu fyrir þingið á rúm­lega fimm árum. Tíð stjórn­ar­skipti urðu fyrstu árin til þess að ekki náð­ist að afgreiða til­lög­una. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son mælti einnig fyrir til­lög­unni er hann gegndi emb­ætti umhverf­is­ráð­herra en hún hlaut sömu örlög og árin á undan.

Núgild­andi ramma­á­ætlun er orðin níu ára gömul.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er að finna lof­orð um að lokið verði við þriðja áfang­ann. Því er hins vegar bætt við í sömu setn­ingu að fjölga eigi kostum í bið­flokki.

Þetta hefur orðið til þess að hags­muna­að­ilar hafa ýtt á að ákveðnir kostir sem eru í vernd­ar­flokki verði færðir í bið­flokk. Það gerði t.d. meiri­hluti byggð­ar­ráðs Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar sem vill að virkj­anir í Hér­aðs­vötnum (Jökulsá aust­ari og vest­ari) fari í bið­flokk. HS orka vill að Búlands­virkjun verði færð úr vernd­ar­flokki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár