Guðlaugur Þór: Dylgjur sem eru til marks um málefnafátækt

Utan­rík­is­ráð­herra hefur tjáð sig á Facebook síðu sinni vegna umfjöll­unar Eyjunnar um fjár­fest­ingar og eigna eig­in­konu hans.

„Dylgjur sem fram koma í ofan­greindri umfjöllun Eyjunnar bera vitni um mál­efna­fá­tækt þeirra sem hafa ákveðið að berj­ast gegn þriðja orku­pakk­anum með öðru en rökum. Vonandi verður hægt að ræða þetta mál með mál­efna­legri hætti í fram­tíð­inni.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legri færslu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra á Facebook, þar sem hann fjallar um umfjöllun sem birt­ist á Eyjunni.is, sem Frjáls fjöl­miðlun rekur, þar sem fjallað er um eign­ar­hald á jörð sem er á áhrifa­svæði Búlands­virkj­unar. Er þetta eign­ar­hald sett í sam­hengi við mögu­lega hags­muni vegna þriðja orku­pakk­ans svo­nefnda.

Guð­laugur Þór segir að jörð sem félag í eigu Ágústu hafi keypt árið 2015, sé skóg­rækt­ar­jörð sem tengd­ar­for­eldrar hans hafi ræktað upp síðan 1982. „Hvorki ég né fjöl­skylda mín eigum nokkra aðild að áformum um þá virkjun. Ef svo ólík­lega færi að hún yrði að veru­leika yrðu áhrifin á Tungufljót og umhverfi þess afar nei­kvæð. Vonandi eru allar hug­myndir um þessa virkjun út af borð­inu um alla fram­tíð. Um það erum við fjöl­skyldan öll sam­mála,“ segir Guð­laugur Þór.

Orðrétt segir í yfir­lýs­ingu hans, vegna máls­ins:

Vegna fréttar Eyjunnar fyrr í dag, 15. apríl, um hags­muna­skrán­ingu mína á vef Alþingis vil ég taka eft­ir­far­andi fram:

1. Reglur for­sætis­nefndar Alþingis um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum alþing­is­manna og trún­að­ar­störfum utan þings, sem einnig taka til ráð­herra, taka ekki til eigna eða skulda maka. Þetta hefur skrif­stofa Alþingis stað­fest við mig. Hags­muna­skrán­ing mín er í fullu sam­ræmi við þessar reglur.

2. Ágústa Johnson, eig­in­kona mín, hefur verið í eigin atvinnu­rekstri í rúma þrjá ára­tugi eins og flestum lands­mönnum ætti að vera kunn­ugt um. Jörðin sem um ræðir er skóg­rækt­ar­jörð sem tengda­for­eldrar mínir hafa ræktað upp síðan 1982. Félag, sem er í eigu Ágústu, keypti jörð­ina árið 2015 en hún hafði verið til sölu í nokkur ár þar á undan.

3. Allt tal um að mín fjöl­skylda hagn­ist á Búlands­virkjun, hvað þá um millj­arða króna, er fjar­stæðu­kennt. Búlands­virkjun er ekki í orku­nýt­ing­ar­flokki núgild­andi ramma­á­ætl­unar. Hvorki ég né fjöl­skylda mín eigum nokkra aðild að áformum um þá virkjun. Ef svo ólík­lega færi að hún yrði að veru­leika yrðu áhrifin á Tungufljót og umhverfi þess afar nei­kvæð. Vonandi eru allar hug­myndir um þessa virkjun út af borð­inu um alla fram­tíð. Um það erum við fjöl­skyldan öll sam­mála.

4. Samþykkt eða höfnun þriðja orku­pakk­ans hefur engin áhrif á hags­muni land­eig­enda á hugs­an­legum virkj­ana­svæðum enda fjallar þriðji orku­pakk­inn hvorki um eign­ar­hald né nýt­ingu á auð­lindum. Stað­reyndin er enn fremur sú að með inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans eins og lagt er til eru settar enn frek­ari skorður við lagn­ingu raf­magns­sæ­strengs en nú eru við lýði.

5. Dylgjur sem fram koma í ofan­greindri umfjöllun Eyjunnar bera vitni um mál­efna­fá­tækt þeirra sem hafa ákveðið að berj­ast gegn þriðja orku­pakk­anum með öðru en rökum. Vonandi verður hægt að ræða þetta mál með mál­efna­legri hætti í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár