Stórar smásölukeðjur í Bandaríkjunum hafna Apple Pay

Stórar bandarískar smásölu­keðjur hafa hafnað nýkynntu greiðslu­kerfi Apple-risans, sem kallast Apple Pay. Wal-Mart, Best Buy, Rite Aid og CVS hafa allar sagt að þær vilji ekki, og muni ekki, bjóða upp á greiðslu­leiðina fyrir sína viðskipta­vini. Bæði Rite Aid og CVS prófuðu að bjóða upp á þjónustuna en hættu því um liðna helgi. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Apple kynnti Apple Pay, snertilausa greiðslu­leið, í september síðastliðnum. Með Apple Pay eru korta­upplýsingar geymdar í iPhone tækinu og símanum rennt í gegnum þar til gerðan posa til að greiða fyrir vörur. Með þessu áttu eigendur iPhone síma ekki lengur að ganga með veski til að hýsa fjölmörg greiðslu­kort og/eða peninga­seðla.

Samkvæmt umfjöllun um málið á vef The Verge hefur alls ekki gengið vel hjá Apple að sanka að sér samstarfs­aðilum til að taka upp Apple Pay greiðslu­leiðina. Þar segir að samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Apple séu einungis 34 smásölu­samstarfs­aðilar sem notast við Apple Pay leiðina í Banda­ríkjunum. Átta þeirra eru mismun­andi útgáfur af Foot Locker fyrir­tækinu og einn samstarfs­aðilinn er Apple sjálft. Þegar búið er að gera ráð fyrir þessu eru samstarfs­aðilarnir því í raun einungis 26 talsins.

Ástæða þessa að stórar smásölu­keðjur vilja ekki taka upp Apple Pay kerfið, sem er þrátt fyrir allt mjög háþróað og notenda­vænt kerfi þar greitt er fyrir með einni snertingu, er einföld: þær vilja ekki að Apple komi sér upp einokun á verðmætum upplýsingum um hegðun viðskipta­vina þeirra. Sum önnur greiðslu­kerfi, sem verið er að þróa fyrir snjall­tæki, munu gefa stóru keðjunum kleift að halda eftir þeim upplýsingum. Þetta eru kerfi á borð við CurrentC, sem Wal Mart ætlar sér að notast við.

Þótt illa hafi gengið hjá Apple að koma Pay-leið sinni að þá er ekki talið útilokað að hún muni síðar meir fá annað tækifæri til að ná fótfestu. Þægindin sem leið Apple býður upp á fyrir neytendur til að greiða fyrir vörur sínar er einfald­lega talin vera mun betri en þær leiðir sem samkeppnis­aðilar hafa boðið upp á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár