Lögreglan segir að finna þurfi út hver tók ákvörðun um að hamla störfum fjölmiðla

Ríkis­lögreglu­stjóri segir að til standi að funda með Isavia til að finna út hvar ákvörðun um að koma í veg fyrir mynda­tökur fjölmiðla af brott­flutningi hælis­leitenda var tekin. Í tilkynningu Isavia í gær kom fram að lögreglan hafi fyrir­skipað það.

Myndað
Myndað Lög­reglan vísar til þess í til­kynn­ingu sinni að fjöl­miðlar hafi getað myndað aðgerð­irnar á fyrri stigum, þó komið hafi verið í veg fyrir mynda­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli. Mynd: Sema Erla

Ríkis­lögreglu­stjóri ætlar að funda með fulltrúum Isavia til að fara yfir hver hafi raun­verulega tekið ákvörðun um að beina ljós­kösturum í átt að mynda­vélum fjölmiðla til að byrgja sýn og koma í veg fyrir mynda­tökur. Blaðamenn Ríkis­útvarpsins fylgdust með brott­flutningi fimmtán hælis­leitenda frá Íslandi til Grikk­lands, bæði í Hafnar­firði og svo fyrir utan athafna­svæði Isavia á Kefla­víkur­flugvelli. 

„Lögregla mun funda með ISAVIA í næstu viku í þeim til­gangi að fara yfir atvik máls­ins til að varpa ljósi á hvar ákvarð­ana­taka liggur“
úr svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar

Í tilkynningu sem barst frá Isavia í gær kom fram að starfs­fólk á flug­vellinum hefði komið í veg fyrir mynda­tökur fjölmiðla að fyrir­skipan lögreglu. Svo virðist sem embætti ríkis­lögreglu­stjóra sé ekki sátt við þá útskýringu en í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um málið segir að til standi að funda með forsvars­mönnum Isavia til að komast að því hver tók ákvörðunina. 

„Lögregla mun funda með ISAVIA í næstu viku í þeim tilgangi að fara yfir atvik málsins til að varpa ljósi á hvar ákvarðana­taka liggur,“ segir í svarinu, sem síðan hefur verið sent öllum fjöl­miðlum. „Ekki stóð til að hindra störf fjölmiðla en fjöl­miðlar höfðu mun greiðara aðgengi að myndun aðgerða lögreglu á fyrri stigum sama máls.“

Í tilkynningu ríkis­lögreglu­stjóra segir einnig að lögð sé rík áhersla á að fjöl­miðlar hafi gott aðgengi að störfum lögreglu, ekki síður þeim verkefnum sem eru sérstak­lega krefjandi.

Fréttastjóri krefst svara

Eftir að Ríkis­útvarpið greindi frá aðgerðum starfs­manna Isavia, þar sem fjórum bílum búnum flóð­ljósabúnaði var stillt upp gegnt blaða­mönnum frétta­stofu, sendi Heiðar Örn Sigfinnsson frétta­stjóri ríkis­lögreglu­stjóra bréf þar sem hann krafði embættið svara. 

„Frétta­teymi RÚV var á staðnum, utan girðingar, og fékk ekki að sinna sínum störfum þar sem starfs­menn ISAVIA fylgdu fyrir­mælum lögreglunnar og skemmdu upptökurnar. Ég lít þetta að sjálfsögðu mjög alvarlegum augum enda man ég ekki eftir grófari dæmum um aðgerðir lögreglu gegn fjölmiðla­fólki að störfum í seinni tíð,“ sagði hann í bréfinu, sem birt var á Facebook-síðu Heiðars.

Ein spurninganna sem hann beindi til Sigríðar Bjarkar Guðjóns­dóttur ríkis­lögreglu­stjóra var: „Hvernig skilgreinir þú ríki þar sem lögregla beitir aðferðum sem þessum til að koma í veg fyrir að fjöl­miðlar sinni sínu lýðræðis­lega hlutverki, nefnilega frétta­flutningi og eðlilegu aðhaldi við stjórn­völd?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár