Biden í bobba vegna alvarlegra ásakana

Joe Biden, sem væntanlega verður forseta­fram­bjóðandi demókrata gegn Donald Trump í haust, svaraði í gær fyrir ásakanir um kynferðis­ofbeldi sem hann er sakaður um að hafa beitt árið 1993. Hann þvertekur fyrir að atvikið hafi átt sér stað.

Joe Biden, sem verður forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins nema eitthvað mjög óvænt gerist, svaraði í gær fyrir ásakanir um kynferðislegt ofbeldi.
Joe Biden, sem verður for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins nema eitt­hvað mjög óvænt ger­ist, svar­aði í gær fyrir ásak­anir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Mynd: EPA

„Nei, þetta er ekki satt. Ég segi það fortaks­laust, þetta gerðist aldrei nokkurntíma“ sagði Joe Biden í sjónvarps­viðtali á MSNBC í gær, þar sem hann svaraði alvarlegum ásökunum konu að nafni Tara Reade í fyrsta skipti frá því að þær komu fram fyrir nokkrum vikum síðan.

Reade sakar Biden um að hafa beitt sig kynferðis­ofbeldi fyrir 27 árum síðan, vorið 1993 á göngum þing­hússins í Washington. Reade starfaði þar sem aðstoðar­maður á skrif­stofu Bidens, sem var á þessum tíma öldunga­deildar­þingmaður.

Reade, sem er í dag 56 ára gömul, sagði í viðtali í hlaðvarps­þætti í mars að Biden hefði króað hana af upp við vegg, káfað á henni innanklæða og stungið fingrum sínum í leggöng hennar, þvert gegn hennar vilja.

Fjöl­miðlar vestanhafs hafa síðan þá reynt að leita stað­festingar á ásökununum og rætt við fólk sem hún umgekkst á þessum tíma. Bróðir Reade og nokkrir vinir hennar hafa sagt fjöl­miðlum að þeir muni eftir því að hún hafi rætt málið við þá á sínum tíma með þeim hætti sem hún lýsir nú, en yfirmenn hennar og samstarfs­menn í þing­húsinu muna ekki til þess að hún hafi nokkru sinni lýst atviki sem þessu.

Vitnis­burðir þeirra sem rætt hefur verið við styðja þannig ýmist við ásökun Reade eða renna stoðum undir neitun Bidens. Ljóst er þó, eins og oftast í svona málum, að einungis þau tvö geta vitað hver sann­leikurinn í reynd er.

Eitt af því sem styður við sögu Reade er einnig það að hún var vissulega í hópi kvenna sem stigu fram með kvartanir í garð Biden síðasta vor, um að hann hefði faðmað þær eða snert á óþægilega vegu í gegnum tíðina.

Ásökun hennar á hendur Biden um kynferðis­brot kom þó ekki fram fyrr en núna í mars­mánuði, en Reade segir sjálf að hún hafi áður reynt að koma þessari sögu sinni á framfæri við fjölmiðla, sem hafi ekki viljað birta frásögn hennar.

Hvað sem rétt reynist í þessu máli er ljóst að það gæti orðið óþægilegt í meira lagi fyrir Biden, sem hefur í gegnum tíðina stillt sér upp sem baráttu­manni gegn kynbundnu ofbeldi. Það er búið að taka framboðs­teymi hans margar vikur að ákveða hvernig hann eigi að svara fyrir ásökunina og demó­kratar eru sagðir hafa áhyggjur af því að málið gæti orðið honum til vansa í komandi baráttu við Donald Trump.

Leitað að skjali sem kannski er til en kannski ekki

Reade segir að hún hafi kvartað undan framferði Biden við mannauðs­deild þingsins eftir atvikið árið 1993, en segir sjálf að hún hafi að vísu einungis kvartað undan áreiti (e. harassment) en ekki þeirri kynferðis­árás (e. assault) sem hafi þó átt sér stað.

Biden sagði í gær að ef Reade hefði virkilega kvartað undan atvikinu, eins og hún heldur fram, myndi það skjal finnast í þjóð­skjalasafni Banda­ríkjanna. Í yfir­lýsingu sem Biden birti í gær kallaði hann eftir því að þjóð­skjala­safnið leitaði að kvörtuninni sem Reade segist hafa lagt fram. Þjóð­skjala­safnið svaraði forseta­fram­bjóðandanum síðdegis í gær og sagðist ekki hafa gögn um starfs­mannamál þingsins. Slík gögn væru í höndum öldunga­deildarinnar. Framboð Bidens hefur beðið um frekari leit þar.

„Ég er handviss um að það er ekki neitt. Ég er ekki með neinar áhyggjur af því. Ef það er kvörtun, þá væri hún þar, þar væri hún skjöluð. Og ef hún er þarna, birtið hana. En ég hef aldrei séð hana. Enginn hefur séð hana, svo ég viti til, sagði Biden í viðtalinu við MSNBC í gær.

En ýmsir kalla nú eftir því að Biden taki af allan vafa um hvort þetta skjal sé til og leyfi leit í öðrum skjölum en þeim sem þjóð­skjala­safnið eða þingið geymir. Árið 2012 ánafnaði Biden Delaware-háskóla skjöl sín frá 36 ára löngum þing­ferlinum, einhverja 2.000 kassa af skjölum og 400 gígabæt af rafrænum gögnum. Ekki stendur til að gera skjölin opinber fyrr en Biden hættir í stjórn­málum.

Hann neitar, enn sem komið er, að leyfa leit í þessum skjölum og segir útilokað að einhver gögn um starfs­mannamál skrif­stofu hans hefðu ratað þangað. Biden sagði í gær að í skjölunum væru viðkvæm gögn frá stjórn­málaferli hans, sem andstæðingar hans gætu nýtt gegn honum í yfir­standandi kosninga­baráttu.

Ritnefnd New York Times skrifaði um þetta í gær og sagði að Biden og Demókrata­flokkurinn yrðu að taka af allan vafa um málið og leyfa óháðri nefnd að fara í gegnum skjala­safnið í Delaware.

„Jafnvel þó að vissa muni ekki nást í þessu máli á bandaríska þjóðin skilið að fá að vita að hann og Demókrata­flokkurinn hafi gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að leiða sann­leikann í ljós,“ segir í grein ritnefndarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár