TM með þriðju afkomuviðvörunina í Kauphöllinni

TM gerir ráð fyrir 200 millj­óna króna tapi á öðrum árs­fjórð­ungi 2018, en það er 700 millj­ónum króna lægri spá en áður var talið. Afkomu­við­vörun félags­ins er sú þriðja í Kaup­höll­inni í vik­unni.

Höfuðstöðvar TM í Síðumúla
Höf­uð­stöðvar TM í Síðumúla Mynd: Aðsend

Trygg­inga­mið­stöðin hf. sendi frá sér afkomu­við­vörun fyrir annan árs­fjórð­ung 2018 fyrr í dag, en þar voru tekjur fyr­ir­tæk­is­ins lækk­aðar um 700 millj­ónir króna. Þetta er þriðja afkomu­við­vörun í Kaup­höll­inni í vik­unni, en tvær þeirra hafa verið frá trygg­inga­fyr­ir­tækjum.

Fyrst Icelandair, svo VÍS og TM

Á sunnu­dag­inn birt­ist afkomu­við­vörun Icelandair fyrir annan árs­fjórð­ung, en afkomu­spá flug­fé­lags­ins lækk­aði um 30%. Samkvæmt félag­inu vógu verð­hækk­anir á olíu án hækk­unar á flug­far­gjöldum þyngst auk minnk­andi sam­keppn­is­hæfni Íslands vegna sterk­ari krónu. Í kjöl­far við­vör­un­innar lækk­uðu hluta­bréf í félag­inu um tæpan fjórð­ung á einum degi og OMX vísi­talan sömu­leiðis um 3,7%.

Tveimur dögum sinna birt­ist svo afkomu­við­vörun VÍS, en vátrygg­inga­fé­lagið nefndi nei­kvæða þróun á hluta­bréfa­mark­aði auk stór­tjóna á tíma­bil­inu sem helstu ástæðu lækk­un­ar­innar. Vegna áður­nefndra ástæðna verður afkoma VÍS á öðrum árs­fjórð­ungi um 1,1 millj­arði lægri en áður var talið.

Loks birti TM nýja afkomu­við­vörun í morgun, en sam­kvæmt félag­inu eru helstu ástæður lækk­unar afkom­un­ar­innar einnig óhag­stæð þróun á verð­bréfa­mörk­uðum ásamt aukn­ingu í tjóna­kostn­aði. Félagið hafði áður gert ráð fyrir um 500 millj­óna króna hagn­aði fyrir skatta, en hefur nú lækkað spá sína niður í 200 millj­óna króna tap.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár