Í þá tíð… Argentínski herinn gerir innrás í Falklandseyjar

Hátt í þúsund manns týndu lífi í skamm­vinnu stríði um yfirráð yfir harðbýlum eyjaklasa í Suður-Atlantshafi.

Argentínski innrásarherinn á götum Port Stanley.
Argent­ínski inn­rás­ar­her­inn á götum Port Stanley.

Á þessum degi fyrir réttum 35 árum, hinn 2. apríl árið 1982, gerði argentínski herinn innrás í Falklandseyjar, vind­blásinn eyjaklasa undir stjórn Bretlands, sem liggur um 300 sjómílur undan ströndum Argentínu. Íbúar eyjanna voru um 1.800 talsins, flestir ensku­mælandi sauðfjár­bændur.

Þessi aðgerð, sem gekk undir nafninu „Rosario“, var hápunktur margra áratuga deilna milli Breta og Argentínu­manna.

Þrátt fyrir að ekki sé talið útilokað að frumbyggjar Tierra del Fuego, syðsta odda Suður-Ameríku, hafi einhvern tíma siglt til eyjanna er talið að breskir sæfarar hafi séð eyjarnar fyrstir Evrópu­manna undir lok sextándu aldar og árið 1690 varð breskur sjóliðs­foringi, John Strong að nafni, fyrsti maðurinn sem sögur fara af sem steig fæti á eyjurnar og nefndi þær eftir yfirmanni sínum í sjóhernum, greifanum af Falkland. Raunar var það fyrst sundið milli stærstu eyjanna tveggja í eyja­klasanum sem var kennt við Falkland greifa, en það nafn festist svo síðar við eyjarnar í heild, í enskri tungu að minnsta kosti.

Svo vildi nefnilega til að enginn þeirra sem leið átti hjá Falklandseyjum fann sig sérstak­lega knúinn til þess að setjast þar að fyrr en árið 1764 þegar franski land­könnuðurinn Louis-Antoine de Bougainville stofnaði fyrstu byggðina á eyjunum, sem hann nefndi Îles Malouines sem var síðar yfirfært á spænsku sem Islas Malvinas.

Spán­verjar og Bretar tóku yfir stjórn á sinni hvorri hinna stærstu eyja í klasanum skömmu síðar, en höfðu yfirgefið stöðvar sínar snemma á 19. öld, enda fátt um efnahags- eða fjárhags­lega hvata til að dvelja þarna, svo óralangt frá heima­högum og alvöru hagsmunum.

Deilur um yfirráð

1816 braust Argentína undan stjórn Spánverja og lýsti yfir sjálf­stæði og fjórum árum síðar voru Falklandseyjar yfir­lýstur hluti ríkisins. Þar var reist herstöð, sem var svo lögð í rúst árið 1832 af bandarísku herskipi í hefndar­skyni fyrir upptöku Argentínu­manna á bandarískum selveiði­bátum á svæðinu.

Ári síðar komu Bretar aftur og hröktu á brott þá argentínsku embættis­menn sem eftir sátu og hertóku eyjurnar. Áður en langt um leið var þar komið sjálfbært samfélag sem varð formlega bresk nýlenda árið 1892.

Fátt eitt dró til tíðinda á Falklandseyjum næstu áratugina þrátt fyrir að Argentínu­menn héldu sífellt til streitu kröfum sínum um yfirráð yfir eyjunum. Einhverjar þreifingar voru víst milli Bretlands og Argentínu í upphafi níunda áratugarins um að færa Falklandseyjar undir argentínska stjórn, en þær viðræður náðu ekki alvöru flugi.

Stríð til heimabrúks

Þegar komið var farm á níunda áratug tuttugustu aldar var herforingja­stjórn við völd í Argentínu og hafði stjórnað þar með harðri hendi frá árinu 1976. Pyntingar og óútskýrð manns­hvörf voru daglegt brauð í Argentínu á þessum tíma og bágt efnahags­ástand varð enn til að magna óánægu almennings með stjórn­völd.

Ákvörðunin um innrás í Falklandseyjar var því ekki síst til þess ætluð að auka vinsældir herforingja­stjórnarinnar með því að efla þjóðernis­kennd og stilla Bretum upp sem sameiginlegum óvini þjóðarinnar.

Þrátt fyrir að eyja­skeggjar hafi í sjálfu sér ekki verið með full réttindi sem breskir borgarar þykir þó ljóst að takmörkuð stemmning var meðal almennings á Falklandseyjum að kasta sér í faðm Argentínu.

Snörp innrás

Innrásin sjálf átti sér stuttan aðdrag­anda, en Argentínu­menn höfðu verið við eftirlit, meðal annars með kafbátum undan ströndum eyjanna vikurnar og mánuðina á undan og voru einhverjar grun­semdir farnar að vakna meðal Breta um að eitthvað stæði til.

Það var svo snemma morguns 2. apríl að innrásin hófst og hún tók skjótt af. Argentínu­menn höfðu á að skipa um mörg hundruð hermönnum gegn 68 Bretum. Innrásar­liðið var þó með skýr fyrirmæli um að drepa enga í breska setu­liðinu. Var það von Argentínu­manna að Bretar myndu þá síður beita hervaldi til að taka eyjurnar á ný. Einn Argentínu­maður lést í skot­bardaga og þrír særðust.

Land­stjórinn Rex Hunt tilkynnti uppgjöf í höfuð­borginni Port Stanley þann sama morgun.

Innrásin var gagnrýnd á alþjóða­vettvangi þar sem bæði Evrópu­bandalagið og Sameinuðu þjóðirnar ályktuðu með Bretum og Banda­ríkin beittu Argentínu efnahags­legum refsiaðgerðum.

Ekki svo snörp viðbrögð

Viðbrögð Breta við innrásinni voru miklu harðari en Argentínu­menn höfðu reiknað með, bæði hjá stjórn­völdum og almenningi, en það var eitt atriði sem takmarkaði nokkuð viðbragðs­flýtinn, en það var vitanlega sú staðreynd að 8.000 sjómílur skilja að Falklandseyjar og Bretland.

Þó að flotinn hafi verið sendur af stað hinn 5. apríl liðu meira en tvær vikur þar til Bretar náðu landi. Það var hinn 21. apríl sem breski herinn hóf sókn á eyjunni South Georgia og fjórum dögum síðar höfðu þeir hrakið innrásar­herinn þaðan.

Hörð átök

Í hönd fóru svo harkaleg átök, fyrst í lofti þar sem Argentínskar flugvélar gerðu árásir á bresku skipin, og breskar flugvélar vörpuðu sprengjum á flug­völlinn í Port Stanley.

Hinn 2. maí sökkti breskur kafbátur svo skipinu Belgrano en með því fórust um 320 argentínskir skip­verjar. Þetta var mann­skæðasti atburður stríðsins.

Bretar náðu landi í San Carlos á vestur­hluta eyjunnar East Falkland hinn 21. maí og tóku stefnuna á Port Stanley, sem var í tæplega 100 km fjarlægð. Eftir nokkurra vikna barning, þar sem tugir féllu í liðum beggja, ruddu Bretar Argentínu­mönnum burt úr hæðunum umhverfis Port Stanley.

Uppgjöf og eftirleikur

Þegar þarna var komið þótti nokkuð ljóst í hvað stefndi og hinn 14. júní var lýst yfir vopnahléi. Foringi argentínska herliðsins tilkynnti um uppgjöf að kvöldi þess dags. Falklandseyjar voru aftur komnar undir breska stjórn eftir 74 daga ófrið.

Áhrif stríðsins voru talsverð í báðum ríkjum þar sem leiðtogar áttu ólíku fylgi að fagna. Annars vegar varð Margret Thatcher forsætis­ráðherra gríðar­lega vinsæl og Íhalds­flokkurinn vann stórsigur í kosningunum 1983, og hins vegar átti Leopoldo Galtieri, forseti og yfirmaður herforingja­stjórnarinnar, sér ekki viðreisnar von og sagði af sér embætti þremur dögum eftir uppgjöfina.

Bretland og Argentína tóku aftur upp stjórnmála­samband árið 1990 en deilan um yfirráð yfir Falklandseyjum er enn í dag ásteytingar­steinn í samskiptum ríkjanna. Málið er sérstak­lega viðkvæmt í Argentínu þar sem rykið er reglulega strokið af því þegar þörf er á að slá pólitískar keilur á heima­velli. Til dæmis var Cristina Fernandez de Kirchner ófeimin við að nýta sér deilurnar á meðan hún var forseti Argentínu.

Engar líkur eru þó á því að breyting verði á högum íbúa á næstunni þar sem kjósendur samþykktu, í þjóðar­atkvæða­greiðslu árið 2013 að heyra áfram undir Bretland. Atkvæði féllu þannig að 1.513 sögðu já, en þrír voru á móti. Líklegt þykir, að mati þeirra sem til þekkja, að einn hinna þriggja hafi frekar viljað fullt sjálf­stæði eyjanna en ekki argentínsk yfirráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár