Vonar að Katrín verði ekki búin að gleyma nýlegri grein sinni eftir næstu kosningar

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að það sé ekki nóg að setja fal­leg orð niður á blað. Það sé algjör­lega til­gangs­laust nema því sé fram­fylgt með því að mynda þannig rík­is­stjórn. Slík sé ekki við völd í augna­blik­inu.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að það séu til öfl í íslenskum stjórn­málum sem vilji nýta tækni­bylt­ingu til að jafna lífs­kjör, auka fram­leiðni og minnka vist­spor, sem sé ákjós­an­leg leið til að veðja á fyrir lítið land eins og Ísland. „Ég tek undir með for­sæt­is­ráð­herr­anum okkar í grein sem hún birti í Progressive International þar sem hún segir að það sé bein­línis skylda okkar að vinna saman, ekki síst á þessum tímum og að byggja upp félags­legt rétt­læti og efna­hags­lega vel­sæld. En það er ekki nóg að setja fal­leg orð niður á blað, það er algjör­lega til­gangs­laust nema þú fram­fylgir því með því að mynda þannig stjórn. Við erum ekki með þannig stjórn í augna­blik­inu en ég ætla svo sann­ar­lega að vona að þessi grein verði ekki gleymd eftir næstu kosn­ingar.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali Kjarn­ans við Loga sem birt var fyrir helgi. Við­talið er hluti af umfjöll­un­ar­röð Kjarn­ans þar sem sjónum er beint að þeirri fram­tíð sem gæti sprottið upp úr stöð­unni sem nú blasir við Íslandi efna­hags­lega. Fyrsti hluti þeirrar umfjöll­unar voru við­töl við alla þrjá for­menn stjórn­ar­flokk­anna. Næsti hluti eru við­töl við for­svars­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna.

Stórt land með fáar hendur

Logi segir Ísland sé stórt land með fáar hendur og mjög langt frá öðrum löndum og mörk­uðum. „Þannig að það að við veiðum mik­inn fisk helg­ast af því að hvað hægt sé að draga mikið úr sjó og hversu mikið sé hægt að vinna. Það á við um öll þessi hefð­bundnu störf sem við höfum byggt afkomu okkar á. Þessi staf­ræna vara lýtur bara auð­vitað allt öðrum lög­málum. Við getum með hug­vit­inu búið til enda­laust magn af staf­rænni vöru sem hægt er að koma á markað í fjar­lægum heims­álfum á nokkrum sek­úndum án þess að það kosti nokkra pen­inga eða vist­spor. Þannig að þessi tækni­bylt­ing gæti í raun­inni jafnað lífs­kjör okkar. Hún gæti aukið fram­leiðni sem er gríð­ar­lega mik­il­vægt núna þegar fleiri og fleiri eru að verða eldri sem hlut­fall af þjóð­inni. Og hún gæti líka minnkað vist­spor okkar alveg hell­ing. Þetta er ákjós­an­leg leið að veðja á fyrir lítið land.“

Þekkt stef í málflutningi Loga

Logi hefur margoft lýst því yfir á kjör­tíma­bil­inu að hann vilji mynda ákveðna teg­und rík­is­stjórnar eftir næstu kosn­ingar. Í við­tali við Mann­líf í jan­úar í fyrra sagði Logi að hann vildi rík­is­stjórn með Við­reisn, Pírötum og Vinstri græn­um. „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­­legum og góðum málum á dag­­skrá ef við myndum mynda rík­­is­­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­­fylk­ingin væri kjöl­­fest­u­­flokkur og við hefðum svo Við­reisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okk­­ur.“

Á flokk­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem fór fram í mars 2019 sagði hann að Ísland þyrfti ekki jafn­­vægi Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins sem byggði á því að örfáir sitja öðru megin á vega­salt­inu, með þorra gæð­anna en allur almenn­ings héldi jafn­­vægi hinum meg­in.

Á öðrum flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar sem hald­inn var í októ­ber í fyrra fjall­aði hann meðal ann­ars um, í ræðu sinni þar, hversu stór tíð­indi ný staða Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins vegna minnk­andi fylgis væri og að aðrir flokkar þurfi að bregð­­ast við þessum nýja veru­­leika sem blasti við í íslenskum stjórn­­­mál­­um. Hann sagði þetta vera sög­u­­legt tæki­­færi fyrir Sam­­fylk­ing­una til að fylkja saman umbóta­öfl­unum í land­inu og sýna að það sé til betri val­­kostur fyrir íslenskan almenn­ing en núver­andi rík­­is­­stjórn. 
„Næsta stóra verk­efni okkar er þetta: Við verð­um, og segjum það bara skýrt, við verðum að fella þessa rík­­is­­stjórn í kosn­­ing­unum 2021, til að mynda betri, djarfari og víð­­sýnni stjórn fyrir fólkið í land­inu og kom­andi kyn­­slóðir - við verðum að rísa undir þeirri ábyrgð.“

Í umræðum um stöð­una í stjórn­málum í byrjun árs, sem fram fór á Alþingi 20. jan­úar síð­ast­lið­inn, sagði hann að kom­inn væri tími til að hætta að láta Sjálf­stæð­is­flokk­inn enda­laust velja sér nýja dans­fé­laga eftir kosn­ingar og stjórna eftir eigin geð­þótta. „Nú er kom­inn tími sam­stilltr­ar, djarfrar og víð­sýnnar stjórn­ar, án Sjálf­stæð­is­flokks­ins - fyrir allt fólkið í land­inu og kom­andi kyn­slóð­ir. Stjórn sem leggur alla áherslu á rík­ara félags­legt rétt­læti og hefur á sama tíma meiri sköp­un­ar­kraft, fram­sýni og hug­rekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár