Mynd: Bára Huld Beck

Alvarlegt ef Íslendingar ætla að „ræsa vélina óbreytta“

Kjarninn tal­aði við full­trúa í stjórn­ar­and­stöð­unni til þess að kanna hvernig þeir sæju fram­tíð­ina fyrir sér – og hvaða leiðir væru bestar út úr þessu ástandi. Næstur er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Logi Ein­ars­son.

Ég held að við séum ein­fald­lega of lítið sam­fé­lag til þess að við getum unað við fátækt í sama mæli og kannski stór­þjóðir geta þar sem hægt er að loka aug­unum fyrir svo­leiðis. Við þekkjum öll fólk sem er í vanda – þetta er svo nálægt okkur og ég held að við séum það ríkt land, bæði af mannauði en líka af nátt­úru­auð­lindum, að ef við skiptum þessu á milli okkar þá gætum við hrein­lega verið fyrsta landið til þess að útrýma því sem að heitir fátækt á Íslandi.“

Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um hug­myndir hans er varða Ísland fram­tíð­ar­innar en nú stendur þjóðin frammi fyrir miklum áskor­unum vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Hann bendir á að 8.000 börn búi við fátækt á Íslandi og að það snerti alla – því allir þekki fjöl­skyldur sem glíma við þessar aðstæður. Það er hins vegar algjör óþarfi, að hans mati.

Hlutabótaleiðin reynst mikilvægust

Aðgerðir stjórn­valda vegna far­ald­urs­ins voru í fyrstu ekki mjög umdeildar og studdu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar til að byrja með – þó með breyttu sniði eins og gengur. Þegar Logi er spurður út í skoðun hans á þessum aðgerðum þá segir hann að það væri ósann­gjarnt að ætl­ast til þess að allar aðgerðir við svona óvæntar hremm­ingar væru endi­lega eins og þær gætu bestar orðið. „Í því ljósi lýstum við, og í sjálfu sér allir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, því yfir að við myndum leggj­ast á árar með rík­is­stjórn­inni.“

Logi segir að fyrsta aðgerðin, sem í raun byggði á aðgerð í hrun­inu, svokölluð hluta­bóta­leið hafi reynst mik­il­væg­ust. „Síðan hafa auð­vitað komið aðgerðir sem hafa verið til bóta. Hins vegar er synd að það hafi ekki verið hlustað mikið á okkar breyt­ing­ar­til­lögur og við ekki höfð með í ráðum. Því við gerðum ráð fyrir sterk­ari við­spyrnu strax – meiri fjár­fest­ingum, ekki síst í nýsköpun sem þarf að vera lyk­ill­inn að okkar dyrum inn til nýrrar fram­tíðar.“

Komið að vatnaskilum

Logi segir að nú sé komið að vatna­skilum hjá Íslend­ingum. Á síð­ustu vikum voru lögð fram tvö frum­vörp, sem sagt end­ur­bætt útgáfa af hluta­bóta­leið­inni og hins vegar laun fyrir fólk í upp­sagn­ar­fresti, og sam­þykkt. „Á manna­máli er verið að aðstoða fyr­ir­tæki að reka fólk. Hug­myndin á bak við það er skilj­an­leg að því leyti að fyr­ir­tækin þurfa hugs­an­lega að taka á sig nýja mynd og stramma sig síðan aðeins niður til þess að eiga ein­hverja lífs­von og við­spyrnu þegar þessu líkur. Vanda­málið hins vegar er að eins og hluta­bæt­urnar eru útfærðar núna þá er bein­línis hvati til þess að fara frekar þá leið að segja upp fólki heldur en að halda ráðn­inga­sam­bandi við það.“

Nú sé að renna upp tími þar sem ein­hver von er um rekstur með komu inn­lendra og erlendra ferða­manna. Þá sé miklu áskjós­an­legra að segja fólki upp og láta það vinna 100 pró­sent afköst á þriggja mán­aða upp­sagn­ar­fresti, frekar en að fara hluta­bóta­leið­ina þar sem fólk má ekki vinna meira en því sem nemur því hlut­falli sem launa­greið­andi borgar.

„Við höfum sagt að þessi frum­vörp virki mjög illa saman og ég hefði frekar vilja sá að við hefðum haldið okkur við hluta­bóta­leið­ina, jafn­vel víkkað hana út – og jafn­vel borga 100 pró­sent af launum starfs­manna. En þá hefðum við að minnsta kosti haldið þessu ráðn­inga­sam­bandi og kannski ekki þurft að horfast í augu við það í lok sum­ars að ef ein­hver verði ráð­inn aftur inn á launa­skrá að þeir verði ráðnir inn á nýjum og verri kjörum.

Þetta var fyrsta stóra COVID-málið sem við gátum ekki stutt,“ segir hann.

Logi Einarsson Mynd: Birgir Þór Harðarson
Logi Ein­ars­son Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Viss um að samráðsleysið verði seinna gagnrýnt

Eins og áður segir gefur Logi stjórn­völdum ákveðið rými vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru. „Já, rík­is­stjórn verður alltaf að hafa meira oln­boga­rými í svona utan­að­kom­andi áföllum. Síðan fer það eftir hverjum og einum þjóð­ar­leið­tog­anum hversu vel hann fer með það oln­boga­rými.“

Hann telur að rík­is­stjórnin hefði stækkað og aukið trú­verð­ug­leika sinn ef hún hefði strax í upp­hafi, eins og víða hafi verið gert ann­ars staðar í heim­inum, kallað stjórn­ar­and­stöð­una í aukið sam­ráð. „Þetta er í raun enn alvar­legra því á þessum tíma þá var líka þrengt að starf­semi Alþingis, vegna þess að veiran setti okkur tak­mörk, og ef við hefðum ekki þrátt fyrir allt – tja, hvað á ég að segja – almenni­legt fólk sem situr í ráð­herra­stól­unum þá held ég að það hefðu heyrst hærri raddir. Ég er viss um að seinna meir verði þetta gagn­rýnt.“

Þegar Logi er spurður út í það hvers vegna þverpóli­tískt sam­starf sé mik­il­vægt segir hann að Íslend­ingar sigli nú ekki inn í kreppu sem eigi sér stað vegna þess að rík­is­stjórnin hafi vert mis­tök í sjálfu sér. „Auðvitað var efna­hags­lífið farið að kólna og það var margt sem þessi rík­is­stjórn, og ekki síst þessar síð­ustu, gerðu rangt í aðdrag­anda – því það lá fyrir að það myndi halla undan fæti. En þau sann­ar­lega bera ekki ábyrgð á kór­ónu­veirunni.

Í því ljósi þegar verið er að aftengja alla venju­lega hag­stjórn – þegar hag­fræð­ingar hafa engin svör hvað ger­ist þegar fram­boð og eft­ir­spurn fellur á sama tíma – þá þarf frum­legar og djarfar lausnir og það þarf ekki síst sam­stöðu hjá þjóð­inni um þær aðgerðir – eins og til dæmis var um aðgerðir heil­brigðisteym­is­ins. Og þess vegna held ég að það hefði verið heppi­legra fyrir þjóð­arsál­ina og fyrir rík­is­stjórn­ina líka, því við munum líka eðli­lega, ef við erum ekki höfð með í ráðum, benda á þau mis­tök sem þau gera á leið­inni sem við hefðum viljað gera öðru­vísi.“

Pólitísk umræða gæti orðið býsna harkaleg

Logi gerir ráð fyrir því þegar líða fer á haustið og við mörgum blasir harður vetur. Þegar atvinnu­leysi og ójöfn­uður hefur auk­ist, þá gæti póli­tísk umræða orðið býsna harka­leg. „Og ég held að hún verði að vera það. Þrátt fyrir allt þá er þetta réttur tími til að ræða grund­vall­ar­gildi og spyrja: Hvers konar sam­fé­lag viljum við hafa?

Ég held að við getum verið sam­mála um það allir þing­menn að við erum ekki að reka sjoppu, við erum að reka sam­fé­lag þar sem leik­regl­urnar verða að vera skýrar – eðli­lega. Og gagn­sæjar og lýð­ræð­is­legar. Og í raun þarf fram­tíð­ar­sýnin að miða að því að við skilum næstu kyn­slóð meiri gæðum heldur en við bjuggum við – eða að minnsta kosti ekki verri.“

Um þær leiðir er síður en svo sátt á milli stjórn­mála­flokk­anna, að sögn Loga. Það er það sem geri núver­andi stjórn­ar­sam­starf áhuga­vert. „Af því að um leið og við þurfum að takast á við þessar grund­vall­ar­spurn­ingar og að við vitum að við erum á kross­götum, þá er ekki gott að hafa rík­is­stjórn sem deilir ekki sýn á fram­tíð­ina. Sem deilir ekki einu sinni sýn á grund­vall­ar­hluti eins og til­gang og eðli skatt­kerf­is­ins. Þau virð­ast hafa getað sam­ein­ast um að við­halda ein­hverjum mein­göll­uðum kerfum í sjáv­ar­út­vegi til dæmis. En annað ekki.“

Logi Einarsson
Logi Ein­ars­son

Verðum að taka mjög alvarlega umræðu um skattkerfið

Hver er þá fram­tíð­ar­sýn Loga og þeirra í Sam­fylk­ing­unni? „Í fyrsta lagi verðum við að fara að taka mjög alvar­lega umræðu um skatt­kerfið og þora að ræða um það. Er til­gangur þess að afla ein­ungis tekna til þess að standa undir lág­marks­þjón­ustu eða er til­gang­ur­inn að afla tekna til þess að standa undir góðri þjón­ustu – og um leið jafna kjörin? Við þurfum að gera það.“

Þá bendir hann á þann lofts­lags­vanda sem mann­kynið stendur frammi fyrir og telur hann að mik­il­vægt sé að takast á við þann vanda. „Við erum að sigla inn í mjög spenn­andi umhverfi tækni­breyt­inga sem mun gjör­bylta öllum okkar lifn­að­ar­háttum. Og spurn­ingin er: Viljum við nýta okkur þær til þess að ráð­ast gegn ójöfn­uði, ráð­ast gegn lofts­lags­breyt­ingum og jafna kjörin eða ætlum við að byggja áfram ein­ungis á auð­lindum okkar með mjög frum­stæðum hætti?“ spyr Logi.

Hann telur enn fremur að Íslend­ingar hafi of fáar stoðir í atvinnu­líf­inu. „Við höfum leyft einni stoð­inni, ferða­þjón­ust­unni, að vaxa algjör­lega stjórn­laust án þess að gera nokkrar til­raunir til þess að marka okkur ein­hverja stefnu. Greinin skipti auð­vitað gríð­ar­legu máli í við­spyrn­unni eftir fjár­mála­hrunið og renndi stoðum undir störf og verð­mæta­sköpun um allt land. En við hefðum á sínum tíma alveg örugg­lega þurft að stuðla að fjöl­breytt­ara atvinnu­lífi, styðja til dæmis betur við vaxta­brodda tengda nýsköpun eða tækni­þróun og reyna að stjórna vexti ferða­þjón­ust­unnar, til að mynda með því að taka gjöld af ferða­mönnum. Í stað­inn byggðum við upp eina risa­stóra stoð, svo stóra að ef hún félli eða svign­aði þá værum við í stór­kost­legum vanda – og ekki síst þess vegna erum við í meiri vanda en margar nágranna­þjóðir okkar.“

Nú virð­ist allir vera sam­mála um að þörf sé á að styrkja nýsköpun – en að mati Loga er ekki nóg að tala um það, það þurfi að vera ein­hver vilji til þess – og Íslend­ingar þurfi að hafa lang­lund­ar­geð því upp­bygg­ing slíkra fyr­ir­tækja skili ekki ávöxt fyrr en eftir ára­tug, tvo eða þrjá.

Ekki nóg að setja falleg orð niður á blað

Logi segir að skap­andi störf og þessi tækni­bylt­ing sem Íslend­ingar séu að sigla inn í sé ákjós­an­leg fyrir land og þjóð. „Ísland er stórt land með fáar hendur og mjög langt frá öðrum löndum og mörk­uðum. Þannig að það að við veiðum mik­inn fisk helg­ast af því að hvað hægt sé að draga mikið úr sjó og hversu mikið sé hægt að vinna. Það á við um öll þessi hefð­bundnu störf sem við höfum byggt afkomu okkar á. Þessi staf­ræna vara lýtur bara auð­vitað allt öðrum lög­málum. Við getum með hug­vit­inu búið til enda­laust magn af staf­rænni vöru sem hægt er að koma á markað í fjar­lægum heims­álfum á nokkrum sek­úndum án þess að það kosti nokkra pen­inga eða vist­spor. Þannig að þessi tækni­bylt­ing gæti í raun­inni jafnað lífs­kjör okkar. Hún gæti aukið fram­leiðni sem er gríð­ar­lega mik­il­vægt núna þegar fleiri og fleiri eru að verða eldri sem hlut­fall af þjóð­inni. Og hún gæti líka minnkað vist­spor okkar alveg hell­ing. Þetta er ákjós­an­leg leið að veðja á fyrir lítið land.“

Hann telur að Íslend­ingar verði enn fremur að ná saman, það er öfl í stjórn­málum sem vilja fara þessa leið og vinna saman. „Ég tek undir með for­sæt­is­ráð­herr­anum okkar í grein sem hún birti í Progressive International þar sem hún segir að það sé bein­línis skylda okkar að vinna saman, ekki síst á þessum tímum og að byggja upp félags­legt rétt­læti og efna­hags­lega vel­sæld. En það er ekki nóg að setja fal­leg orð niður á blað, það er algjör­lega til­gangs­laust nema þú fram­fylgir því með því að mynda þannig stjórn. Við erum ekki með þannig stjórn í augna­blik­inu en ég ætla svo sann­ar­lega að vona að þessi grein verði ekki gleymd eftir næstu kosn­ingar.“

Lykillinn að nýsköpun er menntun

Varðandi nýsköp­un­ina þá segir Logi að lyk­ill­inn að henni sé menntun. „Og auð­vitað mennta­kerfi sem byggir á for­sendu nem­and­ans en ekki ein­hvers til­tek­innar gerð af atvinnu­lífi. Ég held að við þurfum að efla þessa sígildu hluti eins og rann­sókn­ar­styrki og styrkja fyr­ir­tæki sem eru í mjög áhættu­sömum rekstri sem við vitum ekki hvað verður um en sem þurfa – eins og það heitir á fínu efna­hags­máli – þol­in­mótt fjár­magn.

En ég held hins vegar að lyk­ill­inn sé alltaf menntun, eins og ég sagði áður, og við gerum allt of lítið úr því hér á Íslandi að efna sköp­un­ar­gleði í skólum – og þarna er ég ekki bara að tala um háskóla heldur einnig grunn­skóla. Mjög lengi hefur verið litið þannig á að list­greinar og hand­verks­greinar séu auka­fög, svona til að fylla upp í svo skóla­dag­ur­inn verði ekki mjög leið­in­legur. En störf eins og end­ur­skoð­andi, list­mál­ari, tölv­un­ar­fræð­ingur eða versl­un­ar­maður byggja á því að þú sért skap­andi og að þú getir fram­leitt það óvænta. Gert mikil verð­mæti úr litlu. Það er ekki nóg að sulla niður á hverjum ein­asta stað á land­inu flottum fablab-verum. Við þurfum líka fólk með þekk­ingu sem getur kennt okkur hvernig hægt sé að ná miklum verð­mætum úr litlu.“

Hann leggur áherslu á að fram­tíðin verði að byggja á því að Íslend­ingar búi til meiri verð­mæti úr því sem þeir hafa, og jafn­vel minna en því sem þeir hafa í dag, vegna þess að lík­leg­ast verði ekki hægt að ganga eins mikið á umhverfið og nátt­úr­una eins og gert hefur verið hingað til.

Stoðirnar í atvinnulífinu verða að vera fleiri og fjölbreyttari

Nokkuð hefur verið rætt um það að eftir far­ald­ur­inn verði til breytt sam­fé­lag; hvernig við störfum og höfum sam­skipti okkar á milli. Logi segir að hægt sé að líta á þetta ástand sem tæki­færi og að það verði að byggja á fjöl­mörgu.

„Það verður að byggja á fram­tíð­ar­sýn í atvinnu­líf­inu sem gerir stoð­irnar fleiri og fjöl­breytt­ari. En ekki síður þarf að byggja á því að við förum að ein­beita okkur að gildum sam­fé­lags­ins: Samhjálp, heið­ar­leika og sam­vinnu. Þegar við getum sæst á slík gildi, sem ég held að flestir Íslend­ingar geti, þá er veg­ur­inn að sann­gjörnu skatt­kerfi og upp­bygg­ingu ókeypis heil­brigð­is­kerfi og mennta­þjón­ustu miklu greið­fær­ari. Þannig held ég að upp geti sprottið miklu betra sam­fé­lag,“ segir hann.

Þá telur Logi að alvar­legt yrði „ef við ætl­uðum að ræsa vél­ina óbreytta eins og hún stopp­aði fyrir nokkrum mán­uðum, og segja bara: Við ætlum að ná hér jafn­mörgum ferða­mönnum og við gerðum áður. Við ætlum að gera allt eins og áður.

Ferða­þjón­ustan verður áfram gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir Ísland en við þurfum að byggja á meiri gæðum, skerpa sér­stöðu okkar þannig að við getum aflað jafn mik­illa tekna þótt ferða­mönnum fækki. En þar skortir ekki síst á að hið opin­bera standi fyrir metn­að­ar­fyllri inn­viða­upp­bygg­ingu.“

Hann segir í fram­hald­inu að Íslend­ingar þurfi að end­ur­hugsa hlut­ina og byggja upp ferða­þjón­ust­una í miklu meiri sátt við nátt­úr­una og í miklu meiri gæðum – jafn­vel þótt umfangið yrði minna. „Við þurfum að fara að snúa okkur að því að sam­þykkja auð­linda­á­kvæði sem tíma­bindur nýt­ing­ar­heim­ildir sem nota þær. Þetta krefst þess að við fáum eðli­legt afgjald af auð­lind­inni svo við getum byggt um sam­fé­lag sem við viljum svo öll hafa.“

Breytingar geta tekið langan tíma

Logi seg­ist vera bjart­sýnn að eðl­is­fari og því líti hann fram­tíð­ina björtum augum. „Mann­kyn­inu hefur þrátt fyrir allt miðað áfram, kannski of hægt, en því miðar áfram. Ég er líka sós­í­alde­mókrati og í því felst að ég sætti mig við að breyt­ingar þurfi og geti tekið langan tíma. Það hefst ekki endi­lega með umbylt­ingu en í mark­vissum skrefum. Ég tel það líka vera raun­hæf­ari leið.

Sjálfur þurfti ég til dæmis nokkrar atrennur að því að hætta að reykja en ef maður gerir það nægi­lega oft, þá á end­anum tekst það. Það sama er að segja með þetta. Við munum örugg­lega ekki sjá sam­fé­lag spretta upp sem er full­komið – og við munum örugg­lega aldrei ná full­komnu sam­fé­lagi. En við erum í færi til þess að gera betra sam­fé­lag.“

Hann hefur þá trú og von að það séu meiri líkur á því að slíkt sam­fé­lag verði til ef umbóta­flokk­arnir og vinstri flokkar í sam­fé­lag­inu nái völdum eftir næstu kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár