Viðvarandi atvinnuleysi getur skapað mikinn ójöfnuð

Ísland er í alvar­legri efna­hag­skreppu. Fyr­ir­liggj­andi er mörg hund­ruð millj­arða króna tap á rekstri rík­is­sjóðs í ár, tugir þús­unda eru án atvinnu að öllu leyti eða hluta og þús­undir fyr­ir­tækja standa frammi fyrir algjörri óvissu um hvort þau lifi eða deyi

Ég held að við getum séð stjórn­málin þró­ast í hvora átt­ina sem er. Ef okkur gengur vel í gegnum þetta þá held ég að við gætum séð traust á stjórn­mál vaxa. Í skamm­tíma­að­gerðum þá er þessi stemn­ing að fólk sé að gera sitt besta og við stöndum saman í gegnum það. Ef erf­ið­leik­arnir verða lang­vinnir þá eru meiri líkur á því að upp spretti öfl sem kalla eftir meiri lýð­skrum­spóli­tík. Þannig að ég held að það geti farið á hvort veg­inn sem er.“

Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra þegar hún er spurð hvort hún hafi áhyggjur af þeim lengri tíma áhrifum sem COVID-19 far­ald­ur­inn geti haft á stjórn­mál á Íslandi. Hún við­ur­kennir það líka að hafa ekk­ert hugsað um það und­an­farið hvenær næstu kosn­ingar eigi að fara fram, en kjör­tíma­bil­inu lýkur í síð­asta lagi í októ­ber á næsta ári. For­sæt­is­ráð­herra var búin að gefa það út að sam­tal myndi eiga sér stað um það á vett­vangi Alþingis í sumar hvort þær verði aftur að hausti, sem er óvenju­legt í Íslands­sög­unni, eða hvort þær verði til að mynda haldnar að vori líkt og hefð er fyrir. Við það ætlar hún að standa þannig að allir stjórn­mála­flokkar verði með skýra hug­mynd um hvenær næst verði kosið þegar næsti þing­vetur hefst.

Katrín seg­ist aldrei kvíða kosn­ingum. Sú gjör­breyt­ing á aðstæðum íslensks efna­hags, og að ein­hverjum leyti sam­fé­lags, á örfáum vikum breyti þar engu um. „Hins vegar held ég að þegar ég horfi á und­an­farnar vikur – þær hafa verið þannig að þráð­ur­inn hefur oft verið stuttur í okkur öllum og þar af leið­andi hefur reynt sam­starf flokka í rík­is­stjórn – að það sam­starf hefur gengið mjög vel. Það hefur gengið vel að taka ákvarð­anir og ná saman á tímum þar sem það er mjög erfitt að taka ákvarð­anir.“

Kerfum umbylt til að takast á við faraldur

Þótt far­ald­ur­inn og eft­ir­köst hans séu krefj­andi þá sér Katrín ýmis­legt áhuga­vert við stöð­una líka. Til að mynda standa allir þjóðir heims nán­ast á sama stað gagn­vart afleið­ingum far­ald­urs­ins og hún telur að það verði áhuga­vert að sjá hvaða lær­dóma heim­ur­inn muni draga af aðstæð­unum. „Ég held nefni­lega að við munum geta dregið ákveðna lær­dóma af því hvernig til dæmis heil­brigð­is­kerfið birt­ist okkur í þessum far­aldri. Því er auð­vitað haldið að stórum hluta uppi af mjög stórum kvenna­stéttum sem hafa brugð­ist við þegar á bját­aði af ótrú­legum sveigj­an­leika og styrk­leika og í raun má segja að heil­brigð­is­kerf­inu hafi verið umbylt til að takast á við þennan far­aldur.

Katrín Jakobsdóttir segist aldrei kvíða kosningum. COVID-19 breyti engu þar um.
Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist aldrei kvíða kosn­ingum. COVID-19 breyti engu þar um.

Við sáum líka að skóla­kerfið okkar gerði nán­ast það sama. Nánast yfir nóttu fóru fram­halds­skólar og háskólar yfir í það að kenna í fjar­kennslu. sem fram að því hafði verið mjög flókið og erfitt verk­efni. Grunn- og leik­skólar umbreyttu líka sínum kennslu­háttum. Þannig að ég held að við getum mjög margt lært af þessum far­aldri, séð hvernig okkar sam­fé­lags­stoðir reyn­ast.

Síðan höfum við verið að reyna að bregð­ast við, kannski með snarp­ari hætti en við gerðum 2008 og 2009, í síð­ustu kreppu, því sem við vitum að verða alltaf afleið­ingar svona ástandi. Þá er ég að tala um félags­leg vanda­mál og heil­brigð­is­vanda­mál sem eru ekki endi­lega tengd far­aldr­inum, heldur eru til dæmis geð­heilsu­tengd. Við erum að reyna að bregð­ast við með því að koma með inn­spýt­ingu núna inn í þá mála­flokka.“

Með reynslu af tiltekt eftir efnahagsáfall

Katrín sat í rík­is­stjórn­inni sem tók við völdum snemma árs 2009, eftir banka­hrunið. Þá var hún mennta­mála­ráð­herra.

Katrín og Svandís Svavarsdóttir sátu báðar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, sem tók við völdum í kjölfar bankahrunsins.
Katrín og Svandís Svav­ars­dóttir sátu báðar í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sem tók við völdum í kjöl­far banka­hruns­ins.

Ásamt Svandísi Svav­ars­dóttur, sam­flokks­konu sinni, og Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, sem var heil­brigð­is­ráð­herra þegar hrunið skall á, er hún eini ráð­herr­ann við rík­is­stjórn­ar­borðið sem hefur reynslu af því að sitja við stjórn þegar efna­hags­á­fall ríður yfir, eða þegar þarf að ráð­ast í fyrstu aðgerðir til að taka til eftir það.

Síðast kom stór hluti batans með auk­inni lands­fram­leiðslu sem rekja mátti til ótrú­legs vaxtar í umfangi ferða­þjón­ustu.

Katrín seg­ist muna vel eftir þeim rík­is­stjórn­ar­fundi þar sem ákveðið var að ráð­ast í mark­aðs­her­ferð­ina „Inspired by Iceland“ í kjöl­far þess að Eyja­fjalla­jök­ull gaus og kyrr­setti meira og minna flug­um­ferð í Evrópu.

Þá hafi rík­is­stjórnin talið að gosið myndi leggja ferða­þjón­ustu hér­lendis í rúst, en það reynd­ist svo, eftir á að hyggja, verða stærsta mark­aðs­setn­ing hennar. „Það átti kannski eng­inn von á því þá að ferða­þjón­ustan myndi fara í þennan veld­is­vöxt sem hún fór í. Og kannski að ein­hverju leyti gefur ástandið núna – af því að það er alltaf tæki­færi í öllum stöðum – okkur tæki­færi til að ígrunda aðeins hvernig við viljum halda áfram með ferða­þjón­ust­una. Ég held að hún eigi sér fram­tíð af því að ég held að Ísland sé staður sem fólk muni vilja heim­sækja. Það tengi ég fyrst og fremst við nátt­úr­una, en líka við sam­fé­lagið sjálft. Ég held að það sé gaman að koma til Íslands.

En þetta mun taka tíma. Ferða­þjón­ustan hefur sjálf markað sér stefnu í átt að ákveð­inni sjálf­bærni þegar kemur að umhverf­is­málum. Hún vill stefna í átt að sér­stöðu og læra af þeim þjóðum sem hafa náð árangri í því, þar sem er meiri stýr­ing á ferða­mönnum. það eru ákveðin tæki­færi í að fara hraðar í átt að þeirri stefnu.“

Ekki þrýst á stóriðju í dag

Katrín segir það þó ekki vera neitt leynd­ar­mál að hún telji að það þurfi fleiri stoðir undir íslenska efna­hags­kerfið. Þar finnst for­sæt­is­ráð­herra helst skorta á í þekk­ing­ar­geir­anum. Hér megi bæta í grunn­rann­sóknir, þróun, nýsköpun og vöxt skap­andi greina. Í raun alla geira sem eru ekki auð­linda­háðir á sama hátt og ferða­þjón­usta, sjáv­ar­út­vegur og áliðn­aður eru, heldur byggja fyrst og fremst á hug­viti.

Katrín segir að stjórn­völd séu að senda skýr merki um að þau vilji nýta þá stöðu sem nú er uppi til að styrkja þessar stoðir. Feta þurfi ákveð­inn milli­veg. Þótt vand­inn sem við blasi sé til skemmri tíma þá þurfi ekki ein­ungis að fara í skamm­tíma­að­gerðir. Vissu­lega sé ráð­ist í þær líka, til dæmis hefð­bundnar fjár­fest­ingar í sam­göngu­mann­virkjum, bygg­inga­fram­kvæmdum og útvíkkun á end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti til að örva þann geira. En það er líka verið að fjár­festa 500 millj­ónum króna á þessu ári í mat­væla­fram­leiðslu. „Þar eru hug­myndir allt frá auk­inni áherslu á líf­ræna ræktun upp í hátækni­vædd gróð­ur­hús. Ég held að sumt af þessu mun skila störfum strax, annað mun þurfa lengri með­göngu­tíma. En ég held að það sé mik­il­vægt að aðgerðir stjórn­valda séu ekki bara til skemmri tíma. Að þar séum við líka að leggja inn í fram­tíð­ina.

Þar dreg ég líka lær­dóm af árunum 2009 til 2013 þegar við fórum í fjár­fest­ing­ar­á­ætlun árið 2012, eftir að hafa verið í miklum nið­ur­skurði. Við sáum merki þess í hug­verka­geir­anum til­tölu­lega hratt sem hefur haft raun­veru­leg áhrif á vöxt hans á Íslandi.“

Þeirri áætlun var þó kippt úr sam­bandi að mestu þegar rík­is­stjórn­ar­skipti urðu vorið 2013 og ný stjórn, með gjör­ó­líkar áherslur, tók við völdum. Katrín segir að það sem hafi breyst frá þessum tíma sé að almennar hug­myndir um lausnir nú eru allt aðrar. „Á þessum tíma var þrýst­ing­ur­inn á frek­ari stór­iðju og orku­frekan iðnað. Við sjáum allt aðra umræðu í dag. Og miklu meiri áherslu á það sem ég er að tala um. Þennan hug­verka­geira.“

Mikilvægasta verkefnið að vinna á atvinnuleysi

Það er margt ólíkt með krepp­unni sem fylgdi banka­hrun­inu og þeirri sem við stöndum frammi fyrir í dag. Aug­ljós­ast er að staða rík­is­sjóðs, heim­ila og fyr­ir­tækja er allt önnur og betri til að takast á við sam­drátt en hún var fyrir rúmum ára­tug. Efna­hags­kerfið er sjálf­bær­ara og sterk staða byggir á raun­veru­legri verð­mæta­sköpun, ekki lán­tökum eins og þá sem skil­aði land­inu í ótrú­lega skulda­súpu.

Þá lagð­ist kreppan þungt á launa­fólk í gegnum mjög þungt verð­bólgu­skot og tug pró­senta geng­is­fall. Þótt margir hafi misst vinn­una þá rætt­ist nokkuð fljótt úr þeim aðstæðum og innan fárra ára var íslenskt efna­hags­kerfi farið að búa til mun fleiri störf á ári en vinnu­mark­að­ur­inn gat staðið undir. Því þurfti til gríð­ar­lega aukn­ingu á inn­fluttu vinnu­afli til að manna störfin.

Nú blasir hins vegar við gríð­ar­legt atvinnu­leysi, enda fyr­ir­liggj­andi að hin mann­afla­freka ferða­þjón­usta verði í besta falli skugg­inn af sjálfri sér á þessu ári, og lík­ast til á hinu næsta líka.

Segja má að verð­bólga og geng­is­fall séu vanda­mál sem lendi jafn þungt á flesta laun­þega. Atvinnu­leysi leggst hins vegar mun þyngra á þá sem missa vinn­una en hina sem mynda sam­fé­lagið og halda tekjum sínum. Ein afleið­ing af langvar­andi atvinnu­leysi getur því mjög auð­veld­lega orðið auk­inn ójöfn­uður.

Forsætisráðherra segir veginn framundan vera markaðann af því að fjölga stoðum undir íslenska hagkerfið, með áherslu á hugverksdrifnar starfsgreinar.
For­sæt­is­ráð­herra segir veg­inn framundan vera mark­að­ann af því að fjölga stoðum undir íslenska hag­kerfið, með áherslu á hug­verks­drifnar starfs­greinar.

Katrín er með­vituð um þessa stöðu. „Ég held að það sé mjög víð­tæk póli­tísk sam­staða um það, þvert á flokka á þingi, að þetta sé mik­il­væg­asta verk­efnið. Það er að tryggja að atvinnu­leysi verði ekki við­var­andi. Þess vegna hefur verið við­var­andi stuðn­ingur við þessar bæði skamm­tíma- og lang­tíma fjár­fest­ingar sem við erum að ráð­ast í. Ég held að allir átti sig á því að þetta er stóra verk­efnið. Ekki bara til að auka verð­mæta­sköpun á nýjan leik heldur vegna þess að við­var­andi atvinnu­leysi getur skapað mik­inn ójöfnuð.

Það væri mikil aft­ur­för á Íslandi, þar sem við höfum haft mesta tekju­jöfnuð í hópi OECD-ríkja, meðal ann­ars vegna þess að verka­lýðs­hreyf­ingin hefur lagt mikla áherslu á að hækka lægstu laun og náð tölu­verðum árangri í þeim efnum, ef við förum að horfa upp á slíka stöðu mynd­ast.“

Umhverfis- og loftlagsmál líka hörð efnahagsmál

Katrín telur að Íslend­ingar eigi að nýta sér aðstæður nú til að hraða breyt­ingum í umhverfis- og loft­lags­málum. Það felist til að mynda mikil tæki­færi að beina opin­berum fjár­fest­ingum sem ætlað er að auka verð­mæta­sköpun í grænar fjár­fest­ingar. „Við erum auð­vitað komin af stað í orku­skipti, og fórum af stað í ár að flýta þeim með við­bót­ar­fjár­veit­ingu til orku­skipta í sam­göngum. Það eru mikli fleiri mögu­leikar. Nýju verk­efnin þar eru til dæmis raf­væð­ing hafna, sem er auð­vitað stór­mál fram í tím­ann fyrir Ísland. En við þurfum líka að horfa á aðra orku­gjafa, til dæmis í þunga­flutn­ingum, sem eru mál sem við erum ekki komin nægj­an­lega langt með en gætum hugs­an­lega nýtt tæki­færið núna til að auka við rann­sóknir og þróun þar, til dæmis er varðar nýt­ingu vetnis, svo ég nefni eitt dæmi, í þunga­flutn­inga.“

Rík­is­stjórnin hefur þegar fundað um aðgerð­ar­á­ætlun sína í loft­lags­málum og rætt hvort hún sé reiðu­búin að halda áfram með þau mark­mið sem hún var búin að setja sér. „Það er fullur vilji til þess. En hins vegar hef ég áhyggjur af þessum málum á heims­vísu. Þau voru auð­vitað í ákveð­inni kreppu fyrir, þar sem til að mynda Banda­ríkin voru búin að segja sig frá Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Það sem maður skynjar eru miklar áhyggjur hjá þeim sem hafa verið að berj­ast fyrir þessum málum, aðal­lega gras­rót­ar­sam­tökum, að COVID verði til þess að þessi mál lendi neðar á for­gangs­lista rík­is­stjórna. Þetta er dálítið eins og jafn­rétt­is­málin. Fólk ótt­ast að þessi mál fari aftar í röð­ina af því að nú sé verið að fást við hin hörðu efna­hags­mál. Á meðan ég segi að loft­lags- og jafn­rétt­is­málin eigi líka að vera hörð efna­hags­mál.“

Vildi ekki stýra landi án atvinnuleysistryggingakerfis

Það blasir þó við að hall­inn á rík­is­sjóði næstu tvö ár hið minnsta verður gríð­ar­legur. Sviðs­myndir stjórn­valda nú gera ráð fyrir að hann verði 250 til 300 millj­arðar króna bara í ár. Á ein­hverjum tíma gæti þurft að ráð­ast í aðgerðir til að aðlaga opin­bera rekst­ur­inn að þeim veru­leika, ef ekki tekst að keyra lands­fram­leiðslu upp hratt.

Katrín minnir aftur á að staðan sé þó allt önnur en á árunum 2008 og 2009, þegar hall­inn á rekstri rík­is­sjóðs hljóp líka á hund­ruðum millj­örðum króna. Í dag sé ekki knýj­andi þörf á því að aðlaga rík­is­rekst­ur­inn að tekjum þjóð­ar­bús­ins á tveimur til þremur árum, líkt og var þegar Íslandi hafi verið í gjör­gæslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. „Nú erum við í sömu stöðu og allar aðrar þjóðir og ég held að flestar þjóðir séu að horfa á stöð­una þannig að þetta sé áfall sem muni taka tíma að vinna niður. Við erum ekki í ein­hverju kapp­hlaupi við að ná niður hall­anum á sem skemmstum tíma.

Ég sagði áðan að heil­brigð­is­kerfið, skóla­kerfið og félags­lega kerfið hefðu sannað mik­il­vægi sitt. Ég myndi ekki vilja sitja í þeirri stöðu núna að stýra landi þar sem ekki væri atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfi, svo dæmi sé tekið. Þannig að ég held að þessi kerfi sýni hversu miklu máli það skiptir að vera með vel­ferð­ar­kerfi þótt við deilum um það á okkar dag­lega vett­vangi hvort það sé nægj­an­lega gott.“

Hægt að auka sjálfvirkni og fækka sveitarfélögum

Að því sögðu þá telur Katrín samt sem áður að það séu tæki­færi til að beita aðhaldi í rík­is­rekstri. Þar vísar hún í fjár­fest­ingar sem telja má til fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og hafa það mark­mið að skila bættri þjón­ustu við borg­ar­anna en að sama skapi minni umsvifum rík­is­ins á þeim sviðum sem þær ná til. „Þar erum við að horfa á verk­efni á borð við Stafrænt Ísland, aukna sjálf­virkni í kerf­inu og bæta þessi opin­beru kerfi okkar. Það má eig­in­lega segja að þessi far­aldur virki dálítið eins og hrað­all inn í það umhverfi.“

Hún er líka þeirrar skoð­unar að það eigi að stefna að frek­ari sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga, sem eru 70 tals­ins í dag. „Ég held að um leið og við erum að tala um að við viljum færa frek­ari verk­efni til sveit­ar­fé­lag­anna, og þau hafa auð­vitað gríð­ar­lega mik­il­vægum verk­efnum nú þegar að gegna, þá sé það eðli­leg þróun að þau verði stærri of öfl­ugri til þess að takast á við þetta.

Þingið hefur talað í sinni stefnu­mótum um að það vilji stefna að færri sveit­ar­fé­lögum og sterk­ari. Það er það sem stendur yfir. Og ég er ekki í nokkrum vafa að þessi staða mun virka hvetj­andi í þá átt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár