Það er ekki hægt að meta störf fólks bara með stimpilklukkunni

Ísland er í alvar­legri efna­hag­skreppu. Fyr­ir­liggj­andi er mörg hund­ruð millj­arða króna tap á rekstri rík­is­sjóðs í ár, tugir þús­unda eru án atvinnu að öllu leyti eða hluta og þús­undir fyr­ir­tækja standa frammi fyrir algjörri óvissu um hvort þau lifi.

Við erum erum ekki að fara til baka og end­ur­skapa sam­fé­lagið 2019. Ég held að það þurfi allir að gera sér það ljóst. Við erum að fara að halda áfram í þró­un­inni og hún ger­ist býsna hratt.“

Þetta segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, ráð­herra sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­mála og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, þegar hann er spurður út í það hvernig hann sér Ísland rísa upp úr þeirri stöðu sem nú blasir við land­inu efna­hags­lega. Hugur hans er mjög greini­lega hjá þeim tugum þús­unda sem eru atvinnu­lausir að hluta eða öllu leyti eins og staðan er í dag og Sigurður Ingi telur aug­ljóst að þar liggi næsta stóra verk­efni: Að skapa þessu fólki störf hratt og örugg­lega.

Það liggi fyrir að mörg fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu muni þurfa að hætta starf­semi. Flestar grein­ingar gera ráð fyrir að ferða­lög erlendra ferða­manna muni að mestu leggj­ast af að minnsta kosti vel fram á næsta ár og að það það muni taka mörg ár að kom­ast á svip­aðan stað í tekjum og geir­inn var á síð­ustu ár. Þegar mark­að­ur­inn breyt­ist úr því að telja yfir tvær millj­ónir erlendra ferða­manna í að snúa aðal­lega að þeim 365 þús­und manns sem hér búa þá er ljóst að ekki verður sofið í öllum hót­el­her­bergj­unum, allir bíla­leigu­bíl­arnir verða ekki leigðir og ekki verða nægi­lega margir við­skipta­vinir til þess að öll afþrey­ing­ar­þjón­ustu­fyr­ir­tækin standi undir sér.

Hinn blákaldi veruleiki

Sigurður Ingi segir þessa stöðu ein­fald­lega vera orð­inn hlut. „Ég held að það sé hinn blá­kaldi raun­veru­leiki sem að eng­inn vildi horfast í augu við upp­haf­lega, en flestir eru að gera sér grein fyrir. Í starfs­grein sem var nokkuð mikið skuld­sett og stóð frammi fyrir áskor­unum allt síð­ast­liðið ár, og jafn­vel síð­ast­liðin tvö ár, er óum­flýj­an­legt að það verði ein­hverjar breyt­ingar. Ég held að það sé aug­ljóst að nokkur hluti þeirra fyr­ir­tækja mun ekki lifa þetta af. Það sem ég er að segja að í stað þess að það sé góð leið að ríkið haldi þessum fyr­ir­tækjum gang­andi án þess að þau séu í neinni starf­semi, þá held ég að það sé betra að nota fjár­muni að ýta undir að þau sem geti bjargað sér eigi meiri mögu­leika með því að örva inn­lenda eft­ir­spurn.

Ég held að þetta sé skyn­sam­ari leið, en hið óhjá­kvæmi­lega er að mörg fyr­ir­tæki þurfa nú að taka þá ákvörðun hvað leið þau ætla að fara. Og síðan eru ein­hver sem geta kom­ist í skjól og verið til­búin til að takast á við það þegar heim­ur­inn verður meira eðli­legur. En hann verður aldrei óbreyttur. Það er það sem að allir þurfa að átta sig á.“

Það þarf að búa til störf

Horfa þurfi til þess að atvinnu­leysi gæti verið 10 til 15 pró­sent til lengri tíma, sem þýði að 20 til 30 þús­und manns eru án atvinnu. Þess vegna hafi verið ákveðið að bæta tugum millj­arða króna í sam­göngu­verk­efni, að klára að koma hlut­deild­ar­lán­unum svoköll­uðu á kopp til að örva hús­næð­is­mark­að­inn, að setja aukið fjár­magn í við­hald á opin­beru hús­næði. Allt sé þetta gert til að fjölga störfum á næstu mán­uðum.

Sömu­leiðis sé stefnt að því að mennta­kerfið taki við náms­mönnum í sumar sem hefðu ann­ars ekki haft neitt að gera. Stefnan þar er að geta tekið á móti fjögur til fimm þús­und manns. „Við þurfum ein­fald­lega að horfa á þennan stabba og segja: hér er verk­efni. Við þurfum að búa til störf. Það ætlum við að gera fyrir náms­menn og atvinnu­leit­endur í sumar á stærri skala en við höfum nokkurn tím­ann gert. Fleiri þús­undir slíkra starfa.“

Sigurður Ingi segir að það þurfi að fjölga stoðunum undir íslensku efnahagslífi.
Sigurður Ingi segir að það þurfi að fjölga stoð­unum undir íslensku efna­hags­lífi.

Ein leið sem hann sér til að ná þessu mark­miði er að skala upp fyrri hug­myndir um að dreifa 1,5 millj­arði króna til lands­manna í formi staf­rænna ávís­ana til að eyða í ferða­þjón­ustu inn­an­lands. Með því væri hægt að örva neyslu. „Tækni­lausnin liggur fyrir, útfærslan er ein­föld. Það væri hægt að skala þetta upp og búa til veru­lega eft­ir­spurn eftir ferða­þjón­ust­unni á Íslandi og flétta það síðan saman við opnun landamæra sem verður þó háð því hvernig öðrum löndum tekst að eiga við plág­una.“

Að meta afköst og gæði en ekki bara mæla vinnutíma

Það blasir við að íslenska hag­kerfið er betur und­ir­búið til að takast á við áfall nú en það hefur lík­lega verið nokkru sinni áður. Sigurður Ingi segir að við séum í raun búin að vera að und­ir­búa okkur fyrir þessa áskorun fjár­hags­lega með ýmsum hætti. Þar vísar hann í aðgerðir sem mörgum finn­ast umdeildir, eins og skulda­leið­rétt­ingu heim­il­anna sem Sigurður Ingi segir að hafi gert það að verkum að heim­ilin séu minna skuld­sett en ella. Afnám fjár­magns­hafta skil­aði síðan allt öðru Íslandi fjár­hags­lega og ábyrg rík­is­fjár­mála­stefna, allt frá 2009, hafi gert það að verkum að landið sé í allt ann­ari og miklu stöðu til að takast á við þennan efna­hags­lega vanda sem fylgir útbreiðslu COVID-19 í dag. „Þess vegna getum við tek­ist á við svona tíma­bund­inn vanda með því að skuld­setja okkur. Og það er ódýr­ara að fara þá leið sem við höfum verið að velja til þess að hafa þennan tíma nið­ur­sveifl­urnar eins stuttan og hægt er.“

Hann við­ur­kennir þó að hafa viljað vera laus við þetta verk­efni. „En þegar þú stendur í storm­inum og ert að kljást við hana þá er auð­vitað gott að vera Fram­sókn­ar­maður og geta horft í sög­una. Við höfum áður sagt að það þurfi að skapa tólf eða fimmtán þús­und störf. Og gert það. Við munum ekki sætta okkur við 10 til 15 pró­sent atvinnu­leysi.“

Hann telur stöð­una vera tví­þætt alvar­lega. Það þurfi auð­vitað að ná upp lands­fram­leiðslu á ný til að hægt sé að standa undir vel­ferð­ar­kerf­inu sem við viljum, en hún sé ekki síður alvar­leg vegna mann­eskju­legu hlið­ar­innar. Það sé, að hans mati, í eðli Íslend­inga að vera vinnu­söm og vilja vera í virkni. Þess vegna skipti miklu máli að koma öllu þessu fólki sem nú sé án atvinnu aftur út á vinnu­mark­að­inn. Þar geti hið opin­bera, bæði ríkið og sveit­ar­fé­lög, leikið lyk­il­hlut­verk.

Sigurður Ingi gerir sér þó líka fulla grein fyrir að sam­hliða því að ríkið reyni að taka utan um þann hóp sem nú eigi í vanda, þá þurfi að huga að fram­tíð­inni og þeirri upp­færslu á sam­fé­lag­inu sem þarf að verða. „Eitt að því jákvæða sem við höfum upp­lifað nú þegar er að við höfum talað mikið á und­an­förnum miss­erum um fjórðu iðn­bylt­ing­una og und­ir­bún­ing okkar fyrir hana. Það kom ein­fald­lega í ljós að við vorum kannski búin að ná ýmsu fram í tækni, en við bara not­uðum hana ekki. Hér er ég til dæmis að vísa til allra þess­ara net­funda sem hafa getað átt sér stað. Hér er ég líka að vísa til þess að bæði hið opin­bera og einka­fyr­ir­tækin hafa upp­lifað það að það er hægt að vera með sveigj­an­legri vinnu­tíma. Fólk getur starfað heima. Ég hef heyrt það víða að menn muni horfa til þess í vax­andi mæli að hafa þennan mögu­leika áfram af því að hann virkar. Menn eru hrein­lega búnir að læra að það er hægt að meta störf fólks ekki bara með stimp­il­klukk­unni heldur meira út frá því sem fjórða iðn­bylt­ingin kallar á. Að meta afköst og gæði ekki síður en vinnu­tím­ann.“

Verðum að horfa á samfélagið sem við viljum komast í

Í aðgerð­ar­pökkum rík­is­stjórn­ar­innar hafa þessar áherslur birst að ein­hverju leyti. Framlög til rann­sóknar og þró­unar og nýsköp­un­ar­verk­efna hafa verið stór­aukin og fyrir liggur að mikil áhersla er innan stjórn­ar­ráðs­ins á að ýta undir allar staf­rænar lausnir í þjón­ustu til að gera hana skil­virk­ari. „Við erum að nota tæki­færið og flýta þeirri umbreyt­ingu sem við vorum í og bæta í hana. Það mun auð­vitað ekki á einni nóttu skap­ast fjöld­inn allur af störfum en hann mun koma í vax­andi mæli og þess vegna er þetta mik­il­vægur þáttur í við­spyrn­unni.

Ég vona að okkur tak­ist að fara þessa leið að skapa störf. Vegna þess að það er sam­fé­lagið sem við viljum vera í. En um leið verðum við að horfa á það sam­fé­lag sem við viljum kom­ast í. Það er sam­fé­lag með fjöl­breytt­ari atvinnu­mögu­leikum þar sem meiri rækt er lögð við störf fram­hlið­ar­innar sem takast á við áskor­anir fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar. Ég veit að þetta er frasi, en þetta er bara svona. Það er þetta sem þarf að ger­ast.

Á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að við erum auð­linda­drifið hag­kerfi. Með öfl­ugan sjáv­ar­út­veg. Með afurðir úr orku­frekum iðn­aði og ferða­þjón­ustu sem munu alltaf hjálpa okkur í því að búa til útflutn­ings­tekjur. Ég vil meina að ferða­þjón­ustan muni snúa aftur. Eft­ir­spurn eftir því að koma til Íslands verður áfram til staðar. Umfjöllun um ísland í þessum far­aldri – hvernig við höfum tek­ist á við hann og hvernig okkur hefur gengið – hefur vakið heims­at­hygli. Við höfum séð á síðum sem fylgj­ast með áhuga á Íslandi að hann er aftur far­inn að nálg­ast það sem gerð­ist í Eyja­fjalla­jök­uls­gos­inu. Það eitt og sér mun ýta undir vilja fólks til að heim­sækja okkur.

Við verðum að vera reiðu­búin til að taka á móti þeim, en kannski með betri hætti. Við verðum búin að byggja upp sterk­ari inn­viði, betri kerfi til að hafa stjórn á því sem þar er og þar af leið­andi kannski hafa aðeins meira út úr grein­inni.“

Þarf að hafa fleiri egg í körfunni

Eftir síð­asta stóra efna­hags­á­fall, banka­hrunið 2008, kom ferða­þjón­ustan eins og skratt­inn úr sauða­leggnu mog umbreytt­ist á örskömmum tíma úr grein sem tók á móti hálfri milljón ferða­manna á ári í að taka á móti, um tíma, vel yfir tveimur millj­ónum.

Mikið hefur verið bent á það á und­an­förnum árum að hún henti okkar sam­fé­lagi kannski ekki full­kom­lega sem lyk­il­stoð undir efna­hags­kerf­inu. Fram­leiðni í ferða­þjón­ustu hefur verið lítil, atvinnu­greinin útheimtir mik­inn mann­afla sem var ekki til staðar á íslenskum vinnu­mark­aði. Þess í stað fjölg­aði inn­flytj­endum um 30 þús­und frá árinu 2011, sem er mjög svipað og sá fjöldi starfa sem varð til í ferða­þjón­ustu og tengdum greinum.

Sigurður Ingi seg­ist sam­mála því að það sé ekki endi­lega æski­legt að 35 til 40 pró­sent útflutn­ings­tekna okkar komi frá grein eins og ferða­þjón­ust­unni. Ísland þurfi að hafa fleiri egg í körf­unni þess vegna snú­ist við­spyrnan nú um miklu fleiri þætti en bara ferða­þjón­ustu. „Þess vegna erum við að leggja meiri áherslu á þessar skap­andi greinar. Við þurfum líka að leggja meiri áherslu á inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu og við verðum að leggja fjár­muni til þess og gera breyt­ingar þar á.

„Við höfum séð á síðum sem fylgjast með áhuga á Íslandi að hann er aftur farinn að nálgast það sem gerðist í Eyjafjallajökulsgosinu. Það eitt og sér mun ýta undir vilja fólks til að heimsækja okkur.“
„Við höfum séð á síðum sem fylgj­ast með áhuga á Íslandi að hann er aftur far­inn að nálg­ast það sem gerð­ist í Eyja­fjalla­jök­uls­gos­inu. Það eitt og sér mun ýta undir vilja fólks til að heim­sækja okkur.“

Við lærum mikið á þess­ari kór­ónu­veiru, hvernig við höfum tek­ist á við hana og af eft­ir­köst­unum líka. Þegar uppi er staðið þá munum við horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn og taka það með okkur inn í fram­tíð­ina. En í því sam­fé­lagi þá værum við með fjöl­breytt­ari atvinnu og traust­ari grunn.“

Sveitafélögin í mismunandi stöðu til að takast á við aðstæður

Sigurður Ingi rifjar upp hina víð­frægu McKinsey-skýrslu sem gerð var eftir hrunið sem hafi gefið ýmsar góðar vís­bend­ingar um hvernig ætti að byggja upp sam­fé­lagið eftir áfall til að auka fram­leiðni, bæta skil­virkni og skapa þau störf sem lands­menn eru upp til hópa að mennta sig til að vinna í. Þar hafi til að mynda verið lögð áhersla á að færa til þús­undir starfa í verslun og þjón­ustu, setja mun meiri áherslu á alþjóða­geir­ann og reyna að búa til fleiri fyr­ir­tæki eins og Marel, Össur eða CCP. Það hafi okkur hins vegar ekki auðn­ast, meðal ann­ars vegna mik­illa ruðn­ings­á­hrifa frá ferða­þjón­ustu sem óx gríð­ar­lega hratt. Nú sé hins vegar tæki­færi til að skapa grunn­inn fyrir fjöl­breytt­ari atvinnu­upp­bygg­ingu sem yrði traust­ari til lengri tíma.

Í þeirri skýrslu, og sam­ráðs­vett­vangi um aukna hag­sæld sem mynd­aður var í kjöl­far birt­ingar hennar, var einnig fjallað umtals­vert um aukna skil­virkni í opin­berri þjón­ustu. Fyrir mörgum er aug­ljóst skref í þá átt að fækka sveit­ar­fé­lögum sem eru á Íslandi og bæta sam­hliða gætu stærri sveit­ar­fé­lags­ein­inga til að veita betri þjón­ustu.

Sigurður Ingi, ver­andi ráð­herra mála­flokks­ins, segir að hann hafi bent á að þau tæp­lega 70 sveit­ar­fé­lög sem eru í land­inu séu gríð­ar­lega mis­jafn­lega í stakk búinn til að takast á við þann vanda sem blasir við í dag. Aðstæð­urnar geti kallað á frek­ari sam­ein­ing. Frumvarp um skref í þá átt er til en það hefur þó ekki enn verið mælt fyrir því á Alþingi. Það felur í sér, að mati Sigurðar Inga, gjör­breyt­ingu á því stjórn­sýslu­stigi. „Við höfum á margan hátt verið að vinna í þessa átt og margt af því sem hefur gerst í íslensku sam­fé­lagi á und­an­förnum árum hefur farið í þessa átt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár