Erfiðu ákvarðanirnar eftir sem gætu reynt á þanþol ríkisstjórnarinnar

Ísland er í alvar­legri efna­hag­skreppu. Fyr­ir­liggj­andi er mörg hund­ruð millj­arða króna tap á rekstri rík­is­sjóðs í ár, tugir þús­unda eru án atvinnu að öllu leyti eða hluta og þús­undir fyr­ir­tækja standa frammi fyrir algjörri óvissu um hvort þau lifi eða deyi

Ef við förum aðeins upp í tíu þús­und fet þá erum við að tapa lands­fram­leiðslu. Það er það sem er að ger­ast og þess vegna hverfa störf. Þau eru nær öll að hverfa úr einka­geir­anum. Það eru ekki margir opin­berir starfs­menn sem að hafa áhyggjur af starfs­ör­yggi sínu núna. Við þurfum að ná til baka lands­fram­leiðsl­unni, verja störf eins og hægt er, end­ur­heimta störf eins og til dæmis Í ferða­þjón­ustu og skapa ný.

Ef það mis­tekst, ef okkur gengur illa að gera þetta, þá hef ég verið að benda á að þá eigum við bara ein­fald­lega ekki fyrir opin­beru þjón­ust­unni sem við höldum úti í dag. En ég trúi því að við getum gert það, þess vegna erum við ekki að skera niður þar. Það verður þó ekki svig­rúm á meðan að við erum í þessu end­ur­reisn­ar­starfi til þess að fara að auka byrðar rík­is­ins vegna opin­bera rekst­urs­ins.“

Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Tilefnið er sam­tal um þá stöðu sem nú er uppi í íslensku efna­hags­kerfi, og í raun heim­inum í heild. Veiran sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum hefur á örfáum vikum kúvent öllum for­sendum sem áður var unnið með. Nú eru vel á sjötta tug þús­und manns án atvinnu hér­lendis að öllu leyti eða hluta, stjórn­völd vinna með að halla­rekstur á rík­is­sjóði verði 250 til 300 millj­arðar króna í ár hið minnsta og ferða­þjón­ustan, stærsta stoðin undir efna­hags­kerf­inu, stendur skyndi­lega frammi fyrir því í heild að vera nær tekju­laus. Og ekk­ert liggur fyrir hvenær ferða­menn geti með góðu móti heim­sótt Ísland á ný.

Ekki endalaust hægt að setja af stað risaaðgerðir

Íslenska ríkið er að setja gríð­ar­lega fjár­muni í að takast á við þá stöðu sem nú er uppi í sam­fé­lag­inu. Deilt er um hvort að nógu mikið, eða jafn­vel of mikið, sé að gert til að mæta stöðu íbúa og fyr­ir­tækja og röð þeirra sem krefj­ast frek­ari aðgerða fyrir sinn veru­leika virð­ist lengj­ast við hvern aðgerð­ar­pakka sem kynntur er, frekar en stytt­ast.

Á meðan halda reikn­ing­arnir sem ber­ast rík­is­sjóði áfram að hrann­ast upp. Um síð­ustu mán­aða­mót greiddi Vinnu­mála­stofnun til að mynda tólf millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur til þeirra sem voru án atvinnu að öllu leyti eða hluta. Það er hærri fjár­hæð en stofn­unin greiddi allt árið 2018 í atvinnu­leys­is­bætur. Við­skipta­ráð og Samtök atvinnu­lífs­ins mátu kostnað vegna hluta­bóta­leið­ar­innar og rík­is­styrkja til fyr­ir­tækja til að hjálpa þeim að segja upp fólki án þess að verða gjald­þrota á 60 millj­arða króna í ár í nýlega fram­settri sviðs­mynd.

Bjarni segir að það hafi legið fyrir frá upp­hafi að stjórn­völd hafi ekki treyst sér til að lög­festa hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, sem gerði fyr­ir­tækjum kleift að lækka starfs­hlut­fall starfs­manna niður í allt að 25 pró­sent og láta þá gera samn­ing við ríkið um greiðslu allt að 75 pró­sent launa sinna tíma­bundið, í lengri tíma en tvo og hálfan mánuð. Hann telur það hafa verið hár­rétta ákvörðun og nú hafi verið boðuð fram­leng­ing á úrræð­inu, en með hertum skil­yrðum. Ljóst sé að þarna séu um ofboðs­legar fjár­hæðir að ræða en Bjarni telur að aðgerðin hafi þrátt fyrir það heppn­ast vel og pen­ing­unum vel varið vegna þess að komið hafi verið í veg fyrir miklar upp­sagnir sem hafi verið yfir­vof­andi.

Ekki sé þó hægt að setja enda­laust af stað risa­að­gerðir eins og hluta­bóta­leið­ina. Þar sé um neyð­ar­að­gerðir að ræða til að bregð­ast við áfalli. Næsta skref verður svo að setja mikla fjár­muni í við­bragðið við áfall­inu. „Það fer að koma tími til þess að við förum úr þessum neyð­ar­að­gerðum og horfum til lengri tíma.“

Minni smithætta á Íslandi en í neðanjarðarlest í stórborg

Flestar sviðs­myndir um stöð­una í efna­hags­málum á Íslandi eru svartar, og hafa versnað eftir því sem rykið sest frekar. Nú gera þær flestar ráð fyrir því að ferða­þjón­ustan hér­lendis taki vart við sér sem neinu nemur fyrir en á næsta ári hið fyrsta. Sú versta sem sett hefur verið fram kom frá Við­skipta­ráði og Samtökum atvinnu­lífs­ins í vik­unni þar sem grunn­s­viðs­myndin gerði ráð fyrir 13 pró­sent sam­drætti í ár. Sú svart­sýn­asta gerði ráð fyrir að hann yrði 18 pró­sent.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, er sannfærður um að Ísland geti náð viðspyrnu.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er sann­færður um að Ísland geti náð við­spyrnu.

Bjarni segir að það sé mark­mið ráða­manna nú að vinna sína vinnu og gera betur en þær sviðs­myndir sem settar hafa verið fram spá fyrir um að staðan verði. „Það er ekki nátt­úru­lög­mál að við getum ekki farið úr þess­ari þröngu stöðu sem við erum í í dag og tekið að nýju við 1,5 til tveimur millj­ónum ferða­manna áður en þrjú til fimm ár eru liðin. Ef við verðum klár þá getur það mögu­lega gerst. Ég held að við verðum að nálg­ast það þannig. Vegirnir og hót­elin eru hérna. Allt aðdrátt­ar­aflið sem landið hefur verður til staðar. Ef eitt­hvað er í mínum huga þá hefur for­skot Íslands í alþjóð­legri sam­keppni vaxið við þessa atburði.“

Það muni sitja lengi sitja í fólki um allan heim að það sé til að mynda meiri smit­hætta í neð­an­jarð­ar­lest í stór­borg en að vera á Íslandi. „Ég vil trúa því, og er reyndar alveg sann­færður um það, að við vorum komin á kortið hjá hinum alþjóð­lega ferða­manni og staða okkar hefur styrkst eftir þetta. Það sem getur dregið úr mögu­leikum okkar að koma hratt til baka er að það verði lang­vinn alþjóð­leg efna­hags­leg lægð. Þannig að kjör milli­stétt­ar­innar sem er á ferð­inni hafi versnað. Að fólk hafi ekki efni á að ferð­ast eins og það gerði áður.“

Gætum skuldað börnunum okkar svör

Gera verður ráð fyrir því að þótt hag­kerfið taki við sér með ein­hverjum hætti aftur strax á næsta ári, árið 2021, að það muni ekki duga í að brúa alfarið kostn­að­ar­gatið sem er milli þeirrar sam­neyslu sem við höfum van­ist að rík­is­sjóður borgi fyrir. Því verða næstu ár tekin að láni.

Bjarni er sann­færður um að Ísland muni finna við­spyrn­una og að þeirri kyn­slóð sem nú stýrir land­inu muni takast að skila því í betra ásig­komu­lagi en hún tók við Íslandi. Það hafi allar kyn­slóðir í yfir eitt hund­rað ár gert og hann trúir því að þessi muni gera slíkt hið sama þrátt fyrir yfir­stand­andi kreppu. „Við munum finna lausnir sem munu duga og finna nýjar leiðir til þess að verða sjálf­bær. Taka högg sem eðli­legt er að þjóð­fé­lög þurfi að gera við jafn miklar efna­hags­legar ham­farir eins og eru hér að eiga sér stað og við finnum stað þar sem við finnum nýja við­spyrnu. Þetta er ekki mjög langt undan og það er erfitt að tíma­setja þetta. En þetta tekur ein­hver ár.“

Takist þetta mark­mið ekki, að end­ur­heimta lands­fram­leiðslu sem nú er að tap­ast, á næstu miss­erum og árum, þá blasi við aðlögun. Henni væri hægt að mæta með því að auka skil­virkni í opin­berum rekstri og ljóst að allt þyrfti að gera til að verja vel­ferð­ina. Þetta vel­ferð­ar­stig sem að við Íslend­ingar höfum náð að byggja upp er fram­úr­skar­andi þótt okkur finn­ist oft að það megi gera betur. Fólk upp­lifir það í öllum könn­unum að það sé öruggt í íslensku sam­fé­lagi á breiðum grund­velli séð.

Ef okkur mis­tekst að end­ur­heimta lands­fram­leiðsl­una og fá tekjur til að standa undir sam­neysl­unni þá hugsa ég þetta ein­fald­lega þannig að við munum skulda fram­tíð­ar­kyn­slóðum svör. Þeim sem fá reikn­ing­inn fyrir því að við höfum viljað að fá að njóta þjón­ust­unnar eins og hún er í dag án þess að eiga fyrir henni. Af því að þá erum við bara að taka hana alla að láni. Okkur líður vel með það á meðan að það er að ger­ast. En reikn­ing­ur­inn, hann verður sendur á krakk­anna sem eru núna í barna­skóla. Maður verður þá að standa frammi fyrir þeim ein­hvern tím­ann og segja: við gátum ekki annað heldur en að búa okkur þau kjör sem við höfðum van­ist og vorum ekki til í að gera annað en að velta þessu yfir á ykkur. Þið hljótið að vinna út úr þessu.“

Hægt að gera margt með skilvirkari hætti

Bjarni er þó, líkt og áður sagði, viss í sinni sök að Íslandi geti náð sér á strik áður en til þess­arar stöðu kemur. Í byrjun apríl sagði hann í við­tali við Vísi að hann vildi sjá Ísland koma út úr þessu ástandi í upp­færslu 2.0. Aðspurður um hvernig sú upp­færsla sé segir Bjarni að í henni felist að þurfa að horfa djarft til margar sviða sam­fé­lags­ins. Hann hafi verið að hugsa til einka­geirans, og að við myndum hætta að gera það þar sem ekki gekk upp, en líka að horft yrði til verð­mæta­sköp­unar á fleiri sviðum en gert hafi verið til þessa. Í því felist meðal ann­ars að setja aukin kraft í stuðn­ing við rann­sóknar- og nýsköp­un­ar­um­hverfið í land­inu.

Hann seg­ist þó ekki síður hafa verið að vísa til þess sem snýr að opin­bera geir­anum. „Ég finn það svo sterkt úr mínu ráðu­neyti hvað við gætum verið að gera marga hluti með skil­virk­ari hætti. Eitt aug­ljós­asta dæmið um það er það sem við erum að vinna að í gegnum Star­frænt Ísland og auka þjón­ustu­fram­boð á vefnum Island.is. En það teygir sig líka yfir fjöl­mörg önnur svið, eins og vöru- og þjón­ustu­kaup á vegum rík­is­ins þar sem við höfum verið með allt of sund­ur­slitið kerfi. Við verðum sem sam­fé­lag að horfa til fram­tíðar og spyrja hvernig Ísland þurfi að breyt­ast og taka betur við þeim áskor­unum sem við okkur blasa og þar koma inn í mála­flokkar eins og loft­lags­málin og umhverf­is­mál.“

Bjarni telur að mikil tækifæri liggi til að mynda í orkuskiptum hérlendis.
Bjarni telur að mikil tæki­færi liggi til að mynda í orku­skiptum hér­lendis.

Hér séu til að mynda tæki­færi í orku­skiptum sem standi flestum öðrum þjóðum ekki til boða, enda Ísland stór fram­leið­andi á raf­orku. Orku­skiptin snúi að veru­legu leyti að því að fara að nýta raf­ork­una til sam­gangna og í því liggi gríð­ar­leg tæki­færi fyrir Ísland vegna þess að við getum fram­leitt raf­orku með hag­kvæmum hætti, náð loft­lags­mark­miðum og í þeim felist líka jákvæð efna­hags­leg áhrif „sem snýr að því að við hættum að kaupa olí­una af Rússum eða Norð­mönnum eða ein­hverjum öðrum sem byggja sinn efna­hag á útflutn­ingi,“ að mati Bjarna.

Þannig sé hægt að slá nokkrar flugur í eigu höggi. „Það er bara stað­reynd að stundum þarf áfall til þess að staldra við. Þá skap­ast ákveðin neyð til að ráð­ast í breyt­ingar. Og ég sé þau tæki­færi liggja mjög víða sem sam­fé­lag.“

Ekki treysta á þá sem koma með bakpoka og niðursuðudósir

Í einka­geir­anum þarf að taka erf­iðar en stefnu­mót­andi ákvarð­anir að mati Bjarna. Skapa þurfi umhverfi fyrir fyr­ir­tæki til að fá við­spyrnu en að passa sig líka að teygja ekki opin­beran stuðn­ing til að bjarga fyr­ir­tækjum sem voru ekki að reka sig án vand­ræða áður en yfir­stand­andi áfall reið yfir.

Það verði til að mynda að horfast í augu við það að sum fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu hafi ekki verið að ganga nægi­lega vel. „Við verðum að gæta að því hversu langt við göngum í að halda lífi í þeim. Um það snýst meðal ann­ars umræðan um að við viljum fyrst og fremst styðja við líf­væn­leg fyr­ir­tæki. Síðan er það bara þannig að það hafa verið að skjóta rótum nýjar greinar á Íslandi. Ég nefni fisk­eldi sem dæmi. Það er ekk­ert hægt að horfa fram hjá því hversu ofboðs­leg verð­mæta­sköpun er þar að eiga sér stað á fáum árum. Og dæmi um vax­andi atvinnu­grein sem við skrifum í stjórn­ar­sátt­mál­ann að þurfi að vaxa í sátt við nátt­úr­una eins og mögu­legt er. Við viljum byggja þá atvinnu­grein þannig upp að við getum sagt að það sé ekki hægt að gera þetta með betri hætti heldur en við erum að leggja áherslu á hér á Íslandi með til­liti til umhverf­is­sjón­ar­miða.“

Bjarni telur ferða­þjón­ust­una, sem gengur nú í gegnum mikla eyði­merk­ur­göngu, eigi mikla mögu­leika á að ná vopnum sínum aftur. Hægt sé að læra af reynslu síð­ustu ára og af þeim umhverf­is­legu og sam­fé­lags­legu áskor­unum sem fylgdu því að fara úr hálfri milljón ferða­manna á ári í rúm­lega tvær millj­ónir á skömmum tíma. „Út um skrif­stofu­glugg­ann hjá mér í ráðu­neyt­inu þá horfi ég á stærsta fimm stjörnu hót­elið á Íslandi [Marriott-hót­elið sem rís nú við hlið Hörpu]. Nýtt hótel sem er hugsað til þess að draga til lands­ins ferða­menn sem eru að leita að slíkum gisti­mögu­leika. Þarna held ég að við séum að færa okkur aðeins nær því að það verði meira eftir fyrir sam­fé­lagið í heild að fá slíka til lands­ins, ólíkt því sem væri ef við værum ein­göngu að treysta á það sem koma með bak­poka og nið­ur­suðu­dósir.“

Þurfum efnahagsáætlun

Efna­hags­á­fallið vegna COVID-19 er auð­vitað ekki fyrsta höggið sem margir þeirra þing­manna sem nú sitja á Alþingi, eða í rík­is­stjórn, hafa tek­ist á við. Hluti þeirra tók þátt í aðdrag­anda og end­ur­reisn­inni eftir banka­hrunið sem reið yfir haustið 2008.

Bjarni rifjar upp að eitt af því sem þá hafi verið gert á undra­skömmum tíma var að smíða efna­hags­á­ætlun fyrir til­stuðlan Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, sem var enda for­senda fyrir aðkomu sjóðs­ins að málum á Íslandi. Í kjöl­farið hafi svo farið af stað vinna með ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu McKinsey sem hefði skilað af sér hinum svo­kall­aða Sam­ráðs­vett­vangi um aukna hag­sæld. „Ég hef notið góðs að þeirri vinnu sem fjár­mála­ráð­herra í mörg ár á eftir og leit reyndar aftur yfir það skjal [skýrslu McKinsey] um dag­inn þar sem að hafði komið frá þeim vett­vangi. Þetta bíður okkur núna. Það er eng­inn að ýta á okkur að utan. Það er eng­inn að setja skil­yrði fyrir fyr­ir­greiðslu til Íslands að það verði efna­hags­á­ætlun, en aug­ljós­lega er það það sem við þurfum að gera.“

Að mati Bjarna þyrfti mögu­lega aðkomu aðila vinnu­mark­að­ar­ins að slíkri áætlun til að tryggja breiðu lín­urnar og sem mesta sátt, ekki ósvipað og var gert í júní 2009 þegar hinn svo­kall­aði stöð­ug­leika­sátt­máli var gerður. Hann var óform­legur sam­starfs­samn­ingur og vilja­yf­ir­lýs­ing milli hins opin­bera, helstu aðila atvinnu­lífs­ins og stétt­ar­fé­laga um að tryggja stöð­ug­leika í íslensku atvinnu­lífi. Bjarni segir að áfallið sem hag­kerfið standi núna frammi fyrir sé ein­fald­lega ekk­ert minna en þá átti við. „Mér finnst umræðan um þetta til­tölu­lega skammt á veg komin.“

Mun reyna á þanþol ríkisstjórnarinnar

Það eru margar aðgerðir sem á eftir að koma í far­veg til að mynda grunn­inn að þeirri stefnu sem Bjarni hefur teiknað upp að þyrfi að feta til að koma Íslandi aftur efna­hags­lega í gang. Hins vegar er ekki mikið eftir af kjör­tíma­bil­inu. Því lýkur í síð­asta lagi haustið 2021.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum frá 2017, og er skipuð þremur afar ólíkum flokkum.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur setið að völdum frá 2017, og er skipuð þremur afar ólíkum flokkum.

Hann seg­ist enn vera þeirrar skoð­unar að það rík­is­stjórnin geri rétt í því að starfa út kjör­tíma­bilið allt. „En ég hef líka sagt það að þessar ákvarð­anir sem við höfum tekið núna til þessa – í mars, apríl og núna inn í maí – þetta eru ekki mjög erf­iðar ákvarð­anir miðað við þær sem bíða okkar þegar við förum að taka á stöð­unni í haust. Að búa til ný fjár­lög, koma fram með fjár­mála­á­ætlun og fjalla um það hvernig við ætlum að reka sam­fé­lagið á næstu árum ver­andi í halla. Það verða erf­ið­ari ákvarð­anir og það er hætt við því að það muni draga fram ákveðnar póli­tískar línur sem að munu geta reynt á þan­þol stjórn­ar­innar.“

Reynslan hafi þó sýnt honum að stjórnin kom­ist í gegnum slíka hluti. „Það er gott jafn­vægi í þess­ari rík­is­stjórn og mér finnst við hafa sett saman rík­is­stjórn sem er lík­legri en allar aðrar mögu­legar stjórnir við þessar aðstæður til þess að leysa þann vanda. Mér finnst við hafa skyldu til þess að gera það. Það mun kosta ein­hverjar mála­miðl­anir en það er mjög auð­velt að sjá það fyrir sér að við munum fara beint úr þeirri umræðu inn í kosn­ingar, og taka þangað með okkur, hvenær sem þær verða nákvæm­lega, hluta af þess­ari umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár