Er tollastríðinu lokið?

Miklar vonir eru bundnar við sameiginlega yfir­lýsingu Banda­ríkjanna og Evrópu­sambandsins um frestun á frekari tollum og samvinnu í átt að lægri tollamúrum. Sérfræðingar vara þó við að tolla­stríðinu sé ekki enn lokið, þrátt fyrir fögur fyrirheit.

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins
Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmd­ar­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins Mynd: EPA

Sameiginleg yfir­lýsing Donalds Trump Bandaríkja­forseta og Jean-Claude Juncker forseta framkvæmdar­stjórnar Evrópu­sambandsins um frestun á bíla­tollum og byrjun á samninga­viðræðum kom mörgum í opna skjöldu í gær. Hlutabréfa­verð í evrópskum fyrir­tækjum hækkaði í kjölfar yfir­lýsingarinnar, en nokkrir sérfræðingar telja þó ekki ástæðu til að fagna enda­lokunum alveg strax.

Bílatollum frestað

Eftir heimsókn framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins til Hvíta hússins í Washington í gær birtu Trump og Juncker sameiginlega yfir­lýsingu með litlum fyrirvara til fjölmiðla um óvænt samstarf milli ríkja­sambandanna.

Samkvæmt yfir­lýsingunni, sem New York Times greindi frá, mun Evrópu­sambandið lækka tolla sína gagnvart Banda­ríkjunum og kaupa soja­baunir og jarðgas í stórum stíl, en Banda­ríkin myndu fresta fyrir­hugaða tolla­lagningu sína á innflutta bíla. Þar að auki höfðu báðir aðilar sett saman starfshóp með það að markmiði að afleggja yfir­standandi tolla Banda­ríkjanna á áli og stáli.

Kjarninn greindi frá því í gær að viðskipta­fulltrúi ESB, Cecilia Malmström, sagði sambandið vera tilbúið að leggja enn frekari tolla á bandarískar útflutnings­vörur, fari svo að tollar á bíla­innflutningi verði hækkaðir Vestanhafs. Evrópu­sambandið væri hins vegar frekar til í að lægja öldur í viðskipta­stríðinu við Banda­ríkin og sagði Cecilia að með samvinnu gætu báðir aðilar til dæmis beint sjónum sínum að óásættanlegum viðskipta­háttum Kínverja.

Yfir­lýsingin kom mörgum í opna skjöldu, en fyrir fundinn sagðist Juncker ekki búast við að heimsókn sín myndi skila miklum árangri. Hún virðist samt hafa sannfært marga alþjóða­fjárfesta, en samkvæmt frétta­stofu Reuters náði hlutabréfa­verð evrópskra fyrir­tækja fjögurra mánaða hámarki í kjölfar tilkynningarinnar, og þá sérstak­lega þýskir bíla­fram­leiðendur.

Stríðinu ekki lokið

Á hinn bóginn eru ekki allir sann­færðir um gildi yfir­lýsingarinnar, en norskir sérfræðingar segja óvissu í kringum tolla­stríðið vera vissulega enn til staðar. Kjersti Haugland, yfir­hagfræðingur DNB Markets, segirí viðtali við Dagens Næringsliv markaðs­aðila verða að vera viðbúin nýju útspili öðrum hvorum megin við Atlantshafið sem aftur gæti skekkt stöðuna. Joachim Bernhardsen, hagfræðingur í Nordea, tekur í sama streng og segir Bandaríkja­forseta vera óútreiknanlegan. Hann vilji líklega lækka tollamúra beggja ríkja­sambandanna, en samkvæmt Joachim er tolla­stríðinu þó alls ekki lokið enn. „Þetta mun hafa bæði neikvæðar og jákvæðar afleiðingar á markaðinn,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár