Sádí-Arabar hóta Bandaríkjunum „hörmungum“

Barack Obama Bandaríkja­forseti náði ekki sínu fram. Ættingjar þeirra sem létust í hryðjuverka­árásum 11. september 2001 ætla að leita réttar síns.

Yf­ir­völd í Sádi-Ar­ab­íu hafa varað við „hörmu­leg­um af­leiðing­um“ eft­ir lög voru samþykkt í Banda­ríkj­un­um sem eiga að koma í veg fyr­ir að ríki njóti friðhelgi. Sérstak­lega er um að ræða friðhelgi í þeim til­fell­um þar sem þau eru ábyrg fyr­ir hryðju­verka­árás­um sem leiða til dauða banda­rískra rík­is­borg­ara á banda­rískri grund.

Obama varð undir

Barack Obama Bandaríkja­forseti beitti neitunar­valdi í þinginu, þegar frum­varpið var til meðferðar, þar sem hann taldi að það gæti gefið alvarlegt fordæmi til framtíðar litið og opnað fyrir sambærilegar málsóknir gegn Banda­ríkjunum. Blaða­fulltrúi Hvíta hússins sagði í gær, að þingið hefði gert alvarleg mistök í málinu.

Banda­ríkjaþing kaus með mikl­um meiri­hluta með því að ógilda neit­un Obama. Hef­ur frum­varpið meðal ann­ars hamlað því að ætt­ingj­ar fórn­ar­lamba árás­ar­inn­ar 9. sept­em­ber 2001 geti farið í mál við Sádí-Ar­ab­íu sem tengd hafa verið við hryðju­verk­in.

Þetta er í fyrsta skipti í forsetatíð Obama sem þessi staða kem­ur upp. Öld­unga­deild­in hafði áður kosið með ógild­ingu neit­un­ar­inn­ar með 97 at­kvæðum á móti 1 og stuttu seinna kaus full­trúa­deild­in um málið og var niður­staðan 348 á móti 77 at­kvæðum. Niður­staðan var því afgerandi gegn stefnu Obama, alveg þvert á flokks­línur, og greinilegt að bæði Repúblikanar og Demó­kratar tóku eindregið undir kröfu ættingja þeirra 2.996 sem létust í árásunum 11. september 2001, en 15 af þeim 19 sem komu að skipulagningu hryðjuverka­árásanna komu frá Sádí-Arabíu. Ættingjar hafa í meira en tíu ár krafist þess að fá aðgang að öllum gögnum um atburðina, en hluti af skýrslum sem Bandaríkja­stjórn býr yfir hefur ekki enn verið birtur.

Sala á skuldabréfum

Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa alfarið hafnað því að hafa komið að hryðjuverka­árásunum, og sagt að tilgátur um slíkt eigi ekki við nein rök að styðjast.

Viðskipta­samband Banda­ríkjanna og Sádí-Arabíu er djúpt og sterkt, og byggir á margra áratuga sambandi þar sem viðskipti með olíu Sádí-Araba eru miðpunkturinn. Þegar umræðan stóðst sem hæst um frum­varpið fyrr­nefnda, í apríl á þessu ári, greindu bandarískir fjöl­miðlar frá því að yfirvöld í Sádí-Arabíu hefðu hótað því að selja bandarískar eignir, þar á meðal ríkis­skuldabréf upp á 117 milljarða Bandaríkja­dala, og slíta þannig á hluta þeirra viðskipta­tengsla sem eru á milli landanna. Slíkt myndi valda glundroða á fjármála­markaði, en deildar meiningar eru um hvort það væri yfir höfuð skynsamlegt fyrir Sádí-Araba sjálfa að hrinda slíku í framkvæmd

Hinn 15. apríl á þessu ári greindi New York Times frá hótuninni, og staðfesti Hvíta húsið efni hennar að hluta, en vildi ekki tjá sig í nákvæmis­atriðum um hvaða skilaboð komu frá yfir­völdum í Sádí-Arabíu.

Nú þegar niður­staðan er ljóst í þinginu, hafa yfirvöld í Sádí-Arabíu ítrekað að ef Banda­ríkjaþing grípi ekki til aðgerða, sem viðhaldi frið­helginni, þá geti það haft „hörmulegar“ afleiðingar. Hvernig þær munu raun­gerast verður að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár