Gert ráð fyrir að ríkið eigi allt að 40 prósenta hlut í Landsbankanum til frambúðar

Í drögum að uppfærðri eiganda­stefnu fyrir fjármála­fyrirtæki er gert ráð fyrir sölu á stærstum hluta ríkisins í Lands­bankanum og öllum eignar­hlut ríkisins í Íslands­banka, Arion banka og Spari­sjóði Austur­lands á næstu árum.

Stefnt er að því að selja stærstan hluta ríkisins í Lands­bankanum og allan eignar­hlut ríkisins í Íslands­banka, Arion banka og Spari­sjóði Austur­lands á næstu árum. Þetta kemur fram í drögum að uppfærðri eiganda­stefnu fyrir fjármála­fyrirtæki sem birt voru til umsagnar á vef fjármála- og efnahags­ráðuneytisins í dag. Þar eru meðal annars skilgreind markmið um einstök fjármála­fyrirtæki í eigu ríkisins og eignar­hald þeirra til framtíðar. 

Fram kemur að stefnt sé að því að ríkis­sjóður eigi verulegan eignar­hlut, 34-40%, í Lands­bankanum til langframa í því skyni að stuðla að stöðug­leika í fjármála­kerfi landsins og tryggja nauðsyn­lega innviði þess. „Eignar­hlutur ríkisins í bankanum verði að öðru leyti seldur á næstu árum þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi og jafnframt verði stefnt að skráningu á hlutabréfa­markað,“ segir í tilkynningunni. Eins er kveðið á um „hagfelld og æskileg skilyrði“ í umfjöllun um fyrir­hugaða sölu á eignar­hlut ríkisins í Íslands­banka og Arion banka. Hins vegar kemur fram að hlutur ríkisins í Spari­sjóði Austur­lands verði seldur „um leið og hægt er“ enda sé ekki markmið ríkisins að vera eigandi spari­sjóðsins til langframa. 

Í drögunum er tekið fram að eignar­hlutir ríkisins í fjármála­fyrirtækjum verði ekki seldir fyrr en aðstæður á markaði séu hagfelldar og ásættanlegar, líklegt sé að kaupendur séu til staðar og viðkomandi fyrirtæki tilbúið til sölu. Við söluna skuli stuðlað að því að efla og styrkja samkeppni á fjármála­markaði. 

Bent er á að í lögum um Banka­sýslu ríkisins hafiverið gert ráð fyrir að stofnunin lyki störfum innan fimm ára frá því að hún var sett á fót. Banka­sýslan hafi hins vegar ekki lokið hlutverki sínu. Líklega verði lagt fram laga­frumvarp um niður­lagningu hennar verði stærri fjármála­fyrirtæki í meirihluta­eigu ríkisins seld eða skráð á hlutabréfa­markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár